Fréttablaðið - 27.06.2020, Qupperneq 4
BJÓÐUM UPP Á
35” - 40” BREYTINGARPAKKA
FRÁ ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI ÍSBAND
EIGUM FLESTAR GERÐIR TIL
AFHENDINGAR STRAX
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.302.000 KR.
ÁN VSK. 9.405.480 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
TÖLUR VIKUNNAR 21.06.2020 TIL 27.06.2020
73
einstaklingar eru með skráð
lögheimili á Bræðraborgarstíg 1
sem brann í vikunni.
57
prósent Íslendinga telja
kynþáttafordóma algenga
á Íslandi.
310
milljóna króna bónus mun
renna til stjórnarmanna Klakka,
vegna árangurs við sölu.
195
milljónir króna vantar upp á að
Ríkisútvarpið standi við skuldbind
ingar sínar í þjónustusamningi.
2,3
prósenta lækkun var á verði
sjávarafurða í erlendri mynt,
í maímánuði síðastliðnum.
Þrjú í fréttum
Kærunefnd,
hvatning og
kvikmyndir
Sigurður Ingi Jóhannsson
samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra
sendi bréf með
hvatningu til
sveitarfélaga
um að lækka
álagningarpró-
sentu, til að koma
til móts við hækkun
fasteignamats. Er þá fyrst og
fremst horft til atvinnuhúsnæðis.
„Ljóst er að tekjur sveitarfélaga
af fasteignaskatti hafa hækkað
verulega á umliðnum árum og
því mikilvægt að halda aftur af
frekari hækkunum á tímum sem
þessum,“ segir í bréfinu.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
mennta- og menn ing ar-
mála ráð herra
ætlar að höfða
mál gegn Hafdísi
Helgu Ólafs-
dóttur, skrif-
stofustjóra í
forsætisráðuneyt-
inu, sem kærunefnd
jafnréttismála taldi að ráðherrann
hefði brotið á þegar gengið var
fram hjá henni við ráðningu í emb-
ætti ráðuneytisstjóra.
Kristinn Þórðarson
formaður Sambands íslenskra
kvikmyndaframleiðenda
sagði að rannsaka
þyrfti greiðslur
Ríkisútvarpsins
til sjálfstæðra
framleiðenda.
Segir hann að ef
greiðslurnar séu
löglegar, þá séu þær
ekki í anda þjónustusamningsins.
Ríkisútvarpið hafi forskot á
markaðnum og ætti að fara fram
með góðu fordæmi.
STÓRIÐJA Fyrirhuguð framleiðslu-
stöðvun kísilmálmframleiðandans
PCC á Bakka gæti kostað Lands-
virkjun yfir 300 milljónir króna á
ársgrundvelli, ef miðað er við raf-
orkuverð upp á 25 dollara á mega-
vattstund og 80 prósenta lágmarks-
kaupskyldu PCC. Tilkynnt var í
vikunni að PCC myndi hætta starf-
semi tímabundið í lok júlímánaðar,
aðeins fjórum mánuðum eftir að
tilkynnt var um endurfjármögnun
fyrirtækisins. Engar ákvarðanir
hafa verið teknar innan Landsvirkj-
unar vegna stöðvunar PCC, segir
talsmaður Landsvirkjunar.
Orkuþörf PCC á Bakka á fullum
afköstum er um 456 þúsund mega-
vattstundir á ári. PCC er skuld-
bundið til að standa skil á greiðsl-
um til Landsvirkjunar þrátt fyrir að
starfsemin stöðvist, en í orkusölu-
samningum sem þessum (e. take or
pay) er algengt að kaupskylda hvíli
á kaupandanum, um að minnsta
kosti 80 prósent af umsaminni
orku, óháð því hvort rafmagnið er
notað eða ekki. Rúnar Sigurpálsson,
framkvæmdastjóri PCC á Íslandi,
vildi ekki upplýsa hver lágmarks-
kaupskylda PCC gagnvart Lands-
virkjun væri.
„Það hefur engin ákvörðun
verið tekin innan Landsvirkjunar
vegna boðaðrar, tímabundinnar
stöðvunar PCC Bakka. Sú stöðvun
á að koma til framkvæmda síðar í
sumar og þá munu mál eflaust hafa
skýrst,“ segir Ragnhildur Sverris-
dóttir, talsmaður Landsvirkjunar.
„PCC Bakki er mikilvægur við-
skiptavinur Landsvirkjunar og
mikilvægur atvinnuveitandi og við
vonum sannarlega að markaðsað-
stæður breytist til hins betra sem
fyrst,“ bætir Ragnhildur við.
Hugsanlegt tekjutap af minni
raforkukaupum Bakka, miðað við
ofangreindar forsendur, er ekki
stórt í samhengi rekstrar Lands-
virkjunar, en tekjur fyrirtækisins á
síðasta ári námu yfir 70 milljörðum
króna. Þó að smátt sé, eru tíðindin
þó enn eitt höggið á rekstur fyrir-
tækisins. Landsvirkjun lækkaði
nýlega verð til stórnotenda um allt
að 25 prósent vegna erfiðrar stöðu á
mörkuðum um heim allan. Áætlað
er að þær verðlækkanir muni kosta
einn og hálfan milljarð á þessu ári.
Öllu stærra áhyggjuefni Lands-
virkjunar er að raforkuverð í Evr-
ópu hefur hrunið á undanförnum
mánuðum. Nýr orkusölusamning-
ur Landsvirkjunar og Norðuráls,
sem rekur álverið á Grundartanga,
tók gildi í nóvember síðastliðnum
og er tengdur við Nord Pool-raf-
orkuverðið í Evrópu. Meðalverð á
Nord Pool stóð í 42 evrum að með-
altali í nóvember síðastliðnum, en
í lok þessarar viku stóð sama verð í
1,59 evrum á megavattstund og því
væntanlega glatt á hjalla á Grundar-
tanga um þessar mundir.
Um er að ræða meira en 96 pró-
senta lækkun og því einsýnt að
Norðurál er væntanlega sá við-
skiptavinur Landsvirkjunar sem
borgar lægsta verðið um þessar
mundir. Fram kom í ársskýrslu
Landsvirkjunar fyrir síðasta ár, að
áhættuvarnir gegn sveiflum á Nord
Pool-raforkumarkaðnum séu ekki
fyrir hendi. Norðurál kaupir alla
jafna um 10 prósent af því rafmagni
sem Landsvirkjun framleiðir.
thg@frettabladid.is
Annað högg á Landsvirkjun
Þrátt fyrir að kísilmálmbræðsla PCC á Bakka muni stöðvast, mun fyrirtækið enn þurfa að standa skil á
lágmarksgreiðslum til Landsvirkjunar, sem hefur engar ákvarðanir tekið vegna stöðvunar PCC.
Endurfjármögnun nýlokið
Tilkynnt var í apríl á þessu ári að
rekstur PCC á Bakka hefði verið
fjárhagslega endurskipulagður.
Samkvæmt samkomulaginu
var kísilverinu veittur frestur á
greiðslu vaxta og afborgana og
þá mun þýska fyrirtækið PCC SE,
sem á 86,5 prósenta hlut á móti
13,5 prósenta hlut Bakkastakks,
leggja fram 40 milljónir Banda
ríkjadala, jafnvirði 5,6 milljarða
króna, í reksturinn í formi hlut
hafaláns. Bakkastakkur er félag
í eigu íslenskra lífeyrissjóða og
Íslandsbanka. Framlag Bakka
stakks var víkjandi og breytan
legt skuldabréfalán, með 8,5
prósenta vöxtum. Árlegar vaxta
greiðslur af bréfinu áttu að nema
800 milljónum króna.
Önnur af tveimur túrbínum við Kröflu er nú stopp en það er ekki sagt tengjast stöðvun PCC. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð