Fréttablaðið - 27.06.2020, Qupperneq 39
Gríptu hjólið
með þér norður
í sumar.
Í sumar verður
tónlistarhátíðin
Úlfaldi úr Mýflugu
endurvakin en hún mun
fara fram dagana 3.- 4.
júlí í Jarðböðunum við
Mývatn Mývatn og
flugskýli Mýflugs.
Það sem helst einkennir Þing-eyjarsveit og Skútustaða-hrepp er gríðarleg fjölbreytni
í landslagi og útivistarmögu-
leikum, ásamt afþreyingu sem
henni tengist, segir Soffía Kristín
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Mývatnsstofu. „Á svæðinu má líka
finna margt gott að borða beint frá
býli og mikið úrval af gistimögu-
leikum. Hér eru 40 gistiheimili,
stór og smá, og sjö tjaldsvæði.
Hægt er að njóta svæðisins á marga
mismunandi vegu eftir áhugasviði
hvers og eins, hvort sem það eru
fjallgöngur, hjólaferðir, hesta-
ferðir, hálendisferðir, hellaskoðun,
skoðunarferðir, f lugferðir eða
bara afslöppun í fallegri náttúru. Á
svæðinu gætir þú dvalið í viku án
þess að borða á sama veitingastað
tvisvar, eða gista á sama gistiheim-
ili eða tjaldsvæði.“
Ýmsar náttúruperlur
Aðspurð um helstu náttúruperlur
og afþreyingu sem svæðið býður
upp á, segir hún margt koma upp
í hugann. „Það má nefna hraunið,
fjöllin, fossana og háhitasvæðin,
en þau standa upp úr á þessu svæði
að mínu mati. Flestir þekkja Detti-
foss og Goðafoss, en einnig mælum
við með Selfossi og Hafragilsfossi
við Dettifoss og Aldeyjarfossi og
Hrafnabjargafossi í Bárðardal.“
Hún segir margar styttri og lengri
gönguleiðir á svæðinu og það
sé einstaklega gaman að labba
um Dimmuborgir, en þar geta
gestir líka rekist á jólasveina. „Öll
fjölskyldan getur síðan hæglega
skokkað upp á Hverfjall (Hverfell)
og Vindbelgjarfjall. Allir ættu
síðan að nýta tækifærið í sumar og
kíkja í hálendisferð upp í Öskju og
Drekagil og skoða fjalladrottningu
Íslands, Herðubreið, en hægt er
að fara þangað í jeppaferðir, og
dagsferðir með rútu. Dalirnir í
Þingeyjarsveit eru líka dásam-
legir og vel þess virði að skoða, t.d.
Flateyjardalur og svo má skreppa
í Flatey. Mývatnssveitin stendur
alltaf fyrir sínu og þar eru margar
perlur sem eru mörgum kunnugar
eins og Skútustaðagígar, Höfði
og Grjótagjá, ásamt fjölbreyttu
fuglalífi.“
Tónlistarhátíð endurvakin
Í sumar verður tónlistarhátíðin
Úlfaldi úr Mýflugu endurvakin, en
hún mun fara fram dagana 3.- 4.
júlí í Jarðböðunum við Mývatn
og flugskýli Mýflugs. „Þar munu
koma fram listamennirnir Auður,
Bríet, krassasig, Dimma, Haki,
Stefán Elí og Cell7. Hátíðin fór fram
síðast árið 2010, svo það ríkir mikil
spenna í loftinu yfir þessari endur-
vakningu.“
Hún minnir síðan á að það sé
alltaf upplifun að heimsækja jóla-
sveinana í Dimmuborgum. „Þeir
taka á móti gestum í sögustund
alla laugardaga í sumar klukkan
13, en það eru ekki margir sem
hafa hitt þá svona yfir hásumarið
og heyrt þá segja sögur af sér.“
Einnig má nefna að Umhverfis-
stofnun býður upp á daglegar
gönguferðir með leiðsögn land-
varðar í Dimmuborgum, við Goða-
foss og víðar.
Fjölbreytt matarframboð
Að sjálfsögðu er nóg af góðum
mat í Þingeyjarsveit og Skútu-
staðahreppi og svæðið býður upp
á fjölbreytta flóru matvæla fyrir
fólk á öllum aldri. „Við Mývatn
er mikið af reyktum silungi og
hverarúgbrauði sem allir þurfa
að smakka. Margir bændur selja
síðan eigin afurðir beint frá býli,
eins og lambakjöt og nautakjöt, og
þeir sem eru með reykhús bjóða
að sjálfsögðu líka upp á hangikjöt.
Síðasta sumar opnaði ísbúðin
Skúta-ís á Skútustöðum, sem fram-
leiðir ís úr mjólk frá býlinu. Mozz-
arella-osturinn og fetaosturinn
í Vogafjósi er einnig framleiddur
þar. Mikið er lagt upp úr því að
bjóða upp á afurðir frá Norður-
landi, hvort sem það er kjöt eða
grænmeti, mjólkurafurðir og ís.“
Ýmis afþreying í boði
Fyrir utan alla náttúruna sem
fjölskyldan getur upplifað saman,
geta ferðalangar farið í sund-
laugina á Laugum eða í Jarðböðin
við Mývatn til að baða sig, segir
Soffía. „Fuglasafnið er einnig virki-
lega skemmtilegt og svo er hægt að
heimsækja byggðasafnið á Grenj-
aðarstað, sem er glæsilegur torf-
bær. Það er virkilega gaman fyrir
alla fjölskylduna að heimsækja
húsdýrin í Daladýrð og heimsækja
kýrnar í Vogafjósi. Síðan er hægt
að nýta sér bændagistingu, þar
sem börn geta nálgast dýrin á bæj-
unum. Laugavöllur er skemmti-
legur íþróttavöllur við tjaldsvæðið
og sundlaugina á Laugum, þar sem
börn á öllum aldri geta leikið sér.
Ekki má gleyma Vaglaskógi, en
hann er kjörinn til útivistar fyrir
börn og fullorðna. Það má því
með sanni segja að hér ríki ein-
stök veðursæld, náttúrufegurð og
dásamleg gestrisni og ég vona svo
sannarlega að sem flestir lands-
menn stoppi hér í sumar.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.visitmyvatn.is.
Dásamlegur staður að heimsækja
Einstök veðursæld, náttúrufegurð og dásamleg gestrisni, einkenna Þingeyjarsveit og Skútustaða-
hrepp, ásamt útivistarmöguleikum og ýmiss konar afþreyingu. Margt verður um að vera í sumar.
Jólasveinarnir í Dimmuborgum taka á móti gestum. MYND/ MARCIN KOZACZEK
Að skoða Goðafoss er skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna. MYND/JÓN TÓMAS EINARSSON
Fjölskylda á ferðalagi um svæðið snemmsumars, hér í Dimmuborgum. MYND:/JÓN TÓMAS EINARSSON.
KYNNINGARBLAÐ 9 L AU G A R DAG U R 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 ÍSLAND KOMDU MEÐ