Íþróttablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 23

Íþróttablaðið - 01.04.1975, Blaðsíða 23
íþróttablaðrið 35 ára Frá fánahyllingu á Olympíuleikunum í Munchen 1972. Margs mmnast — eftir Orn Eiðsson íþróttablaðið er á tímamótum en liðin eru fjörutíu ár síðan það hóf göngu sína. Ganga þess hefur að vísu verið nokkuð skrykkjótt og sum árin hefur blaðið alls ekki komið út, enda er árgangurinn, sem nú er gefinn út sá 35., þannig að segja má raunar, að tvíheilagt sé hjá blaðinu. Útgef- andi [þróttablaðsins fyrstu árin var Kon- ráð Gíslason, kaupmaður og hinn ötuli íþróttaforystumaður. í ávarpi sínu til les- enda 1935 segir Konráð. „Með hverju ári sem líður, fjölgar þeim mönnum, bæði konum og körlum. sem leggja stund á íþróttir, og er það vel farið. Að sama skapi vex þörfin fyrir íþróttamenn til að fylgjast vel með öllu því, sem gerist á sviði íþrótt- anna. bæði heima fyrir og erlendis. Til þess að svo verði. er íþróttamönnum nauðsynlegt að hafa sitt eigið blað, sem eingöngu helgar sig málefnum þeirra. Með sögu íslenskra íþróttablaða fyrir augum, þarf að vísu nokkra bjartsýni til þess að ráðast í útgáfu nýs íþróttablaðs, en væntanlega ræður sú bjartsýni niðurlög- um síns versta andstæðings, sem er tóm- lætið. Við Islendingar erum sennilega eina þjóðin á hnettinum, af hinum svokölluðu menningarþjóðum, sem á ekkert opinbert málgagn fyrir íþróttamenn sína. Slíkt ástand er með öllu óviðunandi og ósæm- andi fyrir þjóð, sem dáir svo mjög hreysti- verk og hetjudáðir forfeðra sinna, að jafn- vel eftir þúsund ár hrífast niðjarnir af íþróttamönnunum Skarphéðni, Gretti og Gunnari á Hlíðarenda, svo að nokkrir séu nefndir. Þá má og minnast á það, að kröfumar um að tileinka sér háttu og siði annarra þjóða, vaxa hröðurn skrefum nreð þjóð vorri, og eru íþróttamenn þar engir eftir- bátar annarra. íþróttablaðið, sem nú hefur göngu sína, mun gera sér far um að hafa augun opin fyrir öllu því, senr gerist á sviði íþrótta- málanna, og flytja lesendum sínum inn- lendar og erlendar fréttir og greinar um íþróttamál. Það væntir þess, að íþróttamenn og íþróttaunnendur um land allt veiti því góðar viðtökur og greiði götu þess eftir bestu föngum. Ef þeir gera það, þá er harmsögu íslenzkra íþróttablaða lokið." Þessi ávarpsorð fyrsta ritstjóra og útgef- anda íþróttablaðsins árið 1935 gætu vel átt við í dag. Konráð Gíslason sagði okkur, er við ræddum stuttlega við hann um fyrstu starfsár íþróttablaðsins, að á þeim árum hefðu litlar eða engar reglulegar íþrótta- fréttir verið í dagblöðum eða útvarpi, og þörfin því verið enn brýnni á íþróttablaði. Hann sagðist einnig hafa orðið var við mikinn áhuga hjá mörgum á blaðinu, ekki síst út á landsbyggðinni. Þrátt fyrir erfið- leikana við útgáfuna hélt ég áfram í átta ár. sagði Konráð, en þá tók íþróttasam- bandið við blaðinu. Konráð sagði það sína skoðun, að nauðsyn væri á útgáfu íþrótta- blaðsins, þó að mikið birtist í fjölmiðlum af íþróttafréttum. Efni blaðsins þyrfti að sérhæfa, fræðsla um íþróttir og þjálfun ætti að fá meira rúm, kynning á starfi íþróttahreyfingarinnar, greinar urn frækna íþróttamenn og atburði. Þegar íþrótta- blaðinu er flett síðustu áratugi er hægt að fræðast þar urn íslenska íþróttasögu, sigra hennar og töp. í tilefni 40 ára afmælis Iþróttablaðsins er ætlunin að velja úr nokkra ánægjulega atburði í íslenskri íþróttasögu á þessu tímabili. Heimild okk- ar er að sjálfsögðu íþróttablaðið. Fyrsti sigur í milliríkjakeppni. Fyrsti sigur íslensks íþróttafólks í milli- ríkjakeppni var sigurinn yfir Norðmönn- um í sundi, en keppnin fór fram í Reykja- vík vorið 1948. Sú grein, sem skipti sköp- um í keppninni var 100 m baksund karla og hér kemur frásögn íþróttablaðsins frá því sundi: Óvæntur sigur Islendinga í baksundi. 100 m. baksund karla var hápunktur landskeppninnar. Fyrirfram var ógerlegt að segja um úrslitin, en eftir fyrri tíma keppenda að dæma átti Knut Belsby að vinna (1:16,8) og Guðm. Ingólfsson og Ólafur Guðmundsson( 1:18,4 og 1:20,2) að verða næstir, á undan Birgi Jakobsen (1:20,7). Skotið reið af, Belsby fékk bezt viðbragð, en Guðm. einria lakast. Eftir 25 m. er Belsby enn fyrstur, Guðm. annar, Ólafur þriðji og Jakobsen fjórði, en inn- byrðis munurinn lítill. Þessi röð hélst þar 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.