Íþróttablaðið - 01.04.1975, Page 35

Íþróttablaðið - 01.04.1975, Page 35
 Fulltrúar og gestir á 45. fundi Sambandsráðs I.S.I. Sambandsráðsfundur ÍSÍ 45. fundur Sambandsráðs I.S.I. var hald- inn 2. og 3. maí s.l. að Hótel Loftleiðum. Fundurinn var afar vel sóttur og mættir voru fulltrúar frá öllum aðilum, sem rétt eiga til að senda fulltrúa. Gestir fundarins voru Liggjas Joesen form. fþróttasambands Færeyja og Þor- steinn Einarsson íþróttafulltrúi. Fornianni fþróttasamb. Færeyja var sérstaklega boðið að sækja þennan fund Sambandsráðs í tilefni þess, að fyrir dyr- um stendur að Færeyjar gerist sjálfstæður aðili að samstarfsnefnd fþróttasamtak- anna á Norðurlöndum, er heldur fund sinn hér í Reykjavík á þessu sumri. Að venju var lögð fram og flutt ýtarleg skýrsla af hálfu Framkvæmdastjórnar ISI og fulltrúar sérsambandanna fluttu einnig sínar skýrslur. Var það mál manna að þær hefðu að þessu sinni verið bæði ýtarlegri og skipulegri en áður hefur verið, enda hafði Framkvæmdastjórn ISI að nokkru undirbúið að svo gæti orðið. Miklar og fjörugar umræður urðu á fundinum, sem stóð yfir fyrri daginn frá kl.20.30 til 24.00 og síðari daginn frá kl.10.00 tilkl. 18.00. Sambandsráðsfundurinn afgreiddi m.a. skiptingu á fjárstyrk ISI til sérsamband- anna, sem að þessu sinni nam kr. 6,0 milljónum. Meðal samþykkta sem 45. fundur Sam- bandsráðs Í.S.Í. gerði voru þessar: 1. Tilmæli til menntamálaráðherra um að tillögur Í.S.I. yfir byggingu íþróttahúsa og sundlauga á næstu árum verði lagðar til grundvallar, en í þeim er m.a. lögð áhersla á sameiginleg afnot íþróttafélag- anna, skólanna og almennings. 2. Áskorun á Alþingi og ríkisstjórn um að fella niður hinn nýja flugvallarskatt. 3. Að kanna þátttöku íþróttasamtakanna í rekstri ferðaskrifstofu. 4. Tilmæli til íþrótta- og ungmennafél- aga og héraðssambanda að þau efni til sem fjölþættastar íþróttastarfsemi um Hvítasunnuhelgina. 5. Áskorun til Alþingis um að sam- þykkja framkomið frumvarp um slysa- tryggingar íþróttamanna. 6. Samþykkt var að efna til námskeiðs fyrir kennara sem kenna A-námskeið í Grunnskóla Í.S.Í. þar sem hið nýja náms- efni yrði kynnt nánar og samræmt. 7. Framkvæmdastjórn f.S.Í. var falið að kanna meðal sérsambandanna hvort þau telji tímabært að breyta þeirri reglu að halda ársþing á hverju ári. 27

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.