Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1943, Qupperneq 8

Íþróttablaðið - 01.04.1943, Qupperneq 8
4 IÞRÓTTABLAÐIÐ Fyrstir urðu: 1. Sigurður Þórðarson 2. Hreinn Ólafsson . . . 3. Helgi Óskarsson .. . 4. Einar Ólafsson . ... 5. Haukur Benediktsson Jafnskjótt og keppni C-flokks var á enda, hófst svig kvenna. Brautin var á sönni slóðum og liin fyrri, 30 m. há og 150 m. löng. 8 keppendur voru í leiknum, allt stúlkur úr Reykjavík. Þessi keppni var mjög ánægjuleg; bæði var það, að stúlkurnar leystu verkefni sitt vel af hendi og voru mjög jafnar, — og svo gerðu áhorf- endur sitt til að þessu sinni, — þeir voru nefnilega allir keppendur úr karlasviginu, — þ. e a. s. eintómir fagmenn og upprennandi íslandsmeist- arar. Og það veit trúa mín, að við hverja vel gerða Kristjaníusveiflu blómarósanna, þá voru fagnaðarlætin svo mikil, að fjöllin skulfu. Fyrstar urðu þessar: 1. Maja Örvar ..................... 2. Ragnheiður Ólafsdóttir ......... 3. Hallfríður Bjarnadóttir ........ Maja Örvar varð einnig Reykja- víkurmeistari í svigi kvenna á þess- um vetri. Nú var haldið frá Skíðaskálanum suður að Stóra-Lakahnúk. Þegar þang- Maja Örvar. 1. umf. 2. umf. Samt. Í.R.A. 34,0 35,6 69,6 Í.R.A. 34,0 36,7 70,7 Sk.Sf. 33,1 38,0 71,1 Sk.Sf. 35,4 36,4 71,8 Í.R.V.F. 35,0 39,2 74,2 að kom, hafði Steinþór SigurðSson lok- ið við að leggja svigbraut fyrir B- flokkinn ofan af hnúknum og niður í kvosina, sem er norðanvert við hann. Hæð brautarinnar var um 80 m. en lengdin um 450 m. Keppnin hófst strax og keppendur voru komnir upp á hnúkinn. Þeir voru 18. Siglfirðing- ar áttu aðeins einn mann í þessari keppni, en svo stendur á þvi, að þeir hafa ekki haldið héraðsmót heima hjá sér á undanförnum árum og hafa því skíðamenn þeirra ekki haft tæki- færi til þess að vinna sig upp í efri flokkana, nema á mótum utan héraðs- ins. Keppnin gekk mjög greitt og flýtti það mjög fyrir, að simasamband 1. umf. 2. umf. Samt. K.R. 25,3 24,1 49,4 K.R. 24,9 25,0 49,9 K.R. 24,9 25,1 50,0 var á milli ræsimarks og endaniarks í öllu sviginu. Fyrstir urðu: 1. Gunnar Karlsson ................. 2. Haraldur Árnason ................ 3. Haraldur Pálsson ................ í svigi B-flokksins var einnig sveita- keppni um „Svigbikar II“, sem áður hafði verið unninn af íþróttaráði Ak- ureyrar og Skíðafélagi Siglufjarðar. Nú fór það svo, að íþróttafélag Reykjavíkur vann þennan bikar: 1. íþróttafélag Reykjavíkur 240,4 sek. 2. íþróttafélag Menntaskól- ans á Akureyri ........ 273,9 — 3. íþróttaráð Vestfjarða .. 311,2 — f sveit Í.R. voru: Haraldur Árna- son, Jóhann Eyfells og Ólafur B. Guð- mundsson. Þessi keppni var hin eina á öllu mótinu, þar sem Reykvíkingar reyndust jafningjar komumanna. — Meðan keppni B-flokksins fór fram, Gunnar Karlsson. hafði Steinþór undirbúið nýja svig- braut og var hún fullmerkt að vörmu spori eftir að keppninni lauk. Nú átti að fara fram sveitakeppni um „Slal- om-bikar Litla-Skíðafélagsins“, en um þann bikar hefir verið keppt á Thule' 1. umf. 2. umf. Samt. . . . Í.R.A. 38,0 36,0 74,0 Í.R. 37,0 37,5 74,5 . . . Sk.Sf. 38,3 36,4 74,7 mótunum undanfarin ár og hafði hann áður verið unnin af Knatt- spyrnufélagi Reykjavíkur og Skíða- borg á Siglufirði. Hvert félag átti að tilnefna fjóra menn í sveit sína. Komu þeir allir til úrslita í sveitinni, svo að ef einn maður varð úr leik, þá var öll sveit- in úr. Það fyrirkomulag gerir keppn- ina vandasamari og meira spennandi en þegar aukamenn eru með. Átta sveitir voru í leiknum og keppendur því alls 32. Svigbrautin var á sömu slóðum og B-flokks-brautin, jafnhá henni og svipuð á lengd. Brautin þótti vera skemmtilega lögð, einkum neðri hluti liennar. Svigmennirnir fóru þar i

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.