Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 28

Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Hulda er Kópavogsbúi sem nýtur þess að ferðast og verja tíma með fjölskyldu og vinum. Hún syngur í kór og fer í fjallgöngur, rennir fyrir silung og nýtur lífsins til hins ítrasta. Hún er gift, tveggja barna móðir og starfar sem bókari og hefur síðustu ár unnið að hluta sem sminka í Borgarleikhúsinu og finnst leikhús og leiklist ótrúlega skemmtileg og áhugaverð. Hulda segir að sér hafi þótt sérstaklega gaman að skyggnast á bak við tjöldin, ef þannig má að orði komast um starf hennar sem sminku, og upplifa leikhúslífið á örlítið annan hátt en „bara“ sem áhorfandi. „Ég hef alveg frá barnæsku verið með hægðavandamál og einhvers staðar í minningunni sé ég fyrir mér einhvers konar sprautu sem mamma setti í saltvatn eða eitt- hvað álíka og sprautaði inn í mig til að reyna að losa, þetta þótti mér auðvitað ótrúlega vont sem krakka og það er í raun lítið skárra þegar ég hugsa til baka. Svo komu ein- hver hægðalyf til sögunnar og þau litu kannski ekki eins hræðilega út en alltaf fannst mér þetta allt saman hrikalega vont og erfitt,“ segir Hulda. „Ég gat sem sagt verið stopp í marga daga og upp undir viku ef ekkert var að gert og ég man að mamma fór með mig til barna- læknis á þessum tíma til að leita ráða, en lítið hjálpaði.“ Hvimleitt vandamál „Þetta hvimleiða vandamál hefur fylgt mér allt frá barnsaldri og upp fullorðinsárin og hin síðari ár hef ég prófað ýmis hægðalyf, ef ekki barasta þau öll, því það gefur augaleið að maður verður hrein- lega undirlagður að eiga við svona langvarandi ástand og er tilbúinn að reyna margt til að hafa magann og hægðirnar í lagi. Hægðalyfin nýttust mér að einhverju leyti en bara til að losa og aldrei leið langur tími þangað til allt var stíflað aftur og oft var ég með hræðilega maga- verki og jafnvel krampa,“ segir hún. „Ég man mjög vel þegar ég prófaði Probi® Mage fyrst þegar það kom á markað fyrir nokkrum árum, því eftir stuttan tíma fann ég svo ótrúlega mikinn mun að ég hreinlega trúði því varla, eftir öll þessi ár sem ég hafði í raun kvalist vegna ástandsins á meltingunni hjá mér var loksins komið eitt- hvað sem virkaði og virkar enn. Þvílíkur léttir og nú er ég alveg laus við þessa þrálátu kviðverki og hef hægðir daglega, sem er bara magnað og ég get varla þakkað það nógsamlega að hafa prófað þessa frábæru vöru og þennan merkilega mjólkursýrugeril sem í henni er,“ upplýsir hún. Hulda segist jafnframt njóta þess mun betur að ferðast nú til dags. „Það segir sig auðvitað sjálft að fyrir hvern þann sem hefur gaman af því að ferðast að það að vera laus við endalausar áhyggjur af maga og meltingu er ekki lítils virði og geta betur notið sín í úti- vist og á lengri ferðalögum.“ Járngildin orðin góð á ný Að öðru leyti segist Hulda vera hraust en hefur þurft að huga sérstaklega að járnbúskapnum, eins og margar konur, og passa vel upp á hann auk þess sem hún er blóðgjafi og vill svo gjarna geta haldið áfram að gefa blóð. „Það að þurfa að taka inn auka járn hefur auðvitað hentað manneskju eins og mér mjög illa þar sem járnið hefur farið illa í mig og getur hrein- lega valdið hægðatregðunni sem ég hef í svo langan tíma passað mig sérstaklega vel að forðast og vil í Hulda hefur glímt við meltingarvandamál frá barnæsku og loksins fundið lausn á sínum málum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Um Probi® Mage Probi® Mage mjólkursýrugerlar – fyrir meltinguna, þarmaflóruna og varnir líkamans! Probi® Mage hefur sýnt sig meðal annars hafa sérstaklega góða eiginleika gegn einkennum eins og: n Uppþembu n Vindgangi n Niðurgangi n Hægðatregðu Um Probi® Járn Probi® Járn – mjólkursýrugerlar, járn, C-vítamín og fólasín n Náttúruleg leið til að viðhalda góðum járngildum n Getur dregið úr þörf á við- bótarjárninntöku n Milt fyrir meltingarkerfið n Aukin upptaka járns Ætlað þeim sem vilja styðja við aukna járnupptöku líkamans og viðhalda góðum járngildum. Hentar einnig konum sem eru þungaðar eða hyggja á þungun. Eftirfarandi hópar geta m.a. verið í áhættu fyrir járnskorti: n Konur á barneignaraldri n Barnshafandi konur n Unglingar n Eldra fólk n Fólk í mikilli þjálfun n Grænmetisætur / grænkerar, ef járnmagn er lágt í fæðu Framhald af forsíðu ➛ lengstu lög ekki lenda í þeim víta- hring aftur. Þegar ég sá að það er komin ný vara frá framleiðanda Probi® Mage, sem heitir Probi® Járn, kynnti ég mér hana vel og er nú að prófa hana og hef gert í nokkrar vikur. Meltingin hefur ekki farið úr skorðum og hægðir eru eins reglulegar og áður og ég er ekki frá því að mér finnist ég hressari og líður bara ljómandi vel. Nýjustu mælingar á járngildum hjá mér sýna að ég er komin réttum megin við strikið sem er auðvitað frá- bært og skiptir mig miklu máli,“ segir Hulda sem gleðst yfir því að geta haldið áfram að gefa blóð, og hvetur alla sem geta og eru ekki Einkenni járnskorts geta meðal annars verið: n Þreyta n Höfuðverkir n Svimi n Fölvi n Pirringur n Þrek- og orkuleysi n Hárlos n Vöðvakippir n Veikara ónæmiskerfi n Skertur skilningur og ein- beitingarskortur (e. impaired cognition) blóðgjafar nú þegar að íhuga að gerast það. Probi® Mage og Probi® Járn fæst í apótekum, Heilsuhúsunum, Hag- kaup, Fjarðarkaupum, Melabúðinni og Heimkaupum. Þessi kynning er unnin í samstarfi við ABEL heilsuvörur, umboðsaðila Probi mjólkursýrugerla á Íslandi. Probi® mjólkursýrugerlar eru fæðubótarefni. Neysla fæðubótar- efna kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilsusamlegs lífernis. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.