Fréttablaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 18
ENSKI BOLTINN Liverpool hafði gert harða atlögu að enska meistara­ titlinum vorið 2014 en látið í minni pokann fyrir Manchester City á lokasprettinum. Þegar Klopp tók við liðinu var það að jafna sig á brotthvarfi Stevens Gerrard og sat í 10. sæti deildarinnar. Á fyrsta blaðamannafundi sínum sem knattspyrnustjóri Liverpool sagði Þjóðverjinn félagið vera sér­ stakt. Markmiðið væri að vera orðið samkeppnishæft lið til þess að vinna alla þá titla sem í boði eru heima fyrir og í Evrópu innan fjögurra ára. Nú tæpum fimm árum síðar hefur hann skilað bæði sigri í Meistaradeild Evrópu og langþráð­ um Englandsmeistaratitli. Í fyrsta leik Klopp við stjórn­ völinn gerði Liverpool markalaust jafntef li við Tottenham Hotspur. Þrír leikmenn sem hófu þann leik eru enn í leikmannahópi Liverpool en það eru þeir James Milner og Divock Origi sem eru í rulluhlut­ verki hjá liðinu og Adam Lallana sem hefur verið í litlu hlutverki hjá Klopp vegna meiðsla sinna. Klopp fór með Liverpool í úrslit enska deildarbikarsins vorið 2016 þar sem liðið tapaði fyrir Man­ chester City eftir vítaspyrnukeppni. Sama vor fór liðið í úrslitaleik Evr­ ópudeildarinnar í fyrsta skipti síðan árið 2007 en þar reyndist Sevilla ofjarl Liverpool­liðsins. Á fyrsta keppnistímabili Klopp á hliðarlínunni hafnaði Liverpool í áttunda sæti ensku úrvalsdeildar­ innar. Fyrstu tvö tímabilin sannfærðu eigendurna um langtímaplanið Þessi árangur varð til þess að eig­ endur Liverpool gerðu nýjan sex ára samning við Klopp og þjálfara­ teymi hans. Klopp sá svo til þess að Liverpool myndi taka þátt í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn síðan tímabilið 2014/1015 með því að lenda í fjórða sæti ensku úrvals­ deildarinnar vorið 2017. Fjórða sætið varð aftur stað­ reyndin leiktíðina þar á eftir en þann vetur festi bakvarðaparið Andrew Robertson og Trent Alex­ ander­Arnold sig í sessi hjá liðinu og Virgil van Dijk var keyptur til félags­ ins í janúarglugganum árið 2018. Koma hollenska varnarmannsins inn í varnarlínu Liverpool átti stór­ an þátt í því að Liverpool komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir ellefu ára fjarveru frá úrslita­ leiknum. Þar brást markvörðurinn Loris Karius samlanda sínum og Liverpool laut í lægra haldi fyrir Real Madrid. Þá skorti Liverpool breidd sókn­ arlega til þess að takast á við meiðsli Mohamed Salah sem meiddist á öxl eftir viðskipti sín við Sergio Ramos í leiknum. Þetta var sjötta tap Klopp í síðustu sjö úrslitaleikjum hans. Ári seinna fór Klopp hins vegar aftur með lærisveina sína í úrslita­ leik Meistaradeildarinnar og þá vannst sjötti titillinn í sögu félags­ ins eftir sigur gegn Tottenham Hotspur á fallegu vorkvöldi í Madr­ íd. Á þeim tímapunkti hafði Klopp tryggt sér þjónustu brasilíska markvarðarins Alisson Becker sem reyndist mikill happafengur. Þá var Fabinho mættur inn á miðsvæðið til þess að stöðva enn frekar þann leka sem hafði verið á mörkum á fyrstu misserunum í stjórnartíð Klopp. Á leið sinni í átt að sjötta Meist­ aradeildartitlinum átti Liverpool eina af mögnuðustu endurkomum í sögu keppninnar. Eftir 3­0 tap á móti Barcelona í fyrri leik liðanna í undanúrslitum á Nou Camp mætt­ ust liðin í seinni leiknum á Anfield. Til þess að bæta gráu ofan á svart voru Mohamed Salah og Roberto Firmino sem hafa myndað eitrað framherjaþríeyki með Sadio Mané í Bítlaborginni síðustu árin meidd­ ir. Liverpool með sína mögnuðu stuðningsmenn og hápressuleik­ stíl þýska gleðigjafans Klopp að vopni snéri taflinu sér í vil með 4­0 sigri. Þar var það Divock Origi sem hefur oft reynst Klopp vel á ögur­ stundum sem reyndist hetja Liver­ pool­liðsins. Titilbaráttan í ensku úrvalsdeild­ inni á síðustu leiktíð var í raun lygi­ lega jöfn. Liverpool hafði þá betur í fyrstu sex deildarleikjum sínum sem var félagsmet. Á jóladag árið 2018 var Liverpool með fjögurra stiga forskot á Manchester City. Áður en 2019 gekk í garð hafði Liverpool aukið við forystu sína og um áramótin var liðið með níu stigum meira en Manchester City. Ótrúlegur lokasprettur Manchester City varð hins vegar til þess að 97 stig sem er þriðja besta stigaskot í sögu ensku efstu deildarinnar dugði Liverpool til þess að binda endi á eyðimerkurgöngu sína. Vonbrigðin urðu eldsneyti á tankinn hjá leikmönnum Það varð ljóst í upphafi yfirstand­ andi leiktíðar að hungrið í Liverpool til þess að bæta upp fyrir svekk elsið að hafa ekki náð að landa enska meistaratitlinum varð til efla liðið enn frekar. Aftur unnust fyrstu sex deildarleikirnir og Manchester City var ekki eins öflugt og árið áður. Liverpool hefur haldið dampi alla leiktíðina og hefur einungis beðið ósigur í einum leik sem var óvænt tap á móti Watford og gert jafntefli við erkifjendur sína, Manchester United og Everton. Tapið gegn Watford í lok febrúar batt enda á 44 leikja hrinu Liverpool án þess að láta í minni pokann sem er met í sögu ensku efstu deildarinnar. Munurinn hefur jafnt og þétt aukist milli Liverpool og Manch­ ester City. Tap Manchester City gegn Chelsea í vikunni varð svo til þess að Liverpool varð fyrsta liðið til að vera búið að vinna ensku Jürgen Klopp ári of seinn að skila titlinum Jürgen Klopp var ráðinn knattspyrnustjóri Liver- pool í byrjun októbermánaðar árið 2015 en hann tók við starfinu af Brendan Rodgers sem hafði stýrt liðinu í þrjú keppnistímabil og var fyrsti stjórinn frá því á sjötta áratug síðustu aldar til þess að skila ekki titli í hús á sínum fyrstu þremur árum í starfi. Liverpool sem leikur undir stjórn Jürgen Klopp er nú handhafi fjögurra titla en liðið hefur unnið Meistaradeild Evrópu, heimsmeistaramót félagsliða, Ofurbikarinn og Englandsmeistaratitilinn síðasta árið. MYND/GETTY Jürgen Klopp sagði á sínum fyrsta blaðamanna- fundi að hann myndi vera með lið í allra fremstu röð innan fjögurra ára. úrvalsdeildina þegar sjö umferðir eru enn eftir af deildarkeppninni. Þegar Liverpool lagði Southamp­ ton með fjórum mörkum gegn engu í febrúar síðastliðnum náði liðið 22 stiga forystu á Manchester City en sá munur hafði aldrei verið milli liðanna í tveimur efstu sætunum í ensku úrvalsdeildinni. Sigur liðsins gegn West Ham United í lok febrúar var svo 18. sigurleikurinn í deildinni í röð sem er met í efstu deild á Englandi. Þá skráði Klopp sig enn fremur í sögu­ bók Liverpool með því hafa þar betur í sínum 21. heimaleik og jafna þar met Bill Shankly frá því árið 1972. Það var sömuleiðis met í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Metið var enn frekar bætt með sigri gegn Bournemouth í síðasta leik fyrir hlé vegna kórónuveirufaraldursins í byrjun marsmánuðar og sigri í fyrsta heimaleiknum eftir hléið á móti Crystal Palace. hjorvaro@frettabladid.is Tilfinningarnar báru Klopp ofurliði þegar titillinn var í höfn Klopp var gripinn í viðtal þegar titillinn var í höfn en þegar hann ræddi við Greame Souness, fyrrverandi leikmann og knatt- spyrnustjóra hjá Liverpool, brast hann í grát undir lok viðtalsins. Það var ljóst að titillinn hafði mikla merkingu í huga Klopp sem sendi þakkir hingað og þangað til aðila í Liverpool-samfélaginu. Þá sagði hann íbúa í Liverpool lifa fyrir tvennt, knattspyrnu og tón- list. Það væri honum mikils virði að hafa getað glatt þá jafn inni- lega og raun bar vitni með því að færa þeim enska meistaratitilinn. Klopp ræddi svo við sjónvarps- stöð Liverpool í gær þar sem hann fór yfir andartökin þegar ljóst var að titillinn væri að verða að veruleika. Þjóðverjinn sagðist hafa hringt í fjölskyldu sína á Facetime þegar í þann mund sem lokaflautið gall á Stamford Bridge. Hann hafi átt innilega stund með fjölskyldunni sem hann getur ekki hitt þessa dagana sökum ástandsins vegna kórónaveirunnar. Þau hafi skipst á kærleiksríkum orðum þegar titillinn var að koma í hús. Þar á eftir fagnaði Klopp vel og innilega með leikmönnum sínum á hótelgarði í grennd við Melwood-æfingasvæðið. Seinna um kvöldið sýndi Klopp magnaða takta á dansgólfinu. Klopp lét hafa eftir sér í samtali við Skysports að hann hefði að sínu mati verið betri dansari en knattspyrnumaður á sínum tíma. Í spjalli sínum við sjónvarps- stöð Liverpool dásamaði hann svo leikmannahóp sinn sem hann segir afar náinn auk þess að vera stútfullur af hæfileikum. Klopp hefur fengið mikið lof fyrir að fá til liðs við sig leikmenn sem hafa hvort í senn mikla hæfi- leika og mikinn karakter. Klopp segir kjarnann vera sterkan í hópnum og andrúmsloftið í bún- ingsklefanum sé einstakt. 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.