Íþróttablaðið - 01.04.1975, Qupperneq 43
jþróttalif á Akureyri:
Hæpið að skipting ÍBA í
tvennt verði til góðs
segir Haraldur M. Sigurðsson, form. KA.
Tvö Iþrótlafélög á Akureyri, Þór og
K.A. hafa verið mjög umrædd í íþrótta-
fréttum að undanförnft vegna þeirrar
ákvörðunar að félögin hætti að keppa
undir merki f.B.A. í knattspyrnu næsta
keppnistímabil. Skoðanir hafa verið mjög
skiptar um þetta mál. Sumir telja þetta
geta orðið til framdráttar fyrir knattspyrn-
una á Akureyri, þar sem nú muni fleiri fá
tækifæri til að reyna sig. Aðrir telja skipt-
inguna geta orðið félögunum dýrkeypta,
sérstaklega fjárhagslega. íþróttablaðinu
tókst að ná tali af formanni annars félags-
ins, þ.e.a.s. Haraldi M. Sigurðssyni for-
manni K.A. og innti hann nánar eftir
skiptingunni og fleiri málum, sem íþrótta-
forystan á Akureyri er að fást við.
-— Ég var persónulega á móti skipting-
unni, sagði Haraldur, og vildi fara aðra
leið til að lyfta knattspymunni úr þeim
öldudal, sem hún var komin í hér á
Akureyri. M.a. var ég mjög hræddur við
þann kostnaðarauka sem fylgir skipting-
unni því nú eru það tvö Iið sem kosta þarf
til þátttöku í íslandsmótum í hverjum
aldursflokki. Aftur á móti skal það tekið
fram, að takist okkur í K.A. með góðra
manna hjálp og auknum skilningi ráða-
manna á vandamálum okkar, að hefja
knattspyrnuna á Akureyri til vegs og virð-
ingar á ný, þá hefur skiptingin orðið til
góðs. Við erum mjög ánægðir með byrjun-
ina, þar sem við vorum svo heppnir að fá
til starfa á ný hjá K.A. hinn góðkunna
knattspyrnuþjálfara og fyrrverandi leik-
mann félagsins, Einar Helgason og bind-
um við miklar vonir við starf hans. Að
öðru leyti vil ég ekki segja meira um þessa
skiptingu, þar sem mikið hefur verið ritað
og rætt um hana þegar.
Nú er þátttaka í Islandsmótum í hóp-
íþróttum ákaflega dýr fyrir Akureyrarfél-
ögin vegna mikilla ferðalaga. Eins og
Haraldur gat um, þá verður skiptingin
ekki til að draga úr þessum kostnaði. Er
komið eitthvað til móts við Akureyringa
með greiðslu á þessum kostnaði af ein-
hverjum aðilum?
— Ferðakostnaður vegna þátttöku í
íslandsmótum hefur aukist ár frá ári, sagði
Haraldur — Nú er svo komið að jafnvel 1.
deildar lið stendur vart undir þeim gífur-
lega kostnaði sem er samfara þátttöku í
þessum mótum. í sambandi við þátttöku
okkar í 1. deildarkeppni í knattspyrnu
höfum við orðið að fara 7 ferðir suður á
keppnistímabilinu og þó svo að hand-
boltamenn hafi leikið tvo leiki I hverri
ferð, þá hafa þeir orðið að fara 4 ferðir.
Þess má geta að hver ferð kostar nú hátt í
hundrað þúsund krónur. Aðstöðumunur-
inn er því mikill miðað við félögin á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Þau þurfa að-
eins að fara eina ferð norður á keppnis-
tímabilinu og hefur maður heyrt að þeim
þætti það nógu dýrt. Mig langar til að taka
fram, að til þessa hefur ekki verið komið
til móts við okkur í þessum málum. Að
vísu er málið nú í athugun en f.B.A. hafði
forgöngu um að kynna forseta f.S.Í. málið.
Við bindum miklar vonir við hans úrræði
á vandamáli okkar. Á meðan við leggjum
alla okkar fjármuni í þessi ferðalög getum
við aldrei byggt félagið upp félagslega.
Þetta kemur m.a. niður á framkvæmdum
við svæði það, sem Akureyrarbær hefur
úthlutað okkur til íþróttaiðkana.
í framhaldi af þessu var Haraldur innt-
ur eftir því hvernig K.A. aflaði fjár til
íþróttastarfseminnar.
— Á árum áður var dansleikjahald
aðalfjáröflunarleið félgsins, og voru þær
tekjur nægilegar til að halda starfseminni
sæmilega vel gangandi. Nú er þessi fjár-
öflunarleið næstum því úr sögunni þar
sem allur kostnaður við slíkt samkomu-
hald er óhemju mikill. Nú höfum við
reynt ýmsar aðrar leiðir, svo sem bingó,
hlutaveltur, auglýsingaöflun. getraunir,
frjáls samskot og margt fleira. Auk þess
ber að nefna styrki frá Akureyrarbæ, sem
hafa farið hækkandi undanfarin ár og
lítilsháttar styrk frá ríkinu. Þó hefur aldrei
tekist að afla svo mikils fjár að starfsemin
hafi getað eflst nægilega mikið.
Þegar litið er til baka I sögu K.A. þá
kemur í ljós að félagið innleiddi körfu-
knattleik í bænum. Nú virðist þessi íþrótt
eiga erfitt uppdráttar hjá félaginu. Hver
kann orsökin að vera?
4. flokkur KA.
35