Íþróttablaðið - 01.04.1975, Side 17

Íþróttablaðið - 01.04.1975, Side 17
Víkingur æfinga miðað við nýtt landnám og nýtt hverfi. Félagið átti þetta félagsheimili, sem var þó að meginhluta útleigt og var því félagsstarfseminni að minna liði en til var stofnað. — Og hvað varð ykkar fyrsta verk? — Við horfðum fyrst á fjárhagslega stöðu félagsins og gerðum úttekt á því, hvort félagið hefði bolmagn til að taka heimilið til eigin nota. Slíkt var okkur lífsnauðsyn, ef okkur ætti að takast að byggja félagið upp eins og við vildum. Til þess að reyna að vinna upp og endurvekja tengslin við gömlu félagana, sem horfnir voru félaginu sjónum, ákváð- um við að stofna nýjar deildir, sem störf- uðu á þeim sviðum, þar sem bæði ungir sem aldnir gætu verið með. Á einu ári, 1973, urðu því til þrjár nýjar deildir innan Víkings, badmintondeild, blakdeild og borðtennisdeild. Síðast en ekki síst vildum við ná til eiginkvenna Víkinga og þeirra kvenna, sem leikið hafa með handknattleiksliðum félagsins á undanförnum árum. Kvenna- deild varð þannig til innan félagsins og í stuttu máli hefur sú deild frá stofnun verið geysistyrk stoð í félagsstarfinu. Ennfremur lögðum við kapp á að örva skíðadeildina. Okkur var það fullkomlega ljóst, að skíðadeildin gat orðið samnefnari félagsins. Við lögðum áherzlu á að styrkja hana til starfa í nýjum skála hennar. Þegar ég nefni skíðadeildina sem samnefnara, á ég við að á skíðum og upp til fjalla í frjálsri útiveru kynnast félagar allra deilda og með tengslum félagsmanna verður til neisti til nýrra átaka. — Og er þú lítur til baka, ertu þá ánægður? Hefur ykkur tekist með fram- kvæmdum ykkar að ná markmiðunum? — Við erum ánægðir, segir Jón Aðal- steinn og það er ekki laust við að glettnis- glampi sé í augum hans. Útkoman hefur uppfyllt allar okkar vonir og meira en það. Það hafa verið erfiðleikar á veginum og eru enn og verða sennilega alltaf. Það hefur gengið erfiðlega t.d. að útvega hús- næði fyrir blak- og badmintondeildirnar, enda hafa þær vaxið mjög hratt. En það eru margar ánægjustundimar. Víkingar urðu Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu 1974, Rvíkurmeistarar í blaki 1974 bæði karla og kvenna, tslandsmeistarar í hand- knattleik 1975. Félagið hefur átt á að skipa mjög góðum flokkum yngri knatt- spyrnumanna eins og sýnir sig á því að Víkingur eru Rvíkurmeistarar í 2. fl. 1974 og íslandsmeistarar í sama flokki 1974 og sama lið var nr 2, í Haustmóti 2. fl. Lið Jón Aðalsteinn Jónsson, formaður Víkings. félagsins í l.fl. í knattspyrnu var sterkast allra Rvíkurliða 1974, tapaði ekki leik en gerði einu sinni jafntefli. Fleiri sigra mætti nefna t.d. marga í handknattleik en þó þeir séu sætir þá metum við ekki síður þann árangur er náðst hefur í félagslega starfinu, hin auknu tengsl milli deilda og hinn váxandi skilning þeirra á milli. ★ Við beindum talinu að skilningi borgar og ríkisvalds á starfi íþróttafélaganna og Jón Aðalsteinn kvað hann ekki nógu góð- an. Eldri félögin hafa öll með eigin afli komið sér upp aðstöðu til íþróttaiðkunar og annars starfs. Hin yngri fá alla aðstöðu án fyrirhafnar á silfurbakka frá borg og ríki. Verið er að reyna að lagfæra þetta, sagði Jón, en það gengur hægt því fjár- magn sem til þess þarf, fæst ekki. Sem dæmi um þessi nýju félög, sem fá góða aðstoð eru Fylkir í Árbæ og Leiknir í Breiðholti. Hjá þeim hefur þegar verið sköpuð aðstaða eða verið að skapa að- stöðu, sem félögin sjálf eiga lítinn þátt í, heldur bæjarfélagið í heild. Ég samfagna þeim að fá þessa aðstoð, sagði Jón. Það er rétt stefna að veita hana. En eldri félögin vantar tilfinnanlega þessa aðstöðu ýmist alveg eða að hluta og þau þurfa aðstoð til að byggja hana upp. Nú hafa Víkingar samið við borgaryfir- völd um aðstöðu í Fossvogi sem verður að öllum líkindum tilbúin 1980. Samningur- inn er fólginn í því að Víkingar fá afnot af íþróttamannvirkjum í Fossvogsdal sem sínum heimavöllum. Þar verður byggður grasvöllur, malarvöllur auk áhorfenda- svæðis, búningsklefa og annarar aðstöðu. Þessu fagna allir Víkingar og þakka. — Finnst þér nægur sá móralski stuðn- ingur sem reykvískir áhorfendur veita reykvískum liðum þá er þau keppa á sínum heimavöllum og sá móralski stuðn- ingur sem borgaryfirvöld leggja reykvísk- um liðum fyrir frækilega sigra er varpa Ijóma á nafn Reykjavíkur? — I þessum efnum er erfitt að gera kröfur. f Reykjavík eru 10 félög með tilheyrandi félagsríg og ríg milli áhang- enda þessara félaga. Hvað borgarstjórn snertir er aðstaðan mjög ólík hér miðað við nágrannabæina t.d. Keflavík og Akra- nes. Það er metnaðarmál þeirra bæjarfél- aga að lið þeirra vinni bæjarfélaginu þann sóma að verða t.d. íslandsmeistari. Að launum liggja á lausu loforð og efndir um uppsetningu lýsingar við völl liðsins eða fjárfúlgu til þess að standa undir rekstri viðkomandi sigurliðs. En sé dýpra farið þá hefur skilningur ríkisvaldsins á starfi íþróttahreyfingarinn- ar verið allt of lítill. Ráðamenn vita um hið mikla uppeldis- og heilsubætandi starf sem hreyfingin vinnur, en meta það ekki í verki. fþróttahreyfingin vinnur með sínu heilsubætandi starfi fyrir unga sem gamla mikið fyrirbyggjandi starf. Það kostar rík- ið minna að eiga heildbrigt fólk en það sem þarf aðhlynningar við. Á fjárlögum eru um 80 millj. kr. veittar til íþróttahreyf- ingarinnar og þá meðtalið fé er fer til bygginga nýrra mannvirkja. Af þeirri upp- hæð eru einnig 16 millj. kr. til greiðslu á gömlum skuldum ríkisins við hreyfinguna vegna byggingaframkvæmda er ríkisvald- inu bar að styrkja samkv. lögum. Upp- hæðin, 80 millj. kr., er örugglega minna en 'A hluti þess, sem íþróttahreyfingin ætti að fá ef litið er á þjóðhagslegt starf hennar. - Grasvöllur. — Hver eru svo framtíðarplön Víkinga? — Ja, er ekki betra að segja lítið og láta verkin heldur tala, segir Jón Aðalsteinn en lætur svo undan er á er gengið: Hér 9

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.