Fréttablaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 37
Agnes Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri FlyOver Iceland. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Íslendingar eru hvattir til að ferðast innanlands í sumar og FlyOver Iceland er hin full- komna byrjun á ferðalaginu um Ísland. Myndin gefur ákveðinn forsmekk af því hvað Ísland hefur að bjóða og sýnir magnaðar myndir af því stórkostlega landi sem við búum í. Gestir okkar sem þekkja landið vel segjast sjá Ísland í alveg nýju ljósi, og það eitt, er mikið hól fyrir okkur,“ segir Agnes Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri FlyOver Iceland. Hjá FlyOver Iceland gefst fólki færi á að sjá Ísland með augum fuglsins fljúgandi. „Já, það má segja það. Að sjá Ísland úr lofti og í miklu návígi er einstök upplifun. Ég held að okkur öll dreymi um að geta svifið og það er smá galdur á bak við það að herma eftir þeirri tilfinningu, að svífa um eins og fuglinn fljúgandi. Að baki liggur gífurleg vinna, bæði við upptökur á myndinni og við tæknilegu útfærsluna, að ná þess- ari einstöku tilfinningu að finnast maður raunverulega svífa yfir íslenska náttúru,“ upplýsir Agnes. Sýning á heimsmælikvarða Í FlyOver Iceland komast ferða- langar í tæri við staði sem fæstir sjá á lífsleiðinni. „Í upphafi var ákveðið að sýna fólki bæði þekkta og óþekkta staði. Við förum ekki með fólk í Gullna hringinn eða Bláa Lónið sem dæmi, en það eru nokkrir kunnuglegir staðir eins og Dyr- hólaey og Mælifell. Aðrir staðir eru jöklar, hálendi, faldir fossar og djúp gil sem flestir sjá í fyrsta sinn og er afar erfitt að komast að nema vera fuglinn fljúgandi sem við bjóðum gestum okkar upp á.“ Gestirnir hefja ferðalagið í Lang- húsinu. „Þar segir sögumaðurinn okkar, Páll Pálsson, fyrrum sjómaður, frá sagnahefð og þrautseigju Íslendinga í gegnum aldirnar og kynnir til sögunnar íslensku tröllin. Í seinni forsýningunni er kíkt í Brunn tímans þar sem tröll- skessan Sú Vitra, sem Hanna María Karlsdóttir leikkona ljáir rödd sína, segir frá náttúruöflunum sem mótuðu Ísland og gera enn, og hverjir voru fyrstu landnemarnir á Íslandi: Jú, auðvitað tröllin! Að lokum er stigið inn í salinn fyrir f lugsýninguna. Gestir sitja í sætum með fæturna dinglandi og hreyfast með myndinni sem varpað er á 270 fermetra skjá,“ upplýsir Agnes um sýningu FlyOver Iceland, sem er tæknilega fremst á meðal jafningja og ein af fáum sambærilegum sýningum í heiminum. „Það er afar spennandi að geta boðið Íslendingum upp á slíka sýningu, sem er á heimsmæli- kvarða,“ segir Agnes. Með tár í augum af hrifningu Í FlyOver Iceland er lögð áhersla á að efla öll skilningarvit, en upp- lifunin er þó alls ekki hrikaleg. „Það heyrist nóg af gleðiópum og andköfum,“ segir Agnes. „Í heimi skemmtigarða og afþrey- ingasýninga er FlyOver Iceland skilgreind sem „mildly thrilling“, eða temmilega æsileg sýning. Upplifunin er afar raunveruleg og margir lyfta fótum, svo þeir rekist ekki í jökulsporð eða turninn á Hallgrímskirkju. FlyOver Iceland hentar því fjölskyldum afar vel og nær til breiðs aldurshóps og oftar en ekki hef ég tekið á móti fólki með tárin í augunum af hrifningu. Það eitt færir manni yl í hjarta.“ Agnes segir það hafa komið sér skemmtilega á óvart hversu vel Íslendingar hafa tekið í sýninguna, en alls hafa 70.000 Íslendingar heimsótt FlyOver Iceland frá opnun. „Það er afar algengt að gestir komi aftur og aftur og við höfum heyrt af gestum sem eru að koma í fjórða, fimmta og jafnvel tólfta skiptið! Þetta er afþreying sem er ólík öllum öðrum. Hún hentar öllum aldurshópum, er tilvalin fyrir fyrirtækjahópa, vinahópa og fjölskyldur. Það skiptir höfuðmáli að Íslendingar hafi trú á því sem við bjóðum upp á, því það er besta auglýsingin – orðspor FlyOver Iceland dreifist hratt um landið.“ Sömu viðbrögð komi fram hjá öllum aldurshópum. „Fólk kemur yfirleitt skælbros- andi og hlæjandi út. Við tökum á móti krökkum frá fjögurra til fimm ára, en þau þurfa að hafa náð 102 sentimetra hæð, og upp í 90 ára fólk. Elsta konan sem hefur prófað FlyOver Iceland var í Kanada. Hún var 104 ára og vildi ólm fara aftur í f lugið. Ferðamenn koma oft út af sýningunni og spyrja hvort þetta sé raunverulega allt á Íslandi; þeir eru orðlausir yfir fjölbreytileika íslenska landslagsins.“ FlyOver Iceland í Vancover Að geta skoðað heiminn með þessum hætti segir Agnes vera það sem koma skal í ferðamennsku og FlyOver Iceland ætlar að færa heiminn nær Íslendingum. „Ég lít á FlyOver Iceland sem for- smekk af því sem landið hefur upp á að bjóða og á sama tíma að kitla forvitna aðila til að kynnast land- inu enn betur. Til dæmis erum við að sýna íslensku myndina í FlyOver Canada í Vancouver. Það eitt og sér er mögnuð landkynn- ing. Á næsta ári munum við einnig opna annað FlyOver í Las Vegas, þar sem vesturströnd Banda- ríkjanna verður sýnd og árið 2022 verður ný FlyOver Canada-mynd frumsýnd í Toronto. Kosturinn við að vera partur af slíku sterku alþjóðlegu fyrirtæki er að okkur gefst tækifæri á að sýna Íslend- ingum myndir frá f leiri stöðum og í haust munum við til dæmis sýna FlyOver Canada-myndina hér á landi. Þetta er frábær leið til að kynnast öðrum löndum og á sama tíma fá innblástur að nýjum ferðalögum.“ Hún segir fólk ekki verða ugg- andi við að sveiflast um í lausu lofti. „Í raun er fólk ekki laust í loftinu heldur í sætum með sætisbelti og fæturnir dingla niður. Sætin hreyfast svo í takt við myndina. Við mælum ekki með sýningunni fyrir þá sem kljást við mikla loft- hræðslu en á hinn bóginn hafa mjög margir lofthræddir heimsótt okkur og viljað fara strax aftur í aðra ferð. Einnig er gott að vita að við leggjum mikla áherslu á allt öryggi og fylgjumst vel með hverjum og einum einstaklingi. Ef við sjáum að viðkomandi líður illa stöðvum við sýninguna sam- stundis þannig að sá aðili komist út, svo höldum við áfram fluginu. Fyrir f lesta er þetta frábær og jákvæð upplifun. Hún er spenn- andi og ólík öllu öðru. Raunveruleg upplifun Í FlyOver Iceland er öll upplifun gerð eins raunveruleg og mögu- legt er. „Við leggjum mikið upp úr góðu aðgengi og sýningin gerir mörgum kleift að ferðast um Ísland sem annars hefðu ekki tök á því að ferðast, klífa fjöll og sjá marga af stöðum sem eru fótgangandi ferðalöngum ómögulegt að sjá. Það að geta fundið vindinn í hárinu og ilm af nýslegnum akri færir svo upplifunina á annað plan,“ segir Agnes. Að f luginu loknu segir Agnes nokkur börn hafa spurt hvort þau séu enn á Íslandi. „Flestir koma út af sýningunni og eru spenntir að fara út til að upplifa Ísland og sjá nýja staði. Aðrir koma hrærðir út með tárin í augunum. Enn aðrir hafa stofnað gönguhópa með það að markmiði að heimsækja þá 27 staði sem við sýnum í myndinni. Viðbrögðin eru margvísleg og það er einstakt að fá þau frá gestum okkar.“ Í sumar ætlar starfsfólk FlyOver Iceland að njóta þess að taka á móti kátum og ævintýraþyrstum Íslendingum. „Ferðagjöfin er ákaflega skemmtilegt tækifæri fyrir gesti að koma og prófa þessa sýningu sem er á heimsmælikvarða. Sjálf ætla ég að vera dugleg að ferðast um landið í gönguferðum, hjólandi og á hestum. Ísland er einstakt land og fyllir mann enda- lausri orku.“ Hægt er að sjá allar nánari upp- lýsingar á tilboðum á heimasíðu FlyOver Iceland, flyovericeland.is. Spennandi upplifun og ólík öllu öðru Ferðalag um Ísland hefst í FlyOver Iceland. Landsmenn taka andköf af undrun og fögnuði þegar farið á staði sem enginn kemst nema fuglinn fljúgandi. Flestir þrá að komast aftur. Í FlyOver Iceland finnst gestum sem þeir svífi yfir undurfagurt landslag Ís- lands. KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 ÍSLAND KOMDU MEÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.