Fréttablaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 52
Tilboð óskast í timburhús
til brottflutnings
Ríkiseignir óska eftir tilboðum í að fjarlægja timburhús.
Staðsetning hússins er suð-vestur af Gljúfrasteini
(Jónstótt) í Mosfellsdal. Um er að ræða eldri hluta hússins,
120 m2 að stærð ásamt sólstofu 16,3 m2. Húsið er timbur-
hús frá Húsasmiðjunni, byggt árið 1974 með timburgólfi en
á steyptum óuppfylltum sökkli (lagnakjallara). Sólstofan
er byggð árið 1984. Trépallur er utan með húsinu. Ekki er
reiknað með að kaupandi fjarlægi steypta hluta hússins.
Húsið skal fjarlægt í síðasta lagi 15. ágúst 2020 og skal
kaupandi gera það á sinn kostnað og ábyrgð.
Frekari fyrirspurnir má senda á netfangið:
utbod@rikiseignir.is
Tilboðum skal skila til Ríkiseigna, Borgartúni 7A, 105
Reykjavík fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 21. júlí 2020.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið
Ríkiskaup fyrir hönd
Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi ljósbúnað:
• Hreyfiljós Spot/Profile
• Hreyfiljós Wash
• Fastljós Wash
• Upphengjur fyrir ofangreint
Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ),
miðvikudaginn 18. nóvember nk.
Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105
Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015,
kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
SKATTURINN OG SKATTRANNSÓKNAR-
STJÓRI (SRS) - LEIGUHÚSNÆÐI
Athygli er vakin á breyttum fyrirspurnarfresti
og skilatíma tilboða.
21161 - Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir að t ka á leigu
húsnæði miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu fyrir nýjar höfuð-
stöðvar Skattsins og SRS. Umsjónaraðili er Framkvæmda-
sýsla ríkisins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 30
ára, fullbúið til notkunar með föstum innréttingum og búnaði,
án lauss búnaðar. Gerð er krafa um sérhúsnæði á góðum
stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, gott aðgengi þ.m.t.
fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi og næg bílastæði
bæði fyrir við kiptavini og starfsfólk. Einnig er gerð kraf
um að húsnæðið ligg vel við almenning s mgöngum m.a.
fyrirhugaða borgarlínu. Skilyrði er að húsnæðið verði tilbúið
til notkunar eigi síðar en 18 mánuðum eftir undirritun leigu-
samnings.
Húsnæðisþörf Skattsins og Skattrannsóknarstjóra er áætluð
um 9.800 fermetrar. Húsnæðið skal vera skrifstofu- og
þjónustuhúsnæði sem miðast við þarfir Skattsins og SRS.
Æskilegt er að húsnæðið sé ekki meira en 6 hæðir.
Tilboðsgjafar (leigusalar) mega setja fram í leigutilboði
þann valkost að bjóða ríkinu að taka á leigu til viðbótar, við
áætlaða 9.800 fermetra fyrir Skattinn og SRS, allt að 2.000
fermetra af hefðbundnu skrifstofu- og þjónustuhúsnæði á
sömu lóð og er þá miðað við að aðrir ríkisaðilar myndu nýta
umrædda 2.000 fermetra fyrir sína starfsemi.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að
uppfylla voru aðgengilegar í rafræna kerfinu TendSign, á
vefslóðinni https://tendsign.is/ miðvikudaginn 3. júní 2020.
Fyrirspurnir varðandi auglýsinguna (Skatturinn og SRS –
Leiguhúsnæði) skulu sendar rafrænt í gegnum kerfið
TendSign og verða svör birt þar.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 14. ágúst 2020 en svarfrestur
er til og með 21. ágúst 2020.
Leigutilboðum skal skila rafrænt í TendSign eigi síðar en
kl. 12:00, mánudaginn 31. ágúst 2020. Ekki verður tekið við
tilboðum eftir að tilboðsfresti lýkur. Tilboðsgjafar eru því
hvattir til að skila tilboðum tímanlega.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum
um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr.
Framboðið húsnæði þarf að vera komið vel áleiðis í bygg-
ingarfasa til að geta komið til álita. Skipulag lóðar og ytri
hönnun þarf jafnframt að liggja fyrir.
Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa m.a. að innihalda eftir-
farandi upplýsingar:
• Afhendingartíma húsnæðis
• Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og tillöguteikningar
auk upplýsinga um efnisval s.s. veggjagerða, gólfefna
o.s.frv.
• Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu
• Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð
• Húsgjöld
• Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og aðlægra lóða
• Tilvísun í gildandi aðalskipulag
• Skal leigusali leggja fram úttektarskýrslu (ástandsskýrslu),
frá óháðum aðila, í henni skal m.a. skoða sérstaklega hvort
húsnæðið sé myglulaust. Það skal gert áður en skrifað er
undir leigusamning.
• Önnur gögn sem eru tilskilin til að uppfylla kröfur
húslýsingar.
Nánar er fjallað um kröfur til tilboðsgjafa, um gagnaskil,
leiguferli og matslíkan í köflum 3 til 6 í húslýsingu þessari.
Leigutaki hefur skipað valnefnd til að meta innsend tilboð.
Við val á hagkvæmustu lausn notast valnefnd við fyrir fram
skilgreint matslíkan þar sem búið er að skilgreina hvaða
matsþættir eru lagðir til grundvallar og hámarks vægi hvers
og eins liggur fyrir. Þessir matsþættir eru:
• Leiguverð
• Gæði
• Staðsetning
• Nýsköpun & umhverfismál
Hér er því verið að vega saman ofangreinda matsþætti og
eru tilboðsgjafar hvattir til að bjóða mismunandi útfærslur í
tilboðum sínum.
Leigutaki áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum tilboðum.
Nánari upplýsingar um kröfur til leigusala, mat tilboða o.fl.
koma fram í húslýsingu og fylgigögnum hennar.
ESJUSTOFA TIL LEIGU
Spennandi tækifæri í útivistarparadís!
Esjustofa er staðsett við Esjurætur en undanfarin ár hefur þar
verið rekið kaffihús. Húsnæðið er samtals 132.3 m2 að stærð
með veitingarými, eldhúsi, afgreiðslu og salernum. Lóðin er
um 5820 m2 að stærð. Um spennandi tækifæri er að ræða
við eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins en
árlega leggja tugþúsundir leið sína upp fjallið. Húsnæðið er
laust til útleigu frá 1.júlí nk. Áhugasamir geta sent inn um-
sóknir og fyrirspurnir á esjustofa2020@gmail.com
Framlengdur frestur til athugasemda
vegna tillögu að aðalskipulagsbreytingu
Hamranes í Hafnarrði
Á fundi bæjarstjórnar þann 13. maí sl. var
samþykkt að auglýsa uppfærða greinargerð
aðalskipulagsbreytingar, þar sem tekið hefur
verið tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar,
ásamt tillögu að aðalskipulagsbreytingu í
samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Í breytingunni felst landnotkunarbreyting við
Hamranes. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er
svæðið skilgreint sem S34 (samfélags-
þjónusta, 6ha) VÞ11 (verslunar- og þjónustu-
svæði, 3ha) og ÍB13 (íbúðarsvæði, 14ha). Með
breytingunni verður landnotkun svæðisins
skilgreind sem M3 (miðbær/miðsvæði),
heildarstærð þess verður 23ha.
Ákveðið hefur verið að framlengja
auglýsingartíma breytinganna til 27.07.2020 í
stað 14.05.-26.06.2020. Tillögurnar ásamt
fylgigögnum verða til sýnis í þjónustuveri
Hafnararðar Strandgötu 6 og hjá umhvers-
og skipulagssviði að Norðurhellu 2 til
27.07.2020. Einnig er hægt að skoða gögnin á
www.hafnarordur.is undir íbúar/skipulag í
kynningu.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er
genn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar í
síðasta lagi 27. júlí 2020. Athugasemdir óskast
sendar á skipulag@hafnarordur.is eða á:
Hafnararðarkaupstaður
bt. umhvers- og skipulagssvið
Strandgata 6
220 Hafnarörður
Nánar á hafnarordur.is
SKIPULAGSBREYTING
hafnarordur.is585 5500
Fegrunarviðurkenningar
Reykjavíkurborgar 2020
Óskað eftir hugmyndum og ábendingum
Á afmæli Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst, eða sem næst
þeim degi, ár hvert eru veittar viðurkenningar fyrir vandaðar
endurbætur á eldri húsum og fyrir lóðir þjónustu-, stofnana-
og fjölbýlishúsa sem þykja til fyrirmyndar. Auk þess eru veittar
viðurkenningar fyrir vel útfærð svæði fyrir utan verslanir við
„sumargötur“, þ.e. götur sem eru göngugötur á sumrin.
Óskað er eftir ábendingum um hús og lóðir sem verðskulda
fegrunarviðurkenningu í ár. Valið verður í höndum vinnuhóps
sem skipaður er fulltrúum frá umhverfis- og skipulagssviði og
Borgarsögusafni.
Hugmyndir skulu sendar inn með tölvupósti merktum
Fegrunarviðurkenningar 2020 á skipulag@reykjavik.is í
síðasta lagi þann 17. júlí 2020.
Fjallableikja ehf. – Stöðvarstjóri
Óskar eftir að ráða stöðvarstjóra til að stjórna eldisstöð
fyrirtækisins sem er staðsett á Hallgeirshólum í Grímsnesi.
Þeir sem áhuga hafa á starfinu er bent á að skila umsóknum
fyrir 29. júní inn á netfangið: gositre@gmail.com