Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Qupperneq 29
L imitless er ekki námskeið eða einkaþjálfun í sjálfu sér, heldur meira eins og lífsstíls
breyting, þar sem unnið er með öll
kerfi líkama og hugar. Við vinnum í
hugarfari, andlegu hliðinni, líkam
legu hliðinni og gerum skemmti
legar og krefjandi æfingar sem
koma hverjum og einum nær sínum
eigin markmiðum. Að þessu leyti er
þetta ekki eins og hefðbundin einka
þjálfun. Hér er um að ræða víðtæka
reynslu sem kemur við mun fleiri
snertifleti en einöngu hið líkamlega,“
segir Andri Einarsson, stofnandi
Andri Iceland. Andri hefur boðið upp
á ýmis námskeið á vegum Andri Ice
land. Meðal þess má nefna „Hættu
að væla komdu að kæla“ – Wim Hof
Method, öndunarnámskeið, hugar
farsnámskeið og margt fleira.
Persónulega sniðið
að hverjum og einum
Limitless er persónulega sniðið að
hverjum og einum. „Ég get unnið
með einstaklingum, pörum eða allt
að fimm manna hópum ef fólk kýs að
vinna saman að sameiginlegu mark
miði. Í gegnum mína þrautagöngu
hef ég öðlast gífurlegan fjölda alls
kyns verkfæra sem hafa hjálpað mér
að verða sá sem ég er í dag. Í Limit
less mun ég kenna skjólstæðingum
aðferðir sem gera þeim kleift að gera
þær breytingar sem þeir þurfa að
gera til þess að yfirstíga sín eigin
mörk og víkka þau út.“
• Umbyltu huga þínum og líkama
• Uppgötvaðu möguleika þína
• Einfaldar en öflugar aðferðir
• Lærðu að lifa í miðju stormsins
• Taktu stjórn á eigin lífi á öllum
tilverustigum
• Skildu eftir allt það sem heldur
aftur af þér, fyrir fullt og allt
Við erum okkar eigin óvinir
„Fórnarlambið er ótrúlega ríkt í
okkur öllum og það eina sem stoppar
okkur í því að gera það sem okkur
langar að gera í lífinu er oft á tíðum
við sjálf. Eins og Henry Ford sagði
eitt sinn, að ef þú heldur að þú getir
ekki eitthvað, þá muntu ekki geta
það. Við keyrum oftar en ekki á
gömlu tölvustýrikerfi sem byggir
á hefðum, trú og viðhorfum sem
sköpuðust áður en við vorum nógu
þroskuð til þess að vinna í þessu
öllu saman. Það sem ég geri er að
„debugga“ eða villuhreinsa ein
staklinginn svo að hann upplifi það
á eigin skinni að okkur eru engin tak
mörk sett. Við getum allt sem okkur
dreymir um. Það er tilgangslaust að
reyna að sannfæra efasemdafólk um
að kuldaböð eða sjálfsvinna virki. Þú
þarft að vilja gera breytingar til þess
að breytingar geti átt sér stað.“
Vinnur í sjálfum sér í leiðinni
Andri bætir við að það sem við ein
beitum okkur að, það vex og dafnar,
en það sem fær engan fókus þornar
upp og skrælnar. „Ég hef öðlast
öflug verkfæri til þess að endurbeina
fókusnum á það sem skiptir máli. Að
vera limitless er ekki eitthvað sem
kemur bara af sjálfu sér, því maður
þarf stöðugt að vinna í sjálfum sér til
þess að viðhalda æskilegu ástandi,“
segir Andri. Þess vegna einsetur
hann sér að gera æfingarnar með
skjólstæðingunum. „Í leiðinni er ég
að vinna í sjálfum mér. Þó svo ég
hafi öðlast gríðarlegan árangur og
fundið jafnvægi í mínu eigin lífi, þá
er ekki þar með sagt að ég svífi um
á bleiku skýi og allt sé fullkomið.
Það er ekki til neitt sem heitir full
komnun. Ég verð alveg ennþá reiður
eða pirraður ef einhver svínar fyrir
mig í umferðinni. En ég er svo miklu
fljótari að taka á ástandinu og ná
jafnvægi aftur. Streituvaldandi
lífsstílssjúkdómar eru mesta plága
nútímans og lykillinn að því að vinna
á móti þessari þróun er að finna jafn
vægi í sjálfum sér.“
Vika eða mánuður
Hægt er að velja um Limitless
þjálfun sem tekur eina viku eða einn
mánuð, allt eftir því sem hentar
hverjum og einum. „Sumir vilja
drífa þetta í gang og vinna að Limit
less lífsstílsbreytingunni hratt og
örugglega. Öðrum hentar betur að
taka sér lengri tíma. Þetta er annars
sami tímafjöldi í grunninn. Hvert
Limitless þjálfunarprógramm byrjar
á því að ég ræði við einstaklinginn
og set honum eða henni verkefni
til þess að stefna að í viku, áður en
fjörið byrjar. Það er gott að hugsa
um hvað það er sem maður vill vinna
í fyrirfram, en svo er líka mikil
vægt að vera opinn og viðbúinn því
að allt geti gerst. Með meðferðum
og verkefnum eins og kælimeðferð,
ísböðum, flæði, hreyfingu, hugar
leikfimi, samtölum og ýmsu fleiru
vinnum við að því saman að finna
út hvar mörk hvers og eins liggja og
hvernig má finna leiðir til þess að
yfirstíga þau.“ n
KYNNING 29DV 5. JÚNÍ 2020
Stígðu út fyrir mörkin með LIMITLESS
Becoming Limitless á vegum Andri Iceland er sniðið fyrir þá sem vilja víkka út sín
eigin mörk og vinna á skilvirkan hátt að því að verða besta útgáfan af sjálfum sér.
Fórnarlambið er ótrúlega ríkt í okkur öllum og það eina sem stoppar okkur í því að gera það
sem okkur langar að gera í lífinu er oft á tíðum við sjálf.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni
andriiceland.com.
Andri Einarsson þekkir það á eigin skinni að vera háður sínum eigin mörkum. MYND/ANTON BRINK
Becoming Limitless er persónulegt ferðalag til þess að læra að stíga út fyrir eigin
takmarkanir. MYNDIR/AÐSENDAR