Fréttablaðið - 27.06.2020, Síða 66
Rangárþing eystra býður upp á margar af helstu náttúru-perlum Íslands, auk þess
sem jarðvangurinn Katla er hluti
þess. Sveitarfélagið samanstendur
af Hvolsvelli, Fljótshlíð, Land-
eyjum og Eyjafjöllum og er lega
þess þannig að á stuttum tíma er
hægt að komast yfir stórt svæði
frá fjöru til fjalls, að sögn Ísólfs
Gylfa Pálmasonar, fyrrverandi
alþingismanns og sveitarstjóra
og núverandi skógarbónda og
áhugamanns um hjólreiðar. „Það
er einungis um klukkustund-
arakstur frá Reykjavík á Hvols-
völl, sem stundum hefur verið
nefndur lykillinn að Suðurlandi,
þar sem þetta er í raun síðasti
áfangastaðurinn áður en haldið er
til fjalla, svo sem í Emstrur, Þórs-
mörk og f leiri staða. Þess vegna
er upplagt að koma í styttri eða
lengri ferðir í Rangárþing.“
Einnig er hentugt fyrir þá sem
vilja fara í dagsferð, jafnvel eftir
vinnu, að fara í hjóla- eða göngu-
ferð og njóta í leiðinni einhvers
af þeim fjölmörgu góðu veitinga-
stöðum sem svæðið býður upp
á. „Þó er best að koma og dvelja í
nokkra daga og upplifa allt það
sem sveitarfélagið hefur upp á
að bjóða. Hér má meðal annars
finna átta tjaldsvæði, þannig að
allir eiga að geta fundið sitt uppá-
haldstjaldsvæði.“
Margar perlur
Í sveitarfélaginu eru vinsælir
áfangastaðir sem allir þekkja,
eins og Seljalandsfoss, Skóga-
foss, Þórsmörk og Emstrur,
bætir Ísólfur við. „En hér eru líka
ýmsar faldar perlur og þær má
finna á nýrri heimasíðu sveitar-
félagsins, visithvolsvollur.is. Til
fróðleiks má nefna nokkrar, t.d.
Efri-Hvolshella, sem eru friðlýstir,
manngerðir hellar, rétt austan
við Hvolsvöll. Tumastaðaskógur
og Tunguskógur eru með helstu
leyndarmálum okkar, en þar eru
mjög fallegar göngu- og hjóla-
leiðir, auk hjólaleiða fyrir lengra
komna. Ekki má svo gleyma ævin-
týralandi barnanna, sem er svo-
kallaður „furðuveruskógur,“ en
nemendur Hvolsskóla hafa tekið
skóginn í fóstur.“
Hvolsvöllur er fjölskylduvænn
staður með íþróttamiðstöð,
skemmtilegan heilsustíg, sem
gaman er að ganga og ærslabelg á
miðbæjartúninu. „Í miðbænum
stendur yfir árleg útiljósmynda-
sýning sem ber heitið 860+.
Af þreyingarmöguleikar eru
fjölmargir, hvort heldur er úti í
náttúrunni, í menningu og sögu,
eða á sýningum og viðburðum.
Einn merkasta og ríkasta menn-
ingararf okkar Íslendinga er að
finna á Byggðasafninu á Skógum
og á Hvolsvelli má finna marg-
verðlaunaða eldfjallasýningu í
Lava Center. Árleg Kjötsúpuhátíð
verður haldin dagana 28.-30.
ágúst en þá gleðjast íbúar og
gestir saman og njóta alls þess
sem sveitarfélagið hefur upp á að
bjóