Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 10
Tiltekin byggðarlög
nánast standa og
falla með útkomunni úr
excel- skjali útgerðarinnar á
staðnum.
Þóroddur
Bjarnason,
prófessor við HA
Það yrði algjört
stórslys ef allt færi á
hliðina og það þyrfti að
endurráða í allar stöður og
þjálfa fólk upp á
nýtt.
Frosti Logason
útvarpsmaður
Ég veit ekkert
hvernig þetta fer. En
ef þetta fer á hinn veginn þá
er 40 ára starf runnið út í
sandinn og eftir nokkur ár
verður þetta orðin önnur
geðdeild Landspítalans.
Hendrik Berndsen,
blómaskreyt-
ingamaður
ára
HEILBRIGÐISMÁL Búist er við spenn-
andi kosningum á aðalfundi SÁÁ á
þriðjudag en þar verður kjörinn
nýr formaður og 16 stjórnarmenn
í 48 manna stjórn samtakanna.
Tveir hafa boðað framboð til for-
mennsku, Þórarinn Tyrfingsson,
fyrrverandi formaður og yfirlæknir
til áratuga, og Einar Hermannsson,
sem sagði sig úr stjórn SÁÁ í vor eftir
hatrammar deilur milli meðferðar-
sviðsins og framkvæmdastjórnar.
Núverandi formaður, Arnþór Jóns-
son, hefur ákveðið að stíga til hliðar
eftir aðalfund.
Vill efla grasrótarstarf
og verja faglega meðferð
Frosti Logason útvarpsmaður
ákvað að bjóða sig fram til stjórnar
eftir að hafa fylgst með átökunum
í vor. Hann hefur verið meðlimur í
nokkur ár en ekki komið beint að
starfinu fyrr.
„Ég fór að hafa áhyggjur af stöð-
unni þegar ég sá að framkvæmda-
stjórnin hafði sagt upp fjölda starfs-
manna og Valgerður Rúnarsdóttir
yfirlæknir sagt sínu starfi lausu til
að mótmæla því,“ segir Frosti. „Eftir
að hafa skoðað þessi mál komst ég
að þeirri niðurstöðu að framtíð SÁÁ
væri best borgið undir stjórn Einars
Hermannssonar.“
Segir hann Einar tala fyrir heil-
brigðustu sýninni, það er að ef la
grasrótarstarf samtakanna og
standa vörð um faglega hluta með-
ferðarstarfsins þannig að fram-
kvæmdastjórnin sé ekki að hlutast
til um það.
Nýlega skrifuðu 57 starfsmenn
undir yfirlýsingu til stuðnings
Einari og gegn framboði Þórarins.
Þar á meðal Víðir Sigrúnarson yfir-
læknir og Ingunn Hansdóttir yfir-
sálfræðingur. Frosti segist ekki geta
neitað því að óttast um starfsemina
ef framboð Þórarins og fylgismanna
Stefnir í sögulegar kosningar hjá SÁÁ
Á aðalfundi SÁÁ munu tvær fylkingar keppa um formann og 16 stjórnarstöður. Stuðningsmaður Einars Hermannssonar óttast
fjöldauppsagnir á spítalanum en stuðningsmaður Þórarins Tyrfingssonar óttast að Vogur verði að annarri geðdeild Landspítalans.
Hart er deilt um framtíð SÁÁ og spítalans að Vogi og vonast er til að aðalfundur skeri á hnútinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
BYGGÐAMÁL „Það getur verið tví-
eggjað sverð fyrir lítil og meðalstór
byggðarlög þegar eitt fyrirtæki er
burðarásinn í atvinnulífinu,“ segir
Þóroddur Bjarnason, prófessor við
Háskólann á Akureyri og einn helsti
sérfræðingur landsins í byggða-
málum. „Við þekkjum þetta vel úr
til dæmis sjávarútveginum þar sem
tiltekin byggðarlög nánast standa
og falla með útkomunni úr excel-
skjali útgerðarinnar á staðnum.“
Á fimmtudag var tilkynnt að
framleiðsla kísilverksmiðjunnar
PCC á Bakka við Húsavík yrði
stöðvuð og á níunda tug starfs-
manna sagt upp. Bæði stjórnar-
formaður fyrirtækisins og sveitar-
stjóri Norðurþings hafa sagt að um
tímabundna stöðvun sé að ræða og
vonast sé til þess að framleiðsla geti
hafist á ný um áramót.
Þóroddur segir f jölbreytni í
atvinnulífinu einn mikilvægasta
þáttinn í að styrkja byggðir lands-
ins. Að sjávarútvegur, ferðaþjón-
usta, stóriðja, fiskeldi og opinber
starfsemi séu ekki töfralausnir hver
um sig en geti saman skapað traust-
ar undirstöður lítilla samfélaga.
