Íþróttablaðið - 01.04.1975, Page 13
i blaöinu
íþróttablaðið 35 ára.
Iþróttablaðið 35 ára. — Bls. 15.
íþróttablaðið á um þessar mundir 35 ára afmæli. Það
hefur verið sagt, að það sé auðvelt að gefa út blað
einu sinni, en erfitt að halda því áfram í mörg ár.
íþróttablaðið er stolt af löngum aldri og þakkar hann
seiglu þeirra manna sem staðið hafa að útgáfu blaðs-
ins, oft við mjög erfiðar aðstæður.
í dag er íþróttablaðið eitt af stærstu og útbreiddustu
sérritum hér á landi og lögð er áherzla á að bæta sí-
fellt efni og útlit blaðsins.
í þessu blaði:
Enginn krepputónn hjá Víkingum.
Víkingur í sviðsljósi, bls. 6.
Félagið okkar í sviðsljósi að þessu sinni er Knatt-
spyrnufélagið Víkingur. Um áratuga skeið hefur það
félag rétt hjarað, ef svo mætti segja. í dag er öldin
önnur. Félagið hefur unnið stóra sigra á íþróttasvið-
inu, og félagslega er það sterkara en nokkru sinni.
Vandamál, vandamál, vandamál....
Flvar stöndum við? — Bls. 13. Rætt við Örn Eiðsson
formann FRÍ.
Það er ekki ofsögum sagt, fjárhagur iþróttanna er
ekki ýkja beysinn. Frjálsíþróttasambandið hefur ekki
farið varhluta af þessu. Rætt er við Örn Eiðsson, for-
mann FRÍ um þessi mál og önnur, sem ofarlega eru
á baugi hjá sambandinu um þessar mundir.
Þeir allra yngstu heimsóttir.
Yngstu knattspyrnumenn Breiðabliks heimsóttir. —
Bls. 22.
Það þarf ekki að efast um að nóg er af efniviðum í
knattspyrnunni okkar. Við gerðum Breiðábliksstrák-
unum í Kópavogi heimsókn nú nýlega. Þar eru þeir
að hefja undirbúning að öðru eins sumarstarfi og síð-
asta sumar. Þá komu þeir heim með þrjá íslandsbik-
ara í yngri flokkunum.
Sambandsráðsfundur Í.S.Í. — Bls. 27.
Grein um Björn Borg, sem er á góðri leið með að
verða einn bezti tennisleikari í heimi. — Bls. 28.
íþróttalíf á Akureyri. — Bls. 35.
27 ár við ritvélina.
íþróttafréttamenn. Viðtal við Hall Símonarson. —
Bls. 42.
Hallur Símonarson er reyndastur allra okkar ágætu
íþróttafréttaritara. í 27 ár hefur hann skrifað í blöð
um íþróttir. Við tókum Hall tali og kynnum hann
nánar í nýjum þætti um íslenzka íþróttafréttamenn.
Gamla myndin. — Bls. 49.
Olympíuleikarnir í Kanada. — Bls. 51.
Tízkufatnaður. — Bls. 53.
5