Fréttablaðið - 27.06.2020, Qupperneq 22
MIG LANGAR TIL AÐ
STYÐJA VIÐ ÍSLENSKA
TÓNLISTARMENN, ÞAÐ
ERU MARGIR ATVINNU-
LAUSIR NÚNA OG ÞAÐ ER
OFT ÞANNIG AÐ ÞEGAR
EITTHVAÐ KEMUR UPP Á,
ÞÁ BÚAST ALLIR VIÐ AÐ
TÓNLISTARMENN GERI
ALLT ÓKEYPIS.
Björk Guðmundsdóttir hefur verið með tón-leikaröðina sem verður í Hörpu í ágúst á bak við eyrað í nokkur ár, en tímasetningin hefur
ekki verið rétt fyrr en núna. Á tón-
leikunum verður farið yfir 25 ára
samstarf hennar við íslenska flytj-
endur og er áherslan á hinn óraf-
magnaða hluta tónlistar hennar.
Tónleikaröðin mun jafnframt
kynna tónsköpun Bjarkar á heild-
rænan hátt, þar sem hún er bæði
tónskáldið og sér um útsetningar
tónlistarinnar.
Tónleikarnir verða fernir talsins
og allir ólíkir. Ásamt Björk koma
meðal annars fram strengjasveit frá
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Hamra-
hlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur, f lautusveitin Viibra
og hörpuleikarinn Kate Buckley.
Engir tónleikanna verða eins, og
ekkert lag verður spilað tvisvar á
þessum fernum tónleikum. Alls
verða 44 lög á lagalistanum, eða 11
á hverjum tónleikum.
Björk fékk hugmyndina að tón-
leikaröðinni þegar hún gaf út
nótnabók með lögum sínum í sam-
starfi við píanistann Jónas Sen árið
2017. Bókin ber heitið 34 verk fyrir
píanó, orgel, sembal og celestu. Með
bókinni vildi Björk miðla tónlist
sinni áfram með öðrum tónlistar-
mönnum, en í henni má nálgast
bæði f lóknar og einfaldar nótur.
Allir sem hafa einhverja kunnáttu
á hljómborðshljóðfæri geta spilað
lögin og líka sungið, en röddin er
einnig skrifuð í nótur með texta.
Plönin breyttust
vegna faraldursins
„Mig hefur langað til þess að halda
þessa tónleika frá því ég gaf út bók-
ina og fyrir ári síðan var ég næstum
því búin að láta verða af því, en þá
tók Cornucopia-tónleikaferðalagið
yfir og ég ákvað að láta það hafa for-
gang.“
Björk ferðaðist víða með Cornu-
copia, nokkrir tónleikar voru haldn-
ir í New York og víða um Evrópu, en
fjölmargir íslenskir tónlistarmenn
tóku þátt.
„Þetta er það stærsta sem ég
hef gert hvað varðar leikmynd og
mannskap. Það tók langan tíma
að semja við tónlistarhúsin, enda
var þetta rosalega stór sýning. Við
vorum á ferðalagi alveg þangað til
að kórónaveiran kom upp, og ég,
eins og aðrir tónlistarmenn, þurfti
að fresta öllum ferðalögum á árinu.
Þá hugsaði ég með mér að núna væri
tíminn til að láta verða af þessum
tónleikum hér heima.“
Björk þótti tímasetningin góð,
bæði þar sem hún er á landinu, en
einnig vegna þess að hana langar
til að styðja við tónlistarmenn á
Íslandi.
„Mig langar til að styðja við
íslenska tónlistarmenn, það eru
margir atvinnulausir núna og það
er oft þannig að þegar eitthvað
kemur upp á, þá búast allir við að
tónlistarmenn geri allt ókeypis.
Margir þeirra lifa á því að spila á
tónleikum, því þeir fá ekki lengur
tekjur af plötusölu.“
Styður við Kvennaathvarfið
Kynþáttafordómar hafa verið áber-
andi í umræðunni upp á síðkastið,
en Björk fékk tvær ungar stúlkur,
þær Chanel Björk Sturlu dótt ur og
Di önu Rós Breckmann Jónatans-
dótt ur, til að vera með samtal á
Instagram-síðu sinni á dögunum.
Þar ræddu þær saman um rasisma
á Íslandi og hvernig Black Li ves
Matter-hreyf ing in hefur haft áhrif
hér á landi.
„Ég vil endilega sýna lit í þessari
umræðu, enda þykir mér hún afar
mikilvæg. Ég hef lengi velt því fyrir
mér hvernig ég gæti lagt þessu mál-
efni lið hér heima og hef ákveðið
að styðja við Kvennaathvarfið.
Mér finnst þau vera að gera góða
hluti, bæði fyrir konur af erlendum
uppruna, en einnig núna á tímum
kórónaveirunnar þegar hér, eins
og annars staðar í heiminum, urðu
konur fyrir meira heimilisofbeldi og
gátu leitað þangað.“
Eftir tónleikana í Hörpu, sem allir
munu hefjast klukkan fimm síð-
degis, geta gestir keypt sér mat og
notið, og mun allur ágóði sölunnar
renna til Kvennaathvarfsins en
einnig verður hægt að styrkja mál-
efnið beint.
„Mig hefur alltaf langað til að
halda tónleika síðdegis. Það er
annar tónlistarfókus á kvöldin
en á daginn, mér finnst ég miklu
opnari í dagsorkunni. Það var því
kjörið tækifæri að halda tónleikana
klukkan fimm, þá getur fólk borðað
saman eftir á, horft yfir Faxaflóann
í góðri stemningu og stutt gott mál-
efni.“
Björk stefnir á að streyma tón-
leikunum erlendis gegn greiðslu,
en þeir sem vilja horfa, til dæmis
í Bandaríkjunum, geta þá greitt
fyrir áhorfið, og ágóðinn rennur
þá til hjálparsamtaka í Bandaríkj-
unum, eða í því landi þar sem þeim
er streymt.
„Það hefði ekki verið neitt mál að
gera þetta ókeypis, við erum ekki
að gera þetta fyrir peningana. En
ég vil að þetta verði framtíðin, að
tónlistarmenn geti haldið tónleika
heima hjá sér og fengið borgað fyrir
það. Ég er að berjast fyrir tónlistar-
menn og því að þeir séu ekki alltaf
að gefa vinnuna sína.“
Alltaf búið á Íslandi
Björk kom, eins og fyrr segir, heim í
lok febrúar og hefur verið á landinu
síðan. Aðspurð hvort hún sé komin
fyrir fullt og allt segist hún aldrei
hafa f lutt alveg frá Íslandi, en hún
fái þessa spurningu oft.
„Ég hef alltaf búið á Íslandi sextíu
prósent tímans; bara alltaf, meira
að segja á níunda áratugnum. Það
hefur engin breyting orðið á því.
Fólk heldur bara að ég sé í útlönd-
um því ég er að fela mig þegar ég er
hérna heima. Ég læt lítið fyrir mér
fara, kíki rétt í Vesturbæjarlaugina,
annars er ég bara heima eða uppi í
sumarbústað.“
Björk nýtti tímann í samkomu-
banninu með fjölskyldunni og segist
vera þakklát og fegin að fjölskyldan
hafi öll verið saman á Íslandi. Hún
er nýorðin amma, en sonur hennar
eignaðist sitt fyrsta barn á árinu.
„Ömmuhlutverkið er eitt það
besta sem lífið hefur upp á að bjóða.
Ég skil núna hvað ömmur og afar
hafa alltaf verið að segja. Þetta er
eintóm gleði og einföld hamingja.“
Hún segist hafa gegnt húsmóður-
hlutverkinu undanfarna mánuði og
líkað vel.
„Nú á maður aðeins stærri fjöl-
skyldu og við vorum mikið saman
á þessum tíma. Ég rak veitingastað
heima hjá mér. Vanalega fer fólk í
skóla og vinnu, en allt í einu þurfti
að græja þrjár máltíðir alla daga
vikunnar. Ég breyttist bara í gamal-
dags súper-húsmóður og mér fannst
það bara kikk, ég hef ekki yfir neinu
að kvarta.“
Hún segir þetta hafa verið óvenju-
lega tíma fyrir alla og að fólk hafi
eflaust upplifað mismunandi kvíða.
Berst fyrir hag tónlistarmanna
Björk Guðmundsóttir hefur dvalið á Íslandi síðan í lok febrúar og nýtt tímann með fjölskyldunni í hlutverki hús-
móður, samið nýja tónlist og skipulagt tónleikaröð hér heima, sem hana hefur lengi langað til að láta verða af.
Urður
Örlygsdóttir
urdur@frettabladid.is
Björk Guðmundsdóttir ásamt hluta þess stóra hóps íslensks tónlistarfólks sem hefur starfað með henni og mun koma fram á tónleikaröðinni í Hörpu í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð