Fréttablaðið - 27.06.2020, Síða 30

Fréttablaðið - 27.06.2020, Síða 30
Það var auðvitað stórkostlegt fyrir mig að fá að umgangast svona Hollywood- stjörnur. Þetta eru allt leikarar, bæði íslenskir og erlendir, sem ég hef lengi litið upp til. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618 info@arcticstar.is - www.arcticstar.is SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA Arctic star sæbjúgnahylki innihalda yfir fimmtíu tegundir af næringarefnum, og eru þekkt fyrir: • Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald • Að minnka verki í liðum og liðamótum • Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni liðskemmda • Að bæta ónæmiskerfið • Að auka blóðflæði • Að koma í veg fyrir æðakölkun • Að auka orku líkamans, stuðla að myndun húðpróteins og insúlins ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fást á www.arcticstar.is Arctic Star sæbjúgnahylki Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og hagkaupum. Nýjar umbúði r Halldóra segir að það hafi verið stórkostleg upp-lifun að sitja við hlið Pierce Brosnan í upptökum á senu, þar sem þau hlustuðu saman á Waterloo með ABBA sem bar sigur úr býtum í Eurovision árið 1974, en atriðið á að gerast á þeim tíma. „Og þarna sat ég við hliðina á mann- inum sem söng í bíómyndinni Mamma Mia!Við spjölluðum smá um Eurovision og hann sagðist muna eftir því að hafa horft á keppnina þegar ABBA vann, á meðan hann var sjálfur í leiklistar- námi. Svo erum við mörgum árum seinna að taka þetta upp og ég sjálf nýútskrifuð,“ segir þessi unga leik- kona. „Þetta var einstök upplifun,“ bætir hún við. Hélt þetta væri grín Halldóra segir að það hafi verið mjög spennandi að koma að svona stóru verkefni stuttu eftir útskrift. „Ég hef ekki einu sinni leikið í stuttmynd á Íslandi, svo þetta var magnað tækifæri fyrir mig. Þegar fyrirtækið Spotlight, sem er svo- kallað „casting“ fyritæki margra þekktra leikara, hafði samband við mig, var ég ekki komin með vinnu og var að leita að húsnæði í London. Þegar mér var boðið að koma í prufu fyrir myndina Euro- vision hélt ég í fyrstu að þetta væri grín, enda var aðeins vika frá því ég útskrifaðist úr skólanum. Síðan þurfti ég að bíða í tvær vikur áður en ég var kölluð í aðra prufu. Það var taugatrekkjandi tími,“ segir Halldóra. „Það var því mikið gleði- efni að fá hlutverkið.“ Senan sem Halldóra leikur í var tekin upp í Edinborg. Hún bauð fram frekari krafta ef hún gæti aðstoðað og fékk það hlutverk að þýða texta úr ensku yfir á íslensku og kenna stórstjörnunni Pierce Brosnan að bera fram íslensk orð. „Við Guðmundur Ingi leikari fengum að vinna með talþjálfara að kenna Brosnan. Hann var bara rólegur og til í slaginn að læra setn- ingarnar á íslensku. Ef þú ert James Bond þá eru nokkrar setningar á íslensku ekki mikið mál,“ segir Halldóra brosandi. Með henni í myndinni voru, auk Guðmundar Inga, Nína Dögg Filippusdóttir og Arnar Jónsson. Halldóra segist ekki hafa hitt Will Ferrell, en hún hitti leik- konuna Rachel McAdams. „Það var auðvitað stórkostlegt fyrir mig að fá að umgangast svona Holly- wood-stjörnur,“ segir hún. „Þetta eru allt leikarar, bæði íslenskir og erlendir, sem ég hef lengi litið upp til. Það var frábært að sjá hvað listaheimurinn getur verið hvetjandi og fallegur. Nína Dögg Kenndi Pierce Brosnan íslensku Halldóra Þöll Þorsteins útskrifaðist frá breska leiklistarskólanum Rose Bruford College of Theatre and Per- formance í fyrra. Fyrsta hlutverkið hennar eftir útskrift var í bíómynd- inni Eurovision sem Netflix sýnir. Halldóra segir að það hafi verið stórkostleg upplifun að leika í kvikmyndinni Eurovision sem er komin í sýningu á Netflix. Frábært að fá hlutverk í svona stórri mynd þar sem Hollywood-leikarar koma við sögu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR var ótrúlega góð við mig. Ég mun vinna með henni áfram í sumar við upptökur á þáttaröðinni Verbúð, en ég hef dáðst að Vesturporti alla mína ævi, svo þetta er draumur sem er að rætast,“ segir hún. Í breskum barnaskóla Halldóra bjó í London þegar hún var á aldrinum 10-13 ára og gekk í breskan, kaþólskan skóla. For- eldrar hennar voru á þeim tíma í mastersnámi og Halldóra segir að það hafi verið mjög skemmtilegt að upplifa allt annars konar skóla en hún var vön frá Íslandi. „Þarna kynntist ég breskri menningu og hafði mikinn áhuga á enskunni. Mér fannst því henta mér betur að fara í leiklistarnám í Bretlandi. Þótt ekki sé langt að fara til Eng- lands er menningin ólík þeirri íslensku og mannflóran fjölbreytt. Mér finnst skemmtilegt að kynn- ast fólki með ólíkan bakgrunn og hlusta á sögur þess. Ég bý í London en kom heim vegna COVID,“ segir Halldóra, sem hefur áhuga á verk- efnum hér á landi til að kynnast listaheiminum. Úr verkfræði í leiklist „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á leiklist og sérstaklega söngleikjum. „Ég byrjaði ung í söngnámi hjá Margréti Eir og fór síðan í Söng- leikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz, hjá Völu Guðnadóttur og Þór Breiðfjörð. Ég hafði mikla ástríðu fyrir söngleikjum þegar ég var táningur, en ég þorði aldrei að tala um eða viðurkenna að mig langaði að verða leikari. Ég var alltaf mjög góð í raungreinum, sérstaklega stærðfræði. Var dúx í grunnskóla, fór síðan á eðlisfræði- braut í Verzló og þaðan í heil- brigðisverkfræði í HR í eitt ár, þar sem ég komst á forsetalistann haustönnina. Þar að auki var ég keppniskona í sundi fyrir Ármann. Ég æfði sund í fimmtán ár og stefndi hátt, en meiddist í baki og varð að hætta. Þá varð ég að finna mér ný áhugamál,“ segir hún. Þorði ekki að segja frá Rose Bruford skólinn bauð Íslendingum að koma í prufur fyrir leiklistarnám og ég komst strax inn. Ég þorði ekki fyrst að segja foreldrum mínum frá þessu, en ég þurfti að ákveða mig í hvelli og flutti til London fimm dögum seinna. Námið var frábært. Ég fór í skiptinám til Chicago og lærði heil- mikið þar líka. Í útskriftarverkinu lék ég aðalhlutverkið, Hekúbu, í nýrri útgáfu af grísku tragedíunni Trójukonum eftir Evripídes. Eftir útskrift hef ég leikið í barnaleikriti á Norður-Englandi, verið í „voice- over,“ og hef verið að vinna með, og leikstýra, bekkjarbróður mínum sem var að skrifa leikrit til að setja vonandi upp á Camden Fridge og Vaults festivalinu, þegar COVID og samfélagið leyfa,“ segir Hall- dóra, sem var ekki búin að horfa á Eurovison þegar viðtalið var tekið í gær, en ætlar að horfa á hana með fjölskyldunni. „Ég hlakka mikið til að sjá myndina. Það er stórkost- legt að hugsa til þess að maður hafi verið að vinna að sama verkefni og allar þessar stórstjörnur. Í raun er stórkostlegt að upplifa svona stórt verkefni og sjá hvað það er mikið fyrirtæki að búa til kvikmynd,“ segir Halldora Thoell, en það er sviðsnafnið hennar. Eurovision er komin í sýningu á Netflix, svo nú er hægt að sjá hana. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.