Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2020, Qupperneq 36
36 STJÖRNUFRÉTTIR 5. JÚNÍ 2020 DV
Skilnaðir fræga fólksins
á tímum kórónaveirunnar
Fjöldi sérfræðinga hefur spáð
aukinni skilnaðartíðni í kjölfar
kórónaveirufaraldursins. Hér gef-
ur að líta þekkta Íslendinga sem
skildu eða slitu ástarsamböndum
á tímum kórónaveirunnar. Nú
taka vafalaust við nýir og spenn-
andi tímar hjá þessu efnilega og
eftirsóknarverða fólki.
BRÍET
Ein efnilegasta söngkona landsins er á lausu. Bríet
Ísis Elfar vakti fyrst athygli í Iceland Got Talent og
var valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverð-
laununum árið 2019. Hún var um árabil í sambandi
með Halldóri Karlssyni, sem hefur gert garðinn
frægan í ýmsum íþróttum og líkamsrækt.
KRISTÍN ÝR
Fyrrverandi fréttakonan og almannatengillinn Kristín
Ýr Gunnarsdóttir er laus og liðug – bæði við COVID
og karlmenn. Kristín fékk veiruna en er frísk og á
lausu. Hún og alþingismaðurinn Kolbeinn Óttarsson
Proppé höfðu verið að rugla saman reytum.
MANUELA OG JÓN DANSARI
Athafnakonan og áhrifavaldurinn Manuela Ósk
Harðardóttir og dansarinn Jón Eyþór Gottskálks-
son hættu saman, eftir um hálfs árs samband. Þau
kynntust eins og frægt er orðið í þáttunum Allir geta
dansað á Stöð2.
HANNA STÍNA
INNANHÚSSARKITEKT
Einn vinsælasti innanhússarkitekt landsins, Hanna
Stína Ólafsdóttir, er nýskilin og á lausu. Hanna Stína
er mjög eftirsótt fyrir smekkvísi sína og einstakt
auga fyrir fegurð og notagildi. Hún er vinsæl og vin-
mörg, enda geislar af henni hvar sem hún fer.
GURRÝ ÞJÁLFARI
Guðríður Torfadóttir, eða Gurrý eins og hún er
kölluð, er nýskilin að borði og sæng við eiginmann
sinn til sautján ára. Gurrý er einn vinsælasti þjálfari
landsins og var þjálfari í raunveruleikaþættinum
Biggest Loser Ísland.
BRYNJÓLFUR LÖVE OG KRISTÍN PÉTURS
Áhrifavaldaparið Brynjólfur Löve Mogensen og
Kristín Pétursdóttir hættu saman í vor. Þau voru
eitthvert vinsælasta par Íslands og mjög dugleg að
deila myndum og myndskeiðum hvort af öðru á sam-
félagsmiðlum. Brynjólfur starfar sem markaðsstjóri
KIWI og Kristín er leikkona.
HÖGNI EGILS OG SNÆFRÍÐUR INGVARS
Snæfríður Ingvarsdóttir, ein efnilegasta leikkona landsins, og hinn hæfi-
leikaríki Högni Egilsson, söngvari Hjaltalín, hættu saman eftir sex ára
samband. Snæfríður útskrifaðist úr leiklist frá Listaháskólanum vorið
2016 og hefur síðan slegið í gegn í hverju leikverkinu á fætur öðru og var
tilnefnd til Eddunnar, strax ári eftir að hún útskrifaðist.
ANNA LILJA OG GRÍMUR
Athafnakonan Anna Lilja Johansen og Grímur Alfreð Garðarsson, einn
eigandi Best Seller veldisins, fóru sitt í hvora áttina fyrir stuttu. Anna
Lilja þykir ákaflega smekkleg og hefur komið að stofnun fatahönnunar-
merkja á borð við Another Creation, en hún lauk nýverið mastersprófi í
fjármálum.
MYND/STEFÁN
MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND
MYND/AÐSEND
MYND/SIGTRYGGUR ARI MYND/EYÞÓR
SKJÁSKOT/FACEBOOK
SKJÁSKOT/YOUTUBE