Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 38
Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit, segir að mikil aðsókn sé á
útivistarstíginn sem liggur á milli
Hrafnagils og Akureyrar. „Þetta er
mátulega löng ganga á sléttlendi,
sem hentar allri fjölskyldunni.
Hægt er að ganga stíginn, hjóla
eða hlaupa,“ segir hann. „Hér
er mikið framboð af alls kyns
afþreyingu, sem gaman er að taka
þátt í, fyrir alla fjölskylduna. Við
erum með öflugt ferðamálafélag
sem er duglegt að skipuleggja
hina ýmsu viðburði,“ segir Finnur.
„Útivistarstígurinn hefur opnað
marga möguleika fyrir þá sem vilja
hreyfa sig og upplifa sveitina um
leið,“ bætir hann við og bendir á
Hælið í Kristnesi, þar sem er gott
kaffihús. „Þaðan er stutt að rölta
yfir í jólagarðinn og fá sér ís áður
en haldið er í laugina í Hrafnagili.“
Finnur segir að einnig sé
skemmtilegt að fara í bíltúr út í
sveit og koma við í Holtseli, þar
sem hægt sé að fá heimagerðan
ís. Þar er kúabúskapur og ísgerð.
„Smámunasafnið er í um 8 km
fjarlægð frá Hrafna gili og þar er
gaman að koma við,“ segir hann.
„Það er mikil hjólaumferð á milli
Akureyrar og Hrafnagils. Margir
kjósa líka að ganga um skóglendið
en hér í kring eru nokkrar merkt ar
gönguleiðir. Síðan eru margir sem
ganga frá Kaffi kú, þar sem er veit
ingastaður, og upp Uppsalahnjúk
en útsýnið þaðan er mjög fallegt.“
Handverkshátíðin í Hrafnagili
er alltaf vinsæll atburður á sumrin,
en að þessu sinni hefur henni
verið frestað, eins og svo mörgum
öðrum hátíðum. Hins vegar
verður boðið upp á Matarstíg
Helga magra, sem er samvinnu
verkefni matvælaframleiðenda á
svæðinu. „Þetta er verkefni sem
hefur verið í bígerð í langan tíma.
Það verða nokkrar uppákomur í
Hrafnagilsskóla í sumar, þar sem
bændur bjóða upp á matartengda
viðburði með mat úr héraðinu.
Þetta verða bændamarkaðir sem
eru mjög spennandi,“ segir Finnur.
„Stefnt er að matarhátíð, helgina
sem Hrafna gilshátíð ætti að vera.
Svo má benda á að hér í sveitinni
er mikið úrval af góðum gisti og
veitingastöðum.
Í Hrafnagili er fjölskylduvæn
sundlaug með leiktækjum auk
glæsilegs tjaldsvæðis og fjölbreytts
úrvals veitingastaða.
Margt í boði í
blómlegri sveit
Það er skemmtilegt fyrir fjölskyldur að koma á Kaffi kú í Eyjafjarðarsveit.
Ég er fæddur og uppalinn á Hvolsvelli og tengist því Rangarþingi eystra afar sterk
um böndum. Þarna þekkir maður
hvern hól og hverja þúfu. Frelsið
sem maður upplifði í æsku hefur
svo mikið að gera með það hvernig
maður er í dag. Við smíðuðum
kofa, ég gerði við skellinöðrur og
var í raun með heilt þorp sem leik
völl. Það er algerlega ómetanlegt
að hafa fengið að alast upp á svona
stað. Minn uppáhaldsstaður á öllu
svæðinu er að sjálfsögðu æsku
heimilið að Litlagerði 10. Þar er
alltaf heitt á könnunni þegar ég
er á svæðinu, enda eru Hvolsvell
ingar þekktir fyrir eindæma gest
risni,“ segir Ómar.
Leyndarmál Ómars
Ómar lumar á nokkrum ráðum
þegar kemur að því að ferðast um
Suðurlandið. „Ekki keyra framhjá
Hvolsvelli, því þetta heillandi
þorp er ótrúlega vel staðsett fyrir
þá sem ætla að ferðast á þessu
svæði. Þar er æðislegur veitinga
staður og rólóinn við leikskólann
Örk er líka stórskemmtileg dægra
stytting fyrir krakkana. Frá Hvols
velli er hægt að skella sér í geggjað
ar göngur, til dæmis upp á fjallið
Þríhyrning. Einnig er steinsnar að
kíkja í dagsferð í Þórsmörk, eða
jafnvel til Vestmanna eyja. Þar
eru líka ferða þjónustufyrirtæki
líkt og Midgard og South Coast
Adventure, sem hafa margt spenn
andi upp á að bjóða.“
Söguslóðir
Ómar segir svæðið vera gullkistu
fyrir útivistarfólk. „Ég mæli með
að fólk skipuleggi útivistar ferðir,
hvort sem eru göngur, hestaferðir
eða annað. Þetta eru náttúru
lega Njáluslóðir og það að upplifa
svæðið á hestbaki, eins og Njáll
og Gunnar forðum, er algerlega
ólýsanlegt. Ég mæli líka sérstak
lega með því að kíkja í Sögusetrið,
ef fólk vill kynna sér Njálu betur,
áður en haldið er á Njáluslóðir.
Njála er spennusaga fyrir alla
aldurshópa og krakkarnir hafa
jafn gaman af því að læra um
kappana og fullorðna fólkið.“
Heillandi helgarferð
Hin fullkomna helgarferð í huga
Ómars myndi byrja á því að kíkja í
sund til að starta deginum. „Næst
myndi ég draga fjölskylduna í
góða gönguferð, til dæmis upp á
einn tind Þríhyrnings. Því næst
myndum við renna að Hellis
hólum og fá okkur snæðing, áður
en við héldum á ærslabelginn á
Hvolsvelli, sem er alveg æðisleg
útrás fyrir yngri kynslóðina.
Krakkarnir falla svo í djúpan og
ótruflaðan svefn fram á næsta
morgunn. Daginn eftir væri snilld
að halda inn í Þórsmörk, sem er
ein fallegasta náttúruperla okkar
Íslendinga, skella upp tjaldi fyrir
nóttina, ganga um svæðið og
grilla svo eitthvað girnilegt um
kvöldið.“
Ekki láta Hvolsvöll
framhjá þér fara
Útvarpsmaðurinn Ómar Úlfur Eyþórsson er
Hvolsvellingur í húð og hár. Ræturnar toga hann reglulega
úr ys og þys borgarinnar að heimsækja æskuslóðirnar.
Ómar Úlfur útvarpsmaður og Bára Jónsdóttir, kona hans, skelltu sér í dags-
ferð í Þórsmörk. Upphafsstaðurinn var að sjálfsögðu Hvolsvöllur.
Oft er sagt að
Eyjafjarðarsveit
sé blómlegasta
sveit Íslands.
Þar eru frábærar
gönguleiðir og
margt í boði.
ASKJA
KOMDU OG UPPLIFÐU!
HERÐUBREIÐ, DREKAGIL o.fl
1980 - 2020
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!
Sími: (+354) 464 - 1920
Email: myvatntours@gmail.com
Meiri upplýsingar: www.myvatntours.is
MÝVATN TOURS er fjölskyldurekið
ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í
Öskjuferðum með 40 ára reynslu.
Farið er um stórbrotið landslag Öskju, Vítis,
Drekagils, Herðubreiðarlindar og annarra
einstakra staða.
Í sumar er áætlað að bjóða uppá 2-4 ferðir
vikulega. Einnig bjóðum við uppá einkaferðir
í Öskju eða lengri um hálendið.
8 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RÍSLAND KOMDU MEÐ