Fréttablaðið - 27.06.2020, Síða 52

Fréttablaðið - 27.06.2020, Síða 52
Tilboð óskast í timburhús til brottflutnings Ríkiseignir óska eftir tilboðum í að fjarlægja timburhús. Staðsetning hússins er suð-vestur af Gljúfrasteini (Jónstótt) í Mosfellsdal. Um er að ræða eldri hluta hússins, 120 m2 að stærð ásamt sólstofu 16,3 m2. Húsið er timbur- hús frá Húsasmiðjunni, byggt árið 1974 með timburgólfi en á steyptum óuppfylltum sökkli (lagnakjallara). Sólstofan er byggð árið 1984. Trépallur er utan með húsinu. Ekki er reiknað með að kaupandi fjarlægi steypta hluta hússins. Húsið skal fjarlægt í síðasta lagi 15. ágúst 2020 og skal kaupandi gera það á sinn kostnað og ábyrgð. Frekari fyrirspurnir má senda á netfangið: utbod@rikiseignir.is Tilboðum skal skila til Ríkiseigna, Borgartúni 7A, 105 Reykjavík fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 21. júlí 2020. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. ÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið Ríkiskaup fyrir hönd Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum í eftirfarandi ljósbúnað: • Hreyfiljós Spot/Profile • Hreyfiljós Wash • Fastljós Wash • Upphengjur fyrir ofangreint Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ), miðvikudaginn 18. nóvember nk. Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is SKATTURINN OG SKATTRANNSÓKNAR- STJÓRI (SRS) - LEIGUHÚSNÆÐI Athygli er vakin á breyttum fyrirspurnarfresti og skilatíma tilboða. 21161 - Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir að t ka á leigu húsnæði miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu fyrir nýjar höfuð- stöðvar Skattsins og SRS. Umsjónaraðili er Framkvæmda- sýsla ríkisins. Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 30 ára, fullbúið til notkunar með föstum innréttingum og búnaði, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um sérhúsnæði á góðum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi og næg bílastæði bæði fyrir við kiptavini og starfsfólk. Einnig er gerð kraf um að húsnæðið ligg vel við almenning s mgöngum m.a. fyrirhugaða borgarlínu. Skilyrði er að húsnæðið verði tilbúið til notkunar eigi síðar en 18 mánuðum eftir undirritun leigu- samnings. Húsnæðisþörf Skattsins og Skattrannsóknarstjóra er áætluð um 9.800 fermetrar. Húsnæðið skal vera skrifstofu- og þjónustuhúsnæði sem miðast við þarfir Skattsins og SRS. Æskilegt er að húsnæðið sé ekki meira en 6 hæðir. Tilboðsgjafar (leigusalar) mega setja fram í leigutilboði þann valkost að bjóða ríkinu að taka á leigu til viðbótar, við áætlaða 9.800 fermetra fyrir Skattinn og SRS, allt að 2.000 fermetra af hefðbundnu skrifstofu- og þjónustuhúsnæði á sömu lóð og er þá miðað við að aðrir ríkisaðilar myndu nýta umrædda 2.000 fermetra fyrir sína starfsemi. Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla voru aðgengilegar í rafræna kerfinu TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/ miðvikudaginn 3. júní 2020. Fyrirspurnir varðandi auglýsinguna (Skatturinn og SRS – Leiguhúsnæði) skulu sendar rafrænt í gegnum kerfið TendSign og verða svör birt þar. Fyrirspurnarfrestur rennur út 14. ágúst 2020 en svarfrestur er til og með 21. ágúst 2020. Leigutilboðum skal skila rafrænt í TendSign eigi síðar en kl. 12:00, mánudaginn 31. ágúst 2020. Ekki verður tekið við tilboðum eftir að tilboðsfresti lýkur. Tilboðsgjafar eru því hvattir til að skila tilboðum tímanlega. Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr. Framboðið húsnæði þarf að vera komið vel áleiðis í bygg- ingarfasa til að geta komið til álita. Skipulag lóðar og ytri hönnun þarf jafnframt að liggja fyrir. Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa m.a. að innihalda eftir- farandi upplýsingar: • Afhendingartíma húsnæðis • Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og tillöguteikningar auk upplýsinga um efnisval s.s. veggjagerða, gólfefna o.s.frv. • Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu • Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð • Húsgjöld • Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og aðlægra lóða • Tilvísun í gildandi aðalskipulag • Skal leigusali leggja fram úttektarskýrslu (ástandsskýrslu), frá óháðum aðila, í henni skal m.a. skoða sérstaklega hvort húsnæðið sé myglulaust. Það skal gert áður en skrifað er undir leigusamning. • Önnur gögn sem eru tilskilin til að uppfylla kröfur húslýsingar. Nánar er fjallað um kröfur til tilboðsgjafa, um gagnaskil, leiguferli og matslíkan í köflum 3 til 6 í húslýsingu þessari. Leigutaki hefur skipað valnefnd til að meta innsend tilboð. Við val á hagkvæmustu lausn notast valnefnd við fyrir fram skilgreint matslíkan þar sem búið er að skilgreina hvaða matsþættir eru lagðir til grundvallar og hámarks vægi hvers og eins liggur fyrir. Þessir matsþættir eru: • Leiguverð • Gæði • Staðsetning • Nýsköpun & umhverfismál Hér er því verið að vega saman ofangreinda matsþætti og eru tilboðsgjafar hvattir til að bjóða mismunandi útfærslur í tilboðum sínum. Leigutaki áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum. Nánari upplýsingar um kröfur til leigusala, mat tilboða o.fl. koma fram í húslýsingu og fylgigögnum hennar. ESJUSTOFA TIL LEIGU Spennandi tækifæri í útivistarparadís! Esjustofa er staðsett við Esjurætur en undanfarin ár hefur þar verið rekið kaffihús. Húsnæðið er samtals 132.3 m2 að stærð með veitingarými, eldhúsi, afgreiðslu og salernum. Lóðin er um 5820 m2 að stærð. Um spennandi tækifæri er að ræða við eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins en árlega leggja tugþúsundir leið sína upp fjallið. Húsnæðið er laust til útleigu frá 1.júlí nk. Áhugasamir geta sent inn um- sóknir og fyrirspurnir á esjustofa2020@gmail.com Framlengdur frestur til athugasemda vegna tillögu að aðalskipulagsbreytingu Hamranes í Hafnarrði Á fundi bæjarstjórnar þann 13. maí sl. var samþykkt að auglýsa uppfærða greinargerð aðalskipulagsbreytingar, þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar, ásamt tillögu að aðalskipulagsbreytingu í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Í breytingunni felst landnotkunarbreyting við Hamranes. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem S34 (samfélags- þjónusta, 6ha) VÞ11 (verslunar- og þjónustu- svæði, 3ha) og ÍB13 (íbúðarsvæði, 14ha). Með breytingunni verður landnotkun svæðisins skilgreind sem M3 (miðbær/miðsvæði), heildarstærð þess verður 23ha. Ákveðið hefur verið að framlengja auglýsingartíma breytinganna til 27.07.2020 í stað 14.05.-26.06.2020. Tillögurnar ásamt fylgigögnum verða til sýnis í þjónustuveri Hafnar”arðar Strandgötu 6 og hjá umhver•s- og skipulagssviði að Norðurhellu 2 til 27.07.2020. Einnig er hægt að skoða gögnin á www.hafnar”ordur.is undir íbúar/skipulag í kynningu. Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er ge•nn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar í síðasta lagi 27. júlí 2020. Athugasemdir óskast sendar á skipulag@hafnar”ordur.is eða á: Hafnararðarkaupstaður bt. umhver•s- og skipulagssvið Strandgata 6 220 Hafnar”örður Nánar á hafnar”ordur.is SKIPULAGSBREYTING hafnarordur.is585 5500 Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2020 Óskað eftir hugmyndum og ábendingum Á afmæli Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst, eða sem næst þeim degi, ár hvert eru veittar viðurkenningar fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum og fyrir lóðir þjónustu-, stofnana- og fjölbýlishúsa sem þykja til fyrirmyndar. Auk þess eru veittar viðurkenningar fyrir vel útfærð svæði fyrir utan verslanir við „sumargötur“, þ.e. götur sem eru göngugötur á sumrin. Óskað er eftir ábendingum um hús og lóðir sem verðskulda fegrunarviðurkenningu í ár. Valið verður í höndum vinnuhóps sem skipaður er fulltrúum frá umhverfis- og skipulagssviði og Borgarsögusafni. Hugmyndir skulu sendar inn með tölvupósti merktum Fegrunarviðurkenningar 2020 á skipulag@reykjavik.is í síðasta lagi þann 17. júlí 2020. Fjallableikja ehf. – Stöðvarstjóri Óskar eftir að ráða stöðvarstjóra til að stjórna eldisstöð fyrirtækisins sem er staðsett á Hallgeirshólum í Grímsnesi. Þeir sem áhuga hafa á starfinu er bent á að skila umsóknum fyrir 29. júní inn á netfangið: gositre@gmail.com
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.