Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Page 29
L imitless er ekki námskeið eða einkaþjálfun í sjálfu sér, heldur meira eins og lífsstíls­ breyting, þar sem unnið er með öll kerfi líkama og hugar. Við vinnum í hugarfari, andlegu hliðinni, líkam­ legu hliðinni og gerum skemmti­ legar og krefjandi æfingar sem koma hverjum og einum nær sínum eigin markmiðum. Að þessu leyti er þetta ekki eins og hefðbundin einka­ þjálfun. Hér er um að ræða víðtæka reynslu sem kemur við mun fleiri snertifleti en einöngu hið líkamlega,“ segir Andri Einarsson, stofnandi Andri Iceland. Andri hefur boðið upp á ýmis námskeið á vegum Andri Ice­ land. Meðal þess má nefna „Hættu að væla komdu að kæla“ – Wim Hof Method, öndunarnámskeið, hugar­ farsnámskeið og margt fleira. Persónulega sniðið að hverjum og einum Limitless er persónulega sniðið að hverjum og einum. „Ég get unnið með einstaklingum, pörum eða allt að fimm manna hópum ef fólk kýs að vinna saman að sameiginlegu mark­ miði. Í gegnum mína þrautagöngu hef ég öðlast gífurlegan fjölda alls kyns verkfæra sem hafa hjálpað mér að verða sá sem ég er í dag. Í Limit­ less mun ég kenna skjólstæðingum aðferðir sem gera þeim kleift að gera þær breytingar sem þeir þurfa að gera til þess að yfirstíga sín eigin mörk og víkka þau út.“ • Umbyltu huga þínum og líkama • Uppgötvaðu möguleika þína • Einfaldar en öflugar aðferðir • Lærðu að lifa í miðju stormsins • Taktu stjórn á eigin lífi á öllum tilverustigum • Skildu eftir allt það sem heldur aftur af þér, fyrir fullt og allt Við erum okkar eigin óvinir „Fórnarlambið er ótrúlega ríkt í okkur öllum og það eina sem stoppar okkur í því að gera það sem okkur langar að gera í lífinu er oft á tíðum við sjálf. Eins og Henry Ford sagði eitt sinn, að ef þú heldur að þú getir ekki eitthvað, þá muntu ekki geta það. Við keyrum oftar en ekki á gömlu tölvustýrikerfi sem byggir á hefðum, trú og viðhorfum sem sköpuðust áður en við vorum nógu þroskuð til þess að vinna í þessu öllu saman. Það sem ég geri er að „debugga“ eða villuhreinsa ein­ staklinginn svo að hann upplifi það á eigin skinni að okkur eru engin tak­ mörk sett. Við getum allt sem okkur dreymir um. Það er tilgangslaust að reyna að sannfæra efasemdafólk um að kuldaböð eða sjálfsvinna virki. Þú þarft að vilja gera breytingar til þess að breytingar geti átt sér stað.“ Vinnur í sjálfum sér í leiðinni Andri bætir við að það sem við ein­ beitum okkur að, það vex og dafnar, en það sem fær engan fókus þornar upp og skrælnar. „Ég hef öðlast öflug verkfæri til þess að endurbeina fókusnum á það sem skiptir máli. Að vera limitless er ekki eitthvað sem kemur bara af sjálfu sér, því maður þarf stöðugt að vinna í sjálfum sér til þess að viðhalda æskilegu ástandi,“ segir Andri. Þess vegna einsetur hann sér að gera æfingarnar með skjólstæðingunum. „Í leiðinni er ég að vinna í sjálfum mér. Þó svo ég hafi öðlast gríðarlegan árangur og fundið jafnvægi í mínu eigin lífi, þá er ekki þar með sagt að ég svífi um á bleiku skýi og allt sé fullkomið. Það er ekki til neitt sem heitir full­ komnun. Ég verð alveg ennþá reiður eða pirraður ef einhver svínar fyrir mig í umferðinni. En ég er svo miklu fljótari að taka á ástandinu og ná jafnvægi aftur. Streituvaldandi lífsstílssjúkdómar eru mesta plága nútímans og lykillinn að því að vinna á móti þessari þróun er að finna jafn­ vægi í sjálfum sér.“ Vika eða mánuður Hægt er að velja um Limitless þjálfun sem tekur eina viku eða einn mánuð, allt eftir því sem hentar hverjum og einum. „Sumir vilja drífa þetta í gang og vinna að Limit­ less lífsstílsbreytingunni hratt og örugglega. Öðrum hentar betur að taka sér lengri tíma. Þetta er annars sami tímafjöldi í grunninn. Hvert Limitless þjálfunarprógramm byrjar á því að ég ræði við einstaklinginn og set honum eða henni verkefni til þess að stefna að í viku, áður en fjörið byrjar. Það er gott að hugsa um hvað það er sem maður vill vinna í fyrirfram, en svo er líka mikil­ vægt að vera opinn og viðbúinn því að allt geti gerst. Með meðferðum og verkefnum eins og kælimeðferð, ísböðum, flæði, hreyfingu, hugar­ leikfimi, samtölum og ýmsu fleiru vinnum við að því saman að finna út hvar mörk hvers og eins liggja og hvernig má finna leiðir til þess að yfirstíga þau.“ n KYNNING 29DV 5. JÚNÍ 2020 Stígðu út fyrir mörkin með LIMITLESS Becoming Limitless á vegum Andri Iceland er sniðið fyrir þá sem vilja víkka út sín eigin mörk og vinna á skilvirkan hátt að því að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Fórnarlambið er ótrúlega ríkt í okkur öllum og það eina sem stoppar okkur í því að gera það sem okkur langar að gera í lífinu er oft á tíðum við sjálf. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni andriiceland.com. Andri Einarsson þekkir það á eigin skinni að vera háður sínum eigin mörkum. MYND/ANTON BRINK Becoming Limitless er persónulegt ferðalag til þess að læra að stíga út fyrir eigin takmarkanir. MYNDIR/AÐSENDAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.