Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 20

Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 20
Circle Circle er ný heimilislína frá Reykja- vík Trading Co. sem unnin er í sam- starf i við keramik-listakonuna Þóru Breiðfjörð og valda veitinga- staði í nærumhverfi í Hafnarfirði. Hjónin og hönnuðirnir Anthony Bacigalupo og Ýr Káradóttir eru fólkið á bak við Reykjavík Trading Co. og hafa þau safnað saman, hannað og útbúið nýjar vörur og nýta til þess matarafganga. Matarafgöngum er safnað saman frá veitingastöðum og kaffihúsum sem liggja í ákveðnum radíus út frá heimili þeirra hjóna. Úr þeim verða til nýir hlutir fyrir heimilið og hinir endurnýttu hlutir fá önnur hlutverk í formi keramiks eða vefn- aðarvöru. Hlutir úr „Circle“-línunni verða til sýnis í verslunar- og sýningar- rými R.T.Co., The Shed í Hafnar- firði meðan á opnun stendur en vörurnar verður hægt að kaupa í takmörkuðu upplagi. Boðið verður upp á mat og drykk á opnuninni sem fer fram í dag laugardag klukk- an 14, sem einnig tengjast þemanu sem þau vinna með. Sýningarstaður: The Shed, Suð- urgötu 9, Hafnarfirði. Plastplan Plastplan er plastendurvinnslu- stöð og hönnunarstúdíó sem felur í sér plastendurvinnslu, hönnun, vöruþróun og framleiðslu. Þannig er stuðlað að hringrás plastefna. Sýningin, sem er staðsett í vinnu- stofu Plastplan í Bríetartúni, gefur innsýn í f lókið ferli endurvinnslu neytendaplasts og er leiðsögn um sýninguna í dag, laugardag, frá klukkan 18 til 19. Sýningarstaður: Plastplan, Brí- etartúni 13, Reykjavík. Skógarnytjar Skógarnytjar byggir á samstarfi við aðila skógræktar á Íslandi til að fullnýta auðlindina og stuðla að jákvæðum umhverfisáhrifum með framleiðslu og aðgerðum í samstarfi við aðila skógræktar. Eftir tveggja ára rannsóknar- og þróunarvinnu verður kynnt á markað endurbætt Skógarnytja- húsgagnalína sem leggur grunn að bættri viðarmenningu. Með verk- efninu og framleiðslu húsgagnanna eru lögð drög að sjálf bærum iðnaði hér á landi. Sýningarstaður: Studio Björn Steinar, Bríetartúni 13, Reykjavík. Catch of the day: Limited Covid- 19 edition Um er að ræða sérframleitt hand- spritt fyrir HönnunarMars 2020. Verkefnið byggir á Catch of the day sem var tilnefnt til Hönnunar- verðlauna Íslands 2018 og er ætlað að draga úr matarsóun í samstarfi v ið mat vælainnf ly tjendur og sporna gegn útbreiðslu COVID-19. Til framleiðslunnar eru notaðir afgangsávextir frá matvælainn- f lytjendum sem annars hefði verið sóað. Brúsunum er svo skilað aftur til Plastplans þar sem þeir fá nýtt framhaldslíf. Sýningarstaður: Studio Björn Steinar, Bríetartúni 13, Reykjavík. Stóll aðdáendanna Stólalínan „The Fan Chair“ eða „Stóll aðdáendanna“ gefur gömlum sætum úr KR-stúkunni nýtt líf. Stólunum er jafnframt ætlað að fanga adrenalínið, björtu litina og spennu stúkunnar frá níunda ára- tugnum og færa hana innandyra. „The Fan Chair“ og „The Fan Bar Stool“ („Barstóll aðdáendanna“) einkennast af fjörugum karakter sem er náð fram með endurnýttum plastsætum og björtum stálfótum. Útlit þeirra er einfalt en jafnframt áberandi sem gerir þá tilvalda fyrir hversdagslegt, en öðruvísi umhverfi. Línan kemur í þremur litasamsetningum og tveimur mis- munandi stærðum. Sýningarstaður: Skólavörðustíg 16a, Reykjavík. Vörulínan sem aldrei varð Á sýningunni verður sýnd vöru- lína sem er en aldrei varð. Vörur sem skilja varla neitt umhverfis- spor eftir sig og munu eyðast í nátt- úrunni fyrr en við sjálf. Á sýningunni tekst Védís Páls- dóttir vöruhönnuður á við það hvernig er að vera vöruhönnuður í heimi sem er of hlaðinn vörum og ofurseldur neyslumenningu sem þarf að breyta. Hún veltir því fyrir sér hvort hægt er að komast hjá kostnaðarsömu og meng- andi framleiðsluferli til verndar umhverfinu, en uppfylla um leið kröfur neytandans um nýjungar og vöruúrval. Á sýningunni mun hún sýna vörulínu sem er en aldrei varð. Aðalútgangspunkturinn eru tölvuteiknaðar vörur í þrívídd sem hefur verið umbreytt í grafísk tvívíð verk. Vörurnar eru því ekki annars staðar en í heimi ímyndun- araf lsins, ekki þó alveg óáþreifan- legar heldur á prenti uppi á vegg. „Hvenær verður vara að vöru?“ verður til sýnis á samsýningunni „Meira og minna“. Sýningarstaður: Göngugatan á Hafnartorgi. Hvernig geta arkitektar haft jákvæð áhrif á hlýnun jarðar? A rk itek t afélag Íslands, Félag íslenskra landslagsarkitekta og Græn byggð sameinast í sýningu um framtíð hins byggða umhverfis á HönnunarMars 2020. Tölur sýna að rekja má allt að 40 prósent losunar gróðurhúsa- lofttegunda á heimsvísu til bygg- ingariðnaðarins. Arkitektar kapp- kosta að þróa leiðir til að minnka losunina. En hvað er hægt að gera? Á sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur á HönnunarMars verða til sýnis lausnir sem þegar hafa verið tekn- ar í notkun, lausnir sem enn eru í þróun og framtíðarlausnir. Sýningarstaður: Göngugatan á Hafnartorgi. List fyrir umhverfið Fjölmargir listamenn sem taka þátt í Hönn- unarMars setja fókusinn á umhverfið og vekja um leið athygli á hlýnun jarðar. Stólalínan „The Fan Chair“ eða „Stóll aðdáendanna“ gefur gömlum sætum úr KR-stúkunni nýtt líf. MYND/KEVIN PAGÉS Eftir tveggja ára rannsóknar- og þróunarvinnu verður endurbætt Skógarnytja húsgagnalína kynnt á markað sem leggur grunn að bættri viðarmenningu. Plastplan er plastendurvinnslustöð og hönnunarstúdíó sem felur í sér plastendurvinnslu, hönnun, vöruþróun og framleiðslu. Hlutir úr „Circle“-línunni verða til sýnis í verslunar- og sýningarrými R.T.Co., The Shed í Hafnar- firði meðan á opnun stendur. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.