Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 8

Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 8
Við töldum að þessi úrskurður væri ekki í lagi og þess vegna fórum við í þetta mál. Einar Þór Sverrisson lögmaður Flug og gisting í viku. Verð frá kr. 69.900 plús 15.000 Vildarpunktar. Verð miðast við tvo fullorðna og tvö börn á Parque Cristobal. Ferðadagar 29. ágúst, 12. september og 5. desember. Bókanlegt til 8. júlí. Bókaðu Tenerife í dag REYKJAVÍK Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að setja upp svokölluð smáhýsi fyrir heim- ilislausa á Stórhöfða. Líkt og venju- lega þegar húsin eru rædd eru íbúar klofnir í afstöðu sinni. Segja hug- myndina góða en vilja alls ekki fá þá sem þurfa að nýta sér þetta úrræði inn í sitt hverfi. Meirihluti borgarráðs sagði í bókun sinni á borgarráðsfund- inum að hann myndi halda áfram að leggja áherslu á skaðaminnk- andi nálgun og hugmyndafræði um „húsnæði fyrst“ í þjónustu við heimilislaust fólk með miklar og f lóknar þjónustuþarfir. Einnig að borgin myndi halda áfram að fjölga íbúðum og húsum til leigu fyrir heimilislaust fólk. Borgar f ulltr úar Sjálfstæðis- f lokksins bentu á að val á stað- setningu fyrir smáhýsi hefði gengið mjög brösuglega og telja það mikil- vægt að kynna valkosti betur fyrir íbúum þeirra hverfa í Reykjavík þar sem fyrirhugað er að koma fyrir smáhýsum. Aðeins ein jákvæð umsögn um smáhýsin barst Reykjavíkurborg. Þar segir að á Facebook-síðunni Íbúar í Grafarvogi hafi heyrst nokkrar mótbárur en langflestum þótt þetta jákvæð og góð aðgerð. „Bréfritari vonar að skipulaginu verði ekki breytt vegna örfárra en hárra radda og telur f lesta íbúa Grafarvogs fagna því að gefa heim- ilislausum heimili,“ segir í umsögn sem Kristján Lindberg Björnsson skrifar undir. Aðrar eru ekki eins jákvæðar eins og Fréttablaðið greindi frá um miðjan mánuðinn. Nokkrir íbúar Grafarvogs sendu umsögn þar sem þeir lýsa þeir sig mjög mótfallna hugmyndinni. Benda þeir á að smáhýsin „séu fyrir- huguð í nokkurra metra fjarlægð frá vinsælu útivistarsvæði og göngustíg með fram voginum og Stórhöfða“. Stígurinn sé nýttur í tómstundir barna og íþróttastarf og smáhýsin myndu „skemma“ fallega gönguleið. „Smáhýsin og íbúar þeirra eigi ekki góða samleið með þessu úti- vistarsvæði. Galið sé að setja upp smáhýsi fyrir óreglufólk inn á mitt svæðið,“ segir í umsögn íbúa. Þetta kvittar borgin ekki upp á og segir að ekki sé tekið undir að tillagan hafi veruleg áhrif á göngu- leiðina meðfram voginum. Hún verði áfram til staðar í óbreyttri mynd. Staðsetning smáhýsanna hefur heldur ekki í för með sér útsýnis- skerðingu frá öðrum byggingum í grenndinni en íbúar smáhýsanna fá hins vegar fallegt útsýni yfir vog- inn. Ekki er tekið undir að smáhýsi við Stórhöfða eyðileggi útsýni frá íbúðabyggðinni hinum megin við voginn, segir enn fremur í útskýr- ingum borgarinnar. Eigendur nokkurra fyrirtækja við Stórhöfða lýsa sig andvíga smá- hýsunum. Kaffitár gerir alvarlega athugasemd við tillöguna þar sem hún gæti rýrt verðgildi eignarinnar og haft truflandi áhrif á starfsem- ina. Flísabúðin á Stórhöfða 21, lýsir sig alfarið mótfallna smáhýsunum, sem gætu haft áhrif á rekstur versl- unarinnar og veitingastaðurinn Nings mun trúlega ekki endurnýja leigusamning ef af þessu verður. benediktboas@frettabladid.is Heimilislausir fá heimili í Grafarvogi Íbúar í Grafarvogi eru klofnir í afstöðu sinni gagnvart smáhýsum fyrir heimilislausa. Sumir fagna og bjóða nýja gesti velkomna en aðrir segja það galið hjá borginni að koma óreglufólki fyrir við gönguleið nálægt sjó. Borgin hefur samþykkt að húsin muni rísa. Forstöðumaður yfir öllum smáhýsunum Forstöðumaður verður yfir öllum smáhýsum og veitir íbúum við- eigandi stuðning ásamt starfs- mönnum Vettvangs- og ráð- gjafarteymis borgarinnar. Íbúar hafa félagsráðgjafa hjá Þjónustumiðstöð sem aðstoðar þá eftir bestu getu, auk þess sem þeir fá stuðning teyminu. Eftir að einstaklingur fær úthlutað í smá- hýsi skrifar hann undir þjónustu- samning og fylgjandi húsreglur. Forstöðumaður mun tryggja hreinlæti og þrifnað við smá- hýsin, segir í bréfi umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar. Lóðin austur af Stórhöfða 17. Þar ætlar borgin að byggja smáhýsi fyrir heimilislausa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DÓMSMÁL Leikarinn Atli Rafn Sigurðsson vann í gær mál sitt gegn Persónuvernd fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur. Var úrskurður stofnunarinnar frá 16. október árið 2018 felldur úr gildi. En samkvæmt honum bar Borgarleikhúsinu ekki að afhenda Atla gögn um nöfn og efni ásakana sem ollu því að honum var sagt upp störfum. Taldi dómari verulega ágalla á úrskurði Persónuverndar, meðal annars að hann hefði verið byggð- ur á nýjum lögum sem hefðu ekki tekið gildi, og að lög um persónu- vernd takmarki ekki rétt sem við- komandi kunni að eiga samkvæmt öðrum lögum, svo sem upplýsinga- lögum og stjórnsýslulögum. Var Persónuvernd einnig gert að greiða Atla Rafni 900 þúsund krónur í málskostnað. „Það er ánægjulegt að hafa unnið þetta. Við töldum að þessi úrskurður væri ekki í lagi og þess vegna fórum við í þetta mál,“ segir Einar Þór Sverrisson, lögmaður Atla. Óvíst er hvað gerist næst, enda málið án fordæma og ekki er búið að úrskurða beint um afhendingu gagnanna. Segir Einar að það eigi eftir að koma í ljós hvaða réttaráhrif málið hafi. Samkvæmt Einari Karli Hall- varðssyni ríkislögmanni, sem flutti málið fyrir hönd Persónuverndar, hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort að því verði áfrýjað til Landsréttar. „Dómurinn verður til- kynntur viðeigandi stofnun, Per- sónuvernd í þessu tilviki, og svo kemur ákvörðun,“ segir hann. Fresturinn til áfrýjunar eru fjórar vikur. – khg Réttaráhrif dóms gegn Persónuvernd óljós Leikarinn Atli Rafn og lögmaður hans, Einar Þór. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.