Fréttablaðið - 27.06.2020, Side 2
Þeir sem hafa
komið með hunda
til okkar eru mjög ánægðir
og þetta hefur gefist mjög
vel.
Davíð Torfi Ólafs-
son, fram-
kvæmdastjóri
Íslandshótela
Veður
Norðaustan 5-13, skýjað og smá
væta sums staðar í dag, en þykknar
upp og fer að rigna á sunnanverðu
landinu í kvöld. Hiti 8 til 17 stig,
hlýjast sunnan til. SJÁ SÍÐU 38
Aldarafmæli fagnað
Rannveig Sigríður Sigurðardóttir fagnaði 100 ára afmæli í gær. Henni til heiðurs var farið í skrúðgöngu frá Sundlaug Kópavogs þar sem hún
stundar enn sundleikfimi. Skrúðgangan endaði í afmælisveislunni þar sem Rannveig beið og tók á móti gestum með bros á vör. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FERÐAÞJÓNUSTA Umhverfis- og auð-
lindaráðuneytið hefur veitt tíma-
bundna undanþágu á reglugerð
um hollustuhætti sem kveður á um
bann hunda á gististöðum til sjö
hótela Íslandshótela. Hundar eru nú
leyfðir á hótelum keðjunnar í Reyk-
holti, Stykkishólmi, Patreksfirði,
Húsavík, Fáskrúðsfirði, Öræfa-
sveit og á Grand Hóteli í Reykjavík.
Undanþágan gildir til 1. október á
þessu ári.
Í beiðni um undanþágu sem send
var ráðuneytinu 12. maí síðastlið-
inn kemur fram að ástæður beiðn-
innar séu fordæmalausar aðstæður
í þjóðfélaginu vegna COVID-19,
fækkun erlendra ferðamanna og
aukin hundaeign landsmanna.
„Hundaeign landsmanna hefur auk-
ist undanfarin ár og teljum við að
með því að bjóða gistingu þar sem
hundar eru leyfðir þá náum við að
koma til móts við og uppfylla þarfir
hundaeigenda.“
Undanþágan er bundin ýmsum
skilyrðum sem lúta til dæmis
að þrifum, hreinlæti og ábyrgð.
Hundar skulu vera í búrum á her-
bergjum hótelanna, þeir skulu ekki
valda ónæði, aðrir gestir hótelsins
skulu vera upplýstir um að hundar
séu leyfilegir og þeir eru aðeins
leyfilegir á ákveðnum svæðum
hótelanna. Þá skal áætlun um þrif
vera í samræmi við að hundar dvelji
á hótelunum.
Davíð Torf i Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandshótela, segir
íslenskt ferðafólk afar áhugasamt
um að taka hundinn með í ferða-
lagið og að breytingarnar fari vel
af stað. „Áhuginn er mikill og við
sjáum að það verður töluvert um
þetta þegar fjölskyldur fara í ferða-
lög í júlí,“ segir hann.
„Þeir sem hafa komið með hunda
til okkar eru mjög ánægðir og þetta
hefur gefist mjög vel. Það eru auð-
vitað strangar reglur og við förum
eftir þeim, hundar mega til dæmis
ekki koma nálægt veitingasal,“ segir
Davíð.
Þá segir hann Ísland að mörgu
leyti aftarlega á merinni hvað varð-
ar reglur um gæludýr. „Í mörgum
öðrum löndum hafa gæludýr verið
boðin velkomin á hinum ýmsu
stöðum en ekki eins mikið hér.
Þetta er þó að breytast og við erum
farin að sjá meira af því að gæludýr
séu boðin velkomin á kaffihús til
dæmis,“ segir hann.
„En auðvitað eru tvær hliðar á
þessu og það þarf að fara varlega.
Það er fólk með bráðaofnæmi og
annað slíkt svo það þarf að gæta
allra reglna en í heildina litið er
þetta jákvæð þróun myndi ég
segja,“ bætir Davíð við.
birnadrofn@frettabladid.is
Voffar landsins boðnir
velkomnir í ferðalagið
Sjö hótel Íslandshótela hafa fengið undanþágu frá umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytinu og eru hundar nú leyfilegir á ákveðnum svæðum hótelanna.
Framkvæmdastjórinn segir Íslendinga áhugasama um að taka hundinn með.
Hundar eru velkomnir á sjö hótel Íslandshótela í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
www.bjornsbakari.is
S TJ Ó R N M ÁL Þing f lok kar hafa
loksins náð saman um þinglok og
stefnt er að því að þingstörfum
ljúki snemma í næstu viku. Þetta
staðfestir Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í gær strandaði eingöngu á þing-
mannamáli Pírata um afnám refs-
inga fyrir vörslu neysluskammta
fíkniefna, en samningar höfðu
náðst við bæði Miðflokkinn og aðra
flokka stjórnarandstöðunnar.
Meirihlutinn vildi ekki að frum-
varp Pírata færi í atkvæðagreiðslu
á Alþingi en vildi vísa málinu til
ríkisstjórnarinnar. Það vildu Píratar
ekki sættast á.
Stjórnarmeirihlutinn gaf sig hins
vegar síðdegis í gær og mál Pírata
fer væntanlega til atkvæðagreiðslu
í þinginu á mánudag.
Þegar Píratar hófu málþóf vegna
f íkniefnamálsins í gær höfðu
Miðf lokksmenn verið í málþófi í
nokkra daga vegna frumvarps um
stofnun opinbers hlutafélags um
samgönguinnviði á höfuðborgar-
svæðinu. Samkomulag náðist um
málið sem afgreitt verður með
framhaldsnefndaráliti frá fjárlaga-
nefnd.
Enn á eftir að afgreiða fjölda mála
á þingi og stóð þingfundur fram
eftir kvöldi í gær. Gert verður hlé á
þingfundum um helgina en þing-
störfum svo lokið með atkvæða-
greiðslum eftir helgi. – aá
Samningar um
þinglok í höfn
Halldóra Mogensen, þingflokksfor-
maður Pírata. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DÓMSMÁL „Þetta eru gríðarleg von-
brigði, að það sé sakfellt í þessu
máli,“ segir Óttar Pálsson, verjandi
Lárusar Welding sem sakfelldur var
fyrir umboðssvik í Stím-málinu í
Landsrétti í gær.
Fimm ára fangelsisdómur yfir
Lárusi var staðfestur en refsingin
skilorðsbundin vegna þess hve mjög
málsmeðferðin hefur dregist á lang-
inn en Fjármálaeftirlitið kærði hátt-
semina til sérstaks saksóknara fyrir
rúmum áratug.
Óttar segir ekki hafa verið tekna
ákvörðun um hvort óskað verður
eftir leyfi til að áfrýja málinu til
Hæstaréttar.
Jóhannes Baldursson og Þor-
valdur Lúðvík Sigurjónsson voru
einnig sakfelldir í málinu og fengu
einnig skilorðsbundna fangelsis-
dóma. Jóhannes í átján mánuði en
Þorvaldur tólf. – aá
Lýsir miklum
vonbrigðum
með sakfellingu
2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð