Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 35

Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 35
 Nokkra fimmtu- daga í sumar verður boðið upp á Sumarbræð- ing í Menningarhús- unum. Þá verður boðið upp á Sumarjazz í Saln- um og lengri opnunar- tíma í Gerðarsafni. Menningarhúsin í Kópavogi bjóða upp á skemmti-legar og fræðandi smiðjur í sumar fyrir ungt fólk. Um er að ræða vikulegar smiðjur frá þriðju- degi til fimmtudags og hefjast þær 30. júní. Það eru fjórir sumarstarfs- menn menningarhúsanna sem stýra smiðjunum, en hópurinn kallar sig Sumarspírurnar. Hópinn skipa þær Guðný Sara Birgisdóttir, myndlistarkona og meistaranemi í hönnun við Listaháskólann, Ýr Jóhannsdóttir, textíllista- kona og nemi í listkennsludeild Listaháskólans, Jóhanna Malen Skúladóttir, jarðvísindanemi við Háskóla Íslands og teiknari, og Þórhildur Magnúsdóttir sem er víólunemi í Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. „Við munum leggja áherslu á umhverfisvitund, list ræna sköpun og leikgleði, en smiðjurnar standa yfir frá klukkan 13-15, þrjá daga vikunnar, og standa yfir frá 30. júní til 13. ágúst,“ segir Guðný Sara. „Á þriðjudögum verða vísinda- miðaðar smiðjur og þrautagerð, myndlist verður í boði á mið- vikudögum, og á fimmtudögum bjóðum við upp á fimmtudags- flækjur. Smiðjurnar eru öllum opnar og ekkert kostar inn á þær,“ bætir Ýr við. Þverfagleg samskipti aukin Smiðjurnar eru hugsaðar fyrir 10-14 ára krakka, en verða að sjálf- sögðu opnar fyrir alla þá sem hafa áhuga á listrænni sköpun segir Jóhanna Malen. „Dagskráin mun að mestu leyti fara fram í Gerðar- safni, Bókasafni Kópavogs og Náttúrufræðistofu, en einnig munum við nýta útivistarsvæði Menningarhúsanna og vera eina viku í Lindasafni.“ Það er þeim mikið hjartans mál að viðhalda því f lotta og öfluga menningarstarfi sem Menningar- húsin í Kópavogi bjóða upp á yfir vetrartímann og færa það yfir á sumartímann líka. Mikil fjölbreytni Guðný ætlar að leggja áherslu á skemmtilegar myndlistarsmiðjur á miðvikudögum undir heitinu Myndlistar-miðvikudagar! „Smiðj- urnar verða allar mjög fjölbreyttar og snerta á sem flestum flötum myndlistarinnar. Við verðum til dæmis með klippimyndasmiðju, prentsmiðju með áherslu á endur- vinnslu á efniviði og vatnslita- smiðju.“ Ýr, sem skapar undir nafninu Ýrúrarí, stendur fyrir smiðjunum á fimmtudögum, sem verða með furðu- og flækjuþema. „Það verða meðal annars textíltilraunir og leikir úti á túni, f léttað úr lofti og vatni, frumlegar fataviðgerðir og skapandi útsaumur og dúskagerð, með endurunnum efnivið.“ Leyniletur og sólkerfi Jóhanna Malen, sem meðal annars hefur unnið með námi í vísinda- smiðju Háskóla Íslands, við vís- indamiðlun til grunnskólabarna, mun sjá um þverfaglegar smiðjur. „Ég mun leggja áherslu á sköpun í tengslum við vísindi og náttúru og bjóða upp á til dæmis tetrisþrauta- smíði, seglasmiðju, leyniletur og sólkerfið, svo fátt eitt sé nefnt.“ Starf Þórhildar í sumar felst einna helst í að spila á víóluna og tvinna saman lifandi tónlist og annars konar list, sem fram fer í smiðjunum, á skapandi hátt. Nánari upplýsingar verða svo settar jafnóðum inn á Facebook Fjölbreytt og lifandi sumar Í sumar munu Menningarhúsin í Kópavogi bjóða upp á skemmtilegar smiðjur fyrir ungt fólk. Auk þess verður fjölbreytt dagskrá í boði allt sumarið fyrir alla aldurshópa. Guðný Sara Birgisdóttir, myndlistarkona og meistaranemi, Ýr Jóhannsdóttir, textíllistakona og nemi í LHÍ, Jóhanna Malen Skúladóttir, jarðvísindanemi við Háskóla Íslands og teiknari og Þórhildur Magnúsdóttir sem er víólunemi í Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Það er margt í boði fyrir börn í Bókasafninu í Gerðarsafni í Kópavogi. Það er alltaf líf og fjör hjá ungu kynslóðinni í Kópavogi enda margt í gangi. Salalaug er glæsileg en hún er önnur tveggja sundlauga í bænum. hópinn „Sumarspírur Menn- ingarhúsanna“ og á facebook síðu Menningarhúsanna í Kópavogi. Eitthvað fyrir alla Menningarhúsin í Kópavogi eru Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Bókasafn Kópavogs, Héraðsskjalasafn Kópavogs og tónleikhúsið Salurinn, en öll húsin eru staðsett í hjarta Kópavogs- bæjar í Hamraborginni. Í sumar standa þau fyrir sam- vinnuverkefni sem ber heitið Söfnum sumri í Menningarhús- unum í Kópavogi. Um er að ræða fjölskylduverkefni sem skapar vettvang til útiveru og samveru, þar sem fjölskyldan getur unnið saman að skemmtilegum og fræð- andi verkefnum. Þátttakendur fá afhentan glæsilegan taupoka, stút- fullan af fjölbreyttum og sumar- legum verkefnum og þrautum, sem fjölskyldan er hvött til að taka með sér út í sumarið og í ferðalögin fram undan. Nokkra fimmtudaga í sumar verður boðið upp á svokallaðan Sumarbræðing í Menningarhús- unum í Kópavogi. Þá verður boðið upp á Sumarjazz í Salnum og lengri opnunartíma í Gerðarsafni og Pure Deli, eða til klukkan 21. Næsti Sumarjazz í Salnum er 9. júlí, en þá koma fram Unnur Birna og Bjössi Thor. Ókeypis er á Sumarjazzinn og í Gerðarsafn frá klukkan 17. Gerðarsafn opnar sýninguna Þegar allt kemur til alls, eftir tólf íslenska samtímalistamenn, laugardaginn 4. júlí. Verkin eru sérvalin út frá því hvernig fegurðin í hversdagsleikanum, léttleiki, húmor og leikgleði, birtast í þeim. Á sýningu Náttúrufræðistofu Kópavogs er gestum boðið í ferða- lag um helstu búsvæði sem finnast á Íslandi, allt frá myrkustu undir- djúpum til hæstu fjallatoppa. Á leiðinni mæta gestum þær lífverur sem finna má í hinum mismunandi búsvæðum. Bókasafn Kópavogs býður upp á mikið úrval bóka og tímarita, auk þess sem lestraraðstaða safnsins er hin huggulegasta. Útivistarsvæði Menningar- húsanna í Kópavogi býður upp á eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Fullorðnir geta notið sín með kaffibolla frá Pure Deli og bók við hönd, á meðan börnin leika sér á svæðinu, sem inniheldur meðal annars ærslabelg, klifurgrind og gosbrunn. Að lokum má nefna að í Kópa- vogi eru tvær frábærar sundlaugar, Salalaug og Sundlaug Kópavogs. Þær eru opnar frá klukkan 6.30 – 22 alla virka daga og frá klukkan 8 – 20 um helgar. Nánari upplýsingar um viðburði og opnunartíma er að finna á menningarhusin.kopavogur.is. KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 ÍSLAND KOMDU MEÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.