Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Side 11
FRÁSÖGN SPILAFÍKILS
„Mín saga er löng í þessu máli
og ég hef reyndar upplifað mikla
niðurlægingu af minni eigin hendi
í sambandi við þetta,“ segir fer-
tugur spilafíkill sem kýs að koma
ekki fram undir nafni. Hann segist
hafa barist við spilafíkn í áratugi.
„Stundum skaust ég í hádegis-
mat en kom til baka tveimur tímum
seinna. Ég hafði ekkert borðað en
var kannski búinn að eyða hálfum
mánaðarlaununum í kassa. En
þessi saga er dæmigerð fyrir alla
sem eru í þessum litla hópi sem
stendur undir öllu þessu batteríi,“
segir hann og vísar í rekstur spila-
kassa á Íslandi.
„Hörmungarnar mínar eru ekki
svo miklar því ég þurfti ekki að
fela þetta fyrir fjölskyldunni. Aftur
á móti á ég sögu af stórum vinn-
ingi og tryllingnum sem því fylgdi,
stjórnlaus spilamennska og gegnd-
arlaus kókaínneysla. Spilafíknin
og kókaínið eru held ég að vinna
á svipuðum slóðum í hausnum. En
ég upplifði þá merkilegt móment
þegar tveir lykilþættir í lífinu voru
ekki lengur til staðar, það er tími og
verðmæti. Það er ótrúlega góð til-
finning og mikið frelsi. Fimm og tíu
þúsund kallarnir urðu að leikpen-
ingum og tími var ekki til. En svo
fékk ég nóg af þessu og ætlaði að
reyna að stoppa en fór þá að spila
á netinu, nokkuð sem ég hafði aldr-
ei viljað gera. En ég held að ég hafi
tapað 8 milljónum að lágmarki á ca
4 mánuðum en mér var svo sem
andskotans sama.“
Hann segir að í einni tilraun sinni
til að losna undan spilafíkninni hafi
hann ákveðið að fara eins langt frá
kössunum og mögulegt var. „Það
varð til þess að ég fór til útlanda.
Ég gat ekki spilað á netinu þar
því ég varð að vera með þarlenda
kennitölu til þess sem er frekar
auðvelt að fá en ég sleppti því til
að búa ekki til freistingar.“
Eftir rúmt ár erlendis gafst hann
upp á fjarlægðinni frá fólkinu sínu
og kom aftur heim. „Ég verð að
standa mig gagnvart þessu því
þetta er mesta helvíti sem hægt er
að lenda í. Þetta er algjört stjórn-
leysi og hörmuleg fíkn. Þessir
kassar eru niðurlægjandi fyrir
þjóðina. Fjárhættuspil eru bönnuð
á Íslandi en þá setja menn bara
nýtt nafn á pakkann til að fara fram
hjá lögunum og kalla þá söfnunar-
kassa. Þvílík og önnur eins blekk-
ing.“
Aðspurður hvort hann sjái fyrir
sér að fjárhættuspil yrðu leyfð með
einhverjum hætti ef kössunum væri
lokað svarar hann: „Það á að loka
þessum spilabúllum strax en opna
spilavíti með stífum reglum og 23-
25 ára aldurstakmarki. Vítin eiga
að vera rekin af ríkinu og það á að
stíla upp á fjárhættuspila-ferða-
mennsku með glæsihóteli og þess
háttar. Að fá efnaða ferðamenn til
landsins til að eyða peningum. Það
er ekki hægt að banna fjárhættu-
spilin til að losna við þetta, frekar
en áfengi og eiturlyf. Þannig er
hægt að fjármagna SÁÁ og fleiri
sem njóta afraksturs kassanna í
dag. En að sitja á þriðjudagsmorgni
inni í einhverri spilabúllu, að svíkj-
ast um í vinnunni, við hliðina á
bótaþega eða heimilisföður sem
fór með húsaleigupeningana til að
græða á, en tapar því auðvitað, er
ömurlegt.
Það eru engar afsakanir fyrir
þessum spilakössum, nánast á
hverju götuhorni, staðir sem eru
opnaðir snemma á morgnana til
að „leyfa hinum venjulega Íslend-
ingi sem er kannski að bíða eftir
strætó, að skreppa inn og leika
sér fyrir nokkur hundruð krónur og
jafnvel græða stórfé” svo vitnað
sé í einhvern stjórnanda spila-
kassafyrirtækis sem var að reyna
að búa til einhverja glansmynd af
þessu í viðtali. Það þarf að sýna
fáránleikann og losna við þetta
þjóðarmein sem fyrst. En það er
ekki hægt að útrýma þessu. Það
á að koma þessu burt úr bænum,
á einn stað þar sem þú þarft að
gerast meðlimur og hvað eina eins
og víðast ytra.“
MYND/ANTON BRINK
enn verri fyrir skjólstæðinga
þeirra. Ég veit ekki betur en
að margir skjólstæðingar SÁÁ
leiti þangað eftir aðstoð vegna
fíknar í hluti sem lengi eða
um alla tíð hafa verið bann-
aðir. Það að banna spilakassa
læknar ekki spilafíkn. Því
miður.“
Tekjufall þegar
kössunum var lokað
Kristín S. Hjálmtýsdóttir,
framkvæmdastjóri Rauða
krossins, segir ekki standa
til að hætt verði aðkomu að
rekstri spilakassa. „Þetta
er mjög mikilvæg fjáröflun
fyrir félagið og sést það vel
á því að nú þegar spilakassar
voru lokaðir í COVID-faraldr-
inum með tilheyrandi tekju-
falli hjá Íslandsspilum höfum
við þurft að grípa til aðgerða
meðal annars með fækkun
stöðugilda og endurskipu-
lagningu verkefna. Það er af-
skaplega erfitt enda verkefn-
in brýn. Það er ekki kappsmál
í sjálfu sér fyrir Rauða kross-
inn að starfrækja spilakassa
en hefur verið mikilvæg fjár-
öflun fyrir félagið og alveg
ljóst að það þarf fjármagn til
að halda úti starfsemi félags-
ins,“ segir hún.
Samdráttur í tekjum
af spilakössum
Kristín tekur fram að rekstur
Íslandsspila byggi á gömlum
grunni og Rauði krossinn
hafi leitað ýmissa leiða til
að styrkja aðra fjáröflun þar
sem tekjur af Íslandsspilum
hafi farið minnkandi með
hverju árinu, til dæmis með
Mannvinum Rauða krossins
og mánaðarlegum styrktarað-
ilum.
„Ef fram fer sem horfir
munu tekjur halda áfram að
dragast saman, enda þeir sem
taka þátt í spilunum margir
hverjir farnir að spila á net-
inu. Rauði krossinn og aðrir
eigendur Íslandsspila hafa um
árabil kallað eftir breytingu
á lagaumhverfi happdrættis-
markaðarins. Hugnast okkur
best að fara svokallaða nor-
rænu leið, þar sem eitt fyrir-
tæki rekur spilakassa, lottó,
getraunir og skafmiða. Með
þessu móti er hægt að bjóða
upp á skráningu þeirra sem
spila og spilakort, hægt að
setja þak á hversu mikið er
hægt að spila. Það er vilji eig-
enda Íslandsspila að þessi leið
verði farin,“ segir Kristín.
Aðspurður hvort SÁÁ ætli
að draga sig út úr rekstri
spilakassa segir Arnþór Jóns-
son, formaður SÁÁ: „Það má
reikna með því að rekstri
spilakassa verði sjálfhætt
áður en langt um líður. Happ-
drætti, spilun og veðmála-
starfsemi er öll á leið inn á
netið.“
Happdrætti Háskóla Íslands
og dómsmálaráðuneytið höfðu
ekki svarað fyrirspurn DV
þegar blaðið fór í prentun. n
FRÉTTIR 11DV 5. JÚNÍ 2020
Að sitja á þriðjudagsmorgni
inni í einhverri spilabúllu, að
svíkjast um í vinnunni, við
hliðina á bótaþega eða heimilis-
föður sem fór með húsaleigu-
peningana til að græða á, en
tapar því auðvitað, er ömurlegt.
MYND/GETTY
Það að banna
spilakassa
læknar ekki
spilafíkn.