„Uppbygging iðnaðarsvæðisins á
Bakka hefur þannig styrkt atvinnu-
lífið í Suður-Þingeyjarsýslu, bæði
með þeim störfum sem hafa skap-
ast og með aukinni fjölbreytni í
atvinnulífi,“ segir Þóroddur. „Það
hefur hins vegar verið ákveðinn
veikleiki að kísilverið hefur staðið
að mestu undir starfseminni á
svæðinu eins og sést á því að breyt-
ingar í excel-skjali stjórnenda PCC
hefur í för með sér umtalsvert högg
fyrir samfélagið.“
Líkt og stjórnendur PCC telur
Þóroddur víst að um skamm-
tímaaðgerð sé að ræða. Hún sé þó
áminning til fólks um að fyrirtæki
komi og fari en innviðaáhrifin ráð-
ist af innviðum og seiglu samfélags-
ins. Óttast hann ekki um framtíð
Húsavíkur í þessu samhengi.
– khg
Stöðvunin á Bakka áminning um nauðsyn fjölbreytni atvinnulífs
hans verður ofan á, það er að stór
hluti starfsfólksins myndi einfald-
lega segja upp.
„Það yrði algjört stórslys ef allt
færi á hliðina og það þyrfti að
endurráða í allar stöður og þjálfa
fólk upp á nýtt,“ segir hann. „Undir
stjórn Valgerðar hefur verið mikil
starfsánægja og miklu minni starfs-
mannavelta en á árum áður.“ Segist
hann þó vera bjartsýnn á að sigur
vinnist á aðalfundi.
Verið að slíta Vog frá SÁÁ
„Ég er búinn að starfa með Þórarni
frá upphafi og hann hefur búið til
þessa meðferð í raun,“ segir Hendrik
Berndsen blómaskreytingamaður,
eða Binni í Blómaverkstæðinu.
Binni var einn af þeim sem stofnuðu
SÁÁ árið 1977 eftir að hafa lært af
meðferðarstarfi í Freeport í Banda-
ríkjunum. Hann býður sig nú fram
í 48 manna stjórnina.
Þrátt fyrir yfirlýsingu starfs-
fólks telur Binni að eina leiðin til
að ná sátt innan samtakanna sé að
Þórarinn verði kjörinn formaður.
Spyr hann sig hvað sé að gerast í
starfsmannahópnum. „Það er ekki
hægt að lækna okkur fyllibytturnar,
ekki frekar en fyrir 40 árum síðan.
En það er hægt að kenna okkur
leið til að lifa lífinu lifandi þegar
við komum út úr meðferð,“ segir
hann. „Frá því að ég var 18 til 32 ára
var ég búinn að fara 28 sinnum inn
á Kleppsspítala, því það var eina
meðferðin á sínum tíma. Færustu
geðlæknar og sálfræðingar gátu
ekki læknað mig þá frekar en í dag.
Þess vegna stofnuðum við SÁÁ.“
Telur Binni að þeir sem skrifi
gegn núverandi stjórn og fram-
boði Þórarins séu að reyna að slíta
spítalann á Vogi frá samtökunum
sjálfum. Einnig efast hann um að
full heilindi séu að baki öllum 57
undirskriftunum og telur starfsfólk
hafa verið beitt þrýstingi.
„Ég veit ekkert hvernig þetta fer.
En ef þetta fer á hinn veginn þá er 40
ára starf runnið út í sandinn og eftir
nokkur ár verður þetta orðin önnur
geðdeild Landspítalans.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
SEYÐISFJÖRÐUR Á bæjarráðsfundi
Seyðisfjarðar var málefni tollvarða
tekið upp að nýju. Í byrjun mán-
aðarins gagnrýndi bæjarráð upp-
sagnir hjá tollinum og að útsvars-
tekjur Seyðisfjarðarkaupstaðar
væru rýrðar með því að leggja niður
störf og færa þau til Reykjavíkur.
Líneik Anna Sævarsdóttir spurði
Bjarna Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, út í stöðuna á
Alþingi en samkvæmt svörum frá
ráðuneytinu hefur engum tollverði
á Austurlandi verið sagt upp. Fjórir
tollverðir starfi þar. Ef senda þurfi
tollverði frá Reykjavík austur á land
kosti dagurinn 61 þúsund í f lug,
15-20 þúsund í bílaleigubíla sem og
gistingu en uppihald er í kringum
fjögur þúsund krónur. Það fer þó
eftir því hvort morgunmatur er
innifalinn í gistingu.
Þetta þykir bæjarráði Seyðisfjarð-
ar furðuleg skýring og segir: „Ljóst
er að hér er á ferðinni grafalvarlegt
mál,“ og skorar á stjórnvöld að gera
rannsókn á ferli þessa máls er snýr
að fækkun aðstoðarmanna toll-
embættisins á Seyðisfirði og varðar
tollskoðun við móttöku farþega- og
bílaferjunnar Norrænu. „Það er ekki
einungis höggvið skarð í opinbera
starfsmannaf lóru kaupstaðarins
heldur er um rangfærslur að ræða í
þeim upplýsingum sem okkur hafa
verið sendar varðandi málið sem
fást ekki staðist.“ – bb
Engum tollverði hefur verið sagt upp
Enginn virðist vita hvort tollurum hafi verið sagt upp störfum eða ekki.
Stórt sé spurt og nóg um svör en þau eru öll þvers og kruss. MYND/TOLLURINN
2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð