Fréttablaðið - 27.06.2020, Síða 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656,
Hulda er Kópavogsbúi sem nýtur þess að ferðast og verja tíma með fjölskyldu
og vinum. Hún syngur í kór og fer
í fjallgöngur, rennir fyrir silung og
nýtur lífsins til hins ítrasta. Hún
er gift, tveggja barna móðir og
starfar sem bókari og hefur síðustu
ár unnið að hluta sem sminka í
Borgarleikhúsinu og finnst leikhús
og leiklist ótrúlega skemmtileg
og áhugaverð. Hulda segir að sér
hafi þótt sérstaklega gaman að
skyggnast á bak við tjöldin, ef
þannig má að orði komast um starf
hennar sem sminku, og upplifa
leikhúslífið á örlítið annan hátt en
„bara“ sem áhorfandi.
„Ég hef alveg frá barnæsku verið
með hægðavandamál og einhvers
staðar í minningunni sé ég fyrir
mér einhvers konar sprautu sem
mamma setti í saltvatn eða eitt-
hvað álíka og sprautaði inn í mig
til að reyna að losa, þetta þótti mér
auðvitað ótrúlega vont sem krakka
og það er í raun lítið skárra þegar
ég hugsa til baka. Svo komu ein-
hver hægðalyf til sögunnar og þau
litu kannski ekki eins hræðilega
út en alltaf fannst mér þetta allt
saman hrikalega vont og erfitt,“
segir Hulda.
„Ég gat sem sagt verið stopp í
marga daga og upp undir viku ef
ekkert var að gert og ég man að
mamma fór með mig til barna-
læknis á þessum tíma til að leita
ráða, en lítið hjálpaði.“
Hvimleitt vandamál
„Þetta hvimleiða vandamál hefur
fylgt mér allt frá barnsaldri og
upp fullorðinsárin og hin síðari
ár hef ég prófað ýmis hægðalyf, ef
ekki barasta þau öll, því það gefur
augaleið að maður verður hrein-
lega undirlagður að eiga við svona
langvarandi ástand og er tilbúinn
að reyna margt til að hafa magann
og hægðirnar í lagi. Hægðalyfin
nýttust mér að einhverju leyti en
bara til að losa og aldrei leið langur
tími þangað til allt var stíflað aftur
og oft var ég með hræðilega maga-
verki og jafnvel krampa,“ segir
hún.
„Ég man mjög vel þegar ég
prófaði Probi® Mage fyrst þegar
það kom á markað fyrir nokkrum
árum, því eftir stuttan tíma fann
ég svo ótrúlega mikinn mun að ég
hreinlega trúði því varla, eftir öll
þessi ár sem ég hafði í raun kvalist
vegna ástandsins á meltingunni
hjá mér var loksins komið eitt-
hvað sem virkaði og virkar enn.
Þvílíkur léttir og nú er ég alveg
laus við þessa þrálátu kviðverki
og hef hægðir daglega, sem er bara
magnað og ég get varla þakkað það
nógsamlega að hafa prófað þessa
frábæru vöru og þennan merkilega
mjólkursýrugeril sem í henni er,“
upplýsir hún.
Hulda segist jafnframt njóta
þess mun betur að ferðast nú til
dags. „Það segir sig auðvitað sjálft
að fyrir hvern þann sem hefur
gaman af því að ferðast að það að
vera laus við endalausar áhyggjur
af maga og meltingu er ekki lítils
virði og geta betur notið sín í úti-
vist og á lengri ferðalögum.“
Járngildin orðin góð á ný
Að öðru leyti segist Hulda vera
hraust en hefur þurft að huga
sérstaklega að járnbúskapnum,
eins og margar konur, og passa vel
upp á hann auk þess sem hún er
blóðgjafi og vill svo gjarna geta
haldið áfram að gefa blóð. „Það að
þurfa að taka inn auka járn hefur
auðvitað hentað manneskju eins
og mér mjög illa þar sem járnið
hefur farið illa í mig og getur hrein-
lega valdið hægðatregðunni sem
ég hef í svo langan tíma passað mig
sérstaklega vel að forðast og vil í
Hulda hefur glímt við meltingarvandamál frá barnæsku og loksins fundið lausn á sínum málum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Um Probi® Mage
Probi® Mage mjólkursýrugerlar
– fyrir meltinguna, þarmaflóruna
og varnir líkamans!
Probi® Mage hefur sýnt sig
meðal annars hafa sérstaklega
góða eiginleika gegn einkennum
eins og:
n Uppþembu
n Vindgangi
n Niðurgangi
n Hægðatregðu
Um Probi® Járn
Probi® Járn – mjólkursýrugerlar,
járn, C-vítamín og fólasín
n Náttúruleg leið til að viðhalda
góðum járngildum
n Getur dregið úr þörf á við-
bótarjárninntöku
n Milt fyrir meltingarkerfið
n Aukin upptaka járns
Ætlað þeim sem vilja styðja við
aukna járnupptöku líkamans
og viðhalda góðum járngildum.
Hentar einnig konum sem eru
þungaðar eða hyggja á þungun.
Eftirfarandi hópar geta
m.a. verið í áhættu fyrir
járnskorti:
n Konur á barneignaraldri
n Barnshafandi konur
n Unglingar
n Eldra fólk
n Fólk í mikilli þjálfun
n Grænmetisætur / grænkerar,
ef járnmagn er lágt í fæðu
Framhald af forsíðu ➛
lengstu lög ekki lenda í þeim víta-
hring aftur.
Þegar ég sá að það er komin ný
vara frá framleiðanda Probi®
Mage, sem heitir Probi® Járn,
kynnti ég mér hana vel og er nú að
prófa hana og hef gert í nokkrar
vikur. Meltingin hefur ekki farið
úr skorðum og hægðir eru eins
reglulegar og áður og ég er ekki frá
því að mér finnist ég hressari og
líður bara ljómandi vel. Nýjustu
mælingar á járngildum hjá mér
sýna að ég er komin réttum megin
við strikið sem er auðvitað frá-
bært og skiptir mig miklu máli,“
segir Hulda sem gleðst yfir því að
geta haldið áfram að gefa blóð, og
hvetur alla sem geta og eru ekki
Einkenni járnskorts geta
meðal annars verið:
n Þreyta
n Höfuðverkir
n Svimi
n Fölvi
n Pirringur
n Þrek- og orkuleysi
n Hárlos
n Vöðvakippir
n Veikara ónæmiskerfi
n Skertur skilningur og ein-
beitingarskortur
(e. impaired cognition)
blóðgjafar nú þegar að íhuga að
gerast það.
Probi® Mage og Probi® Járn fæst
í apótekum, Heilsuhúsunum, Hag-
kaup, Fjarðarkaupum, Melabúðinni
og Heimkaupum.
Þessi kynning er unnin í samstarfi
við ABEL heilsuvörur, umboðsaðila
Probi mjólkursýrugerla á Íslandi.
Probi® mjólkursýrugerlar eru
fæðubótarefni. Neysla fæðubótar-
efna kemur ekki í stað fjölbreyttrar
fæðu og heilsusamlegs lífernis.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R