Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Síða 26
26 FÓKUS 5. JÚNÍ 2020 DV Þ etta er draumur sem varð að veruleika og ég bara stökk út í þetta. Ég fattaði eiginlega bara eftir á að ég væri búin að opna,“ segir Sigrún Arna sem opnaði ný­ verið gjafavöruverslunina og ráðgjafarfyrirtækið Heima­ decor í Vestmannaeyjum. „Ég fann húsnæði, skoðaði það og þetta var mjög fljótt að gerast. Ég fann húsnæðið í febrúar eða mars og við fórum bara strax að vinna í því,“ seg­ ir Sigrún. Undirbúningur í samkomubanni Búðin var opnuð 15. maí eftir miklar endurbætur. Húsnæðið var illa farið og Sigrún tók allt í gegn. Vinna og undirbún­ ingur fyrir opnun fór fram þegar heimsfaraldur vegna COVID­19 stóð sem hæst. „Ég lét það ekki stoppa mig. Heimsfaraldurinn mun taka enda. Þetta er heldur ekki lundabúð þar sem ferðamenn eru markhópurinn. Markmiðið er að veita Vestmannaeyingum þjónustu,“ segir Sigrún Arna spennt fyrir komandi tímum. Karlarnir koma með í búðina Eina af ástæðunum fyrir því að opna verslun segir Sigrún vera að færa vinnuna út af heimilinu. „Áður hitti ég alltaf fólk úti í bæ sem ég var að veita ráð­ gjöf og vann svo heima. Ég finn strax mikinn mun á því að vera komin út af heimilinu. Það er meira um það að fólk komi og óski eftir ráðgjöf. Konurnar koma núna með mennina sína með sér niður í búð. Áður hitti ég bara kon­ urnar á kaffihúsi. Svo verða líka allir þreyttir á því að vinna heima. Maður er bara að þrífa og setja í þvottavél og gera eitthvað annað en að vinna.“ Nýtt að fá innanhússhönnuð Í versluninni er boðið upp á fjölbreytta gjafavöru og þjón­ ustu. „Ég er með góðar sápur og snyrtivörur, skartgripi og alls konar fyrir heimilið. Við erum í samstarfi við Sérefni, Granítsteina og Lúmex. Hægt er að skoða prufur hjá mér og svo panta ég frá þeim eftir þörfum. Ég er sem sagt að selja salt og pipar, granít og Opnaði verslun til að koma vinnunni út af heimilinu Sigrún Arna Gunnarsdóttir innanhússhönnuður opnaði nýverið verslun í Vestmannaeyj- um sem fer blómlega af stað þrátt fyrir krepputal enda fara smekklegheit ekki úr tísku. Sóley Guðmundsdóttir soley@dv.is málningu. Þetta er bara alls konar,“ segir hún hlæjandi. Sigrún telur þessa tegund af þjónustu hafa vantað í Eyjum. „Fólk er held ég að átta sig á þjónustunni. Ég var með fleiri kúnna í Reykjavík heldur en hér í Eyjum. Að fá aðstoð frá innanhússhönnuði er bara frekar nýtt fyrir Eyjamönn­ um,“ segir Sigrún en viðtökur hafa verið góðar á þessum stutta tíma. „Við setjumst bara niður og ræðum hvað kúnninn vill,“ segir Sigrún Arna um hlut­ verk innanhússhönnuðar. „Ef þig vantar nýtt eldhús þá get ég fengið tilboð í allt. Lýsingu, innréttingu, málningu, borð­ plötu og bara hvað sem er. Þá þarf kúnninn ekki að hringja út um allt til að fá tilboðin,“ bætir hún við. Sigrún hefur hannað mest fyrir einstaklinga hingað til en það breytist fljótlega. „Það er eitt stórt og spennandi verk­ efni fram undan hjá mér. Ég er mjög spennt að segja frá því, vonandi sem allra fyrst,“ segir Sigrún en hún þjónustar fólk um allt land þó að hún sé í Vestmannaeyjum. Hægt er að fylgjast með Sigrúnu á Instagram­svæðinu „Heimadecor“ og á vefsíðunni heimadecor.is. nEitt af verkefnum Sigrúnar í heimahúsi er þetta fallega og praktíska eldhús. MYNDIR/AÐSENDAR Sigrún Arna hannaði verslunina, sem var fokheld. MYND/AÐSEND Þetta er heldur ekki lunda- búð þar sem ferðamenn eru markhópurinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.