Íþróttablaðið - 01.04.1975, Page 49
Góð
skíðaaðstaða
á Akureyri
Björn Víkingsson og Katrín Frímannsdóttir. Þau urðu þrefaldir Islandsmeistarar á ungl-
ingamóti á skíðum um páskana.
Nýtt íþróttahús
á Akureyri
Akureyri á marga efnilega unglinga á
íþróttasviðinu. Þau sem hafa verið mest í
sviðsljósinu að undanfömu eru þau Katrín
Frímannsdóttir og Björn Víkingsson, en
þau urðu hvorki meira né minna en
þrefaldir íslandsmeistrar á unglingameist-
aramótinu á skíðum um páskana. Katrín
og Björn em bæði 16 ára gömul og eru
bæði í landsprófsdeild Gagnfræðaskólans
á Akureyri.
íþróttablaðið hitti þau að máli fyrir
nokkru og voru þau að vonum ánægð með
árangurinn um páskana og sögðu bæði að
gull.ið í ár yrði þeim hvatning til stærri
átaka næsta vetur.
— Við höfum æft daglega í vetur, það
er að segja þegar það hefur viðrað, sögðu
þau. Við erum meðal þeirra krakka hér á
Akureyri sem æfum hvað mest. Við reyn-
um að komast í fjallið minnst tvo tíma á
dag og mun lengur um helgar. Annars eru
það um 35 krakkar sem hægt er að segja
að æfi vel í fjallinu í vetur og hefur
myndast mjög góður andi í hópnum.
Þau Katrín og Björn eru bæði af skíða-
fólksættum. Katrín er dóttir skíðakonunn-
ar Karolínu Guðmundsdóttur og fór hún
með henni á skíði þegar hún var nokkurra
ára gömul, enda hæg heimatökin þar sem
fjölskyldan bjó í Skíðahótelinu í Hlíðar-
fjalli í 5 ár, en þá önnuðust Karólína og
maður hennar Frímann Gunnlaugsson
rekstur hótelsins. Björn er aftur á móti
náfrændi núverandi hótelstjóra Ivars Sig-
mundssonar, en þeir eru bræðrasynir.
I vetur hafa þau Björn og Katrín æft
undir stjóm Viðars Garðarssonar og sögðu
þau að hann ætti stærstan þátt í velgengni
þeirra og næst á listanum kæmi hin góða
aðstaða sem sköpuð hefur verið í Hlíðar-
fjalli.
— Aðstaðan í fjallinu gjörbreyttist eftir
að snjótroðarinn var keyptur til Akureyr-
ar. Nú er hægt að halda brautunum jafn-
hörðum og það hefur svo aftur orðið til
þess að fólk hefur sótt meira í brekkurnar
og slysum jafnframt fækkað, sagði Katrín.
Við fundum það greinilega hvað við bú-
um við góða aðstöðu hér, er við fórum til
keppni á Seyðisfirði í vetur. Undirbúning-
ur að mótinu var allur til fyrirmyndar, en
aðstaðan var ólíkt lélegri en hér. Við,
krakkamir frá Akureyri, megum því vera
þakklát við það sem gert hefur verið fyrir
okkur í Hlíðarfjalli.
Á teiknistofu Húsameistara Akureyrar-
bæjar er nú unnið að hönnun og teikningu
nýs svæðisíþróttahúss, sem rísa á rétt hjá
sundlauginni á Akureyri. Þar með hillir
undir það að gamall draumur rætist hjá
íþróttafólki bæjarins, en 12 ár eru nú
síðan fyrst var rætt um byggingu þessa
húss.
Samkvæmt upplýsingum Hermanns
Sigtryggssonar, íþróttafulltrúa Akureyrar-
bæjar, þá vantar nú um 2000 fermetra
gólfrými í íþróttasölum til að fullnægja
þörfum bama á skólaskyldualdri á Akur-
eyri. Á hverju hausti þarf að neita fjölda
fólks um aðstöðu til íþróttaiðkana og langt
er frá því að þörfum íþróttafélaganna sé
fullnægt. Með tilkomu þessa nýja húss
ætti ástandið eitthvað að skána, en álit
íþróttaforystunnar á Akureyri er að nýja
húsið verði fullnýtt frá fyrsta degi. Á
Akureyri er nú einnig áætlað að byggja
íþróttahús við Oddeyrarskóla, Glerárskóla
og Lundaskóla. Þegar öll þessi íþróttahús
verða komin í gagnið, má ætla að ástandið
fari að verða viðunandi.
Eins og áður sagði á nýja íþróttahúsið
að standa rétt við sundlaugina á Akureyri.
Sú staðsetning þykir heppileg með tilliti til
þeirra skóla sem nota eiga húsið, en það
eru Gagnfræðaskóli Akureyrar og
Menntaskólinn.
I nýja húsinu á að vera 27x45 metra
keppnissalur, sem hægt er að skipta niður
í þrjá minni sali. í tengslum við salinn
verða búningsklefar og böð og gert er ráð
fyrir 800 manna áhorfendasvæði með
möguleikum á stækkun fyrir250 manns til
viðbótar. I húsinu verður einnig leiksvið,
litlir æfingasalir, gufubaðstofa, heilsu-
rækt, skotbrautir, kaffistofa og aðstaða
fyrir félagsstarfsemi. Auk þess er gert ráð
fyrir aðstöðu til sjónvarps- og hljóðvarps-
upptöku í húsinu.
Notagildi íþróttahússins umfram leik-
fimikennslu og íþróttakeppnir getur orðið
mikið. T.d. má nota það fyrir hljómleika,
ráðstefnur, leiksýningar, vörusýningar
o.s.frv. Kaffistofa hússins verður miðuð
við 200 gesti. Ætlunin er að einkaaðilar
taki að sér rekstur hennar og að hún verði
opin eins og venjulegt veitingahús, án
tillits til þess sem er að gerast í húsinu
annars.
Haukur Haraldsson, tæknifræðingur
vinnur að teikningum af íþróttahúsinu.
Hann gerir ráð fyrir að þak stóra íþrótta-
salarins verði bogmyndað og gert úr lím-
tré. Hliðarálmur hússins verða á tveimur
hæðum. Við hönnun hússins verður fullt
tillit tekið til þarfa fatlaðs fólks, þannig að
það geti óhindrað haft not af húsinu.
41