Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 66

Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 66
Rangárþing eystra býður upp á margar af helstu náttúru-perlum Íslands, auk þess sem jarðvangurinn Katla er hluti þess. Sveitarfélagið samanstendur af Hvolsvelli, Fljótshlíð, Land- eyjum og Eyjafjöllum og er lega þess þannig að á stuttum tíma er hægt að komast yfir stórt svæði frá fjöru til fjalls, að sögn Ísólfs Gylfa Pálmasonar, fyrrverandi alþingismanns og sveitarstjóra og núverandi skógarbónda og áhugamanns um hjólreiðar. „Það er einungis um klukkustund- arakstur frá Reykjavík á Hvols- völl, sem stundum hefur verið nefndur lykillinn að Suðurlandi, þar sem þetta er í raun síðasti áfangastaðurinn áður en haldið er til fjalla, svo sem í Emstrur, Þórs- mörk og f leiri staða. Þess vegna er upplagt að koma í styttri eða lengri ferðir í Rangárþing.“ Einnig er hentugt fyrir þá sem vilja fara í dagsferð, jafnvel eftir vinnu, að fara í hjóla- eða göngu- ferð og njóta í leiðinni einhvers af þeim fjölmörgu góðu veitinga- stöðum sem svæðið býður upp á. „Þó er best að koma og dvelja í nokkra daga og upplifa allt það sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða. Hér má meðal annars finna átta tjaldsvæði, þannig að allir eiga að geta fundið sitt uppá- haldstjaldsvæði.“ Margar perlur Í sveitarfélaginu eru vinsælir áfangastaðir sem allir þekkja, eins og Seljalandsfoss, Skóga- foss, Þórsmörk og Emstrur, bætir Ísólfur við. „En hér eru líka ýmsar faldar perlur og þær má finna á nýrri heimasíðu sveitar- félagsins, visithvolsvollur.is. Til fróðleiks má nefna nokkrar, t.d. Efri-Hvolshella, sem eru friðlýstir, manngerðir hellar, rétt austan við Hvolsvöll. Tumastaðaskógur og Tunguskógur eru með helstu leyndarmálum okkar, en þar eru mjög fallegar göngu- og hjóla- leiðir, auk hjólaleiða fyrir lengra komna. Ekki má svo gleyma ævin- týralandi barnanna, sem er svo- kallaður „furðuveruskógur,“ en nemendur Hvolsskóla hafa tekið skóginn í fóstur.“ Hvolsvöllur er fjölskylduvænn staður með íþróttamiðstöð, skemmtilegan heilsustíg, sem gaman er að ganga og ærslabelg á miðbæjartúninu. „Í miðbænum stendur yfir árleg útiljósmynda- sýning sem ber heitið 860+. Af þreyingarmöguleikar eru fjölmargir, hvort heldur er úti í náttúrunni, í menningu og sögu, eða á sýningum og viðburðum. Einn merkasta og ríkasta menn- ingararf okkar Íslendinga er að finna á Byggðasafninu á Skógum og á Hvolsvelli má finna marg- verðlaunaða eldfjallasýningu í Lava Center. Árleg Kjötsúpuhátíð verður haldin dagana 28.-30. ágúst en þá gleðjast íbúar og gestir saman og njóta alls þess sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða.“ Hjólabærinn Hvolsvöllur Hvolsvöllur er mikill hjólabær og í raun allt sveitarfélagið, segir Ísólfur, en árið 1993 var haldin líklega fyrsta hjólreiða- hátíð landsins, undir merkinu Tour de Hvolsvöllur. „Síðan þá hefur sveitarfélagið vaxið mikið sem vinsælt hjólasvæði og hér má finna fjölmargar skemmti- legar hjólaleiðir, bæði í byggð og í óbyggðum. Sem dæmi, þá hjóla ég gjarnan í Fljótshlíðinni þar sem ég bý og í nágrenni Hvolsvallar, en svæðið hentar mjög vel til hjól- reiða fyrir alla aldurshópa og ólík getustig. Ég hvet því landsmenn til að kynna sér hvað sveitar- félagið hefur upp á að bjóða inni á visithvolsvollur.is.“ Fjölskylduvænt sveitarfélag Rangárþing eystra er í um klukkustundar fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Þar má finna margar af helstu náttúruperlum landsins, frábæra aðstöðu til hjólreiða og fjölbreytta afþreyingu. Hvolsvöllur er hjólabær og allt sveitarfélagið vinsælt hjá hjólreiðafólki. Í miðbænum á Hvolsvelli stendur yfir árleg útiljósmyndasýning sem ber heitið 860+. Af þreyingarmöguleikar eru fjölmargir í sveitafélaginu. RaNgárþiNg-eYsTrA Tumastaðaskógur aFþrEyInG oG útIvIsT fYrIr aLlA! Sundlaugin á Hvolsvelli Landeyjasandur Opinn landbúnaður Gaman í sveitinni Skógar SkógafossÚtivist undir eyjafjöllum www.V is itHvolsvöllur . is KoMdU mEð! Þórsmörk 12 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RÍSLAND KOMDU MEÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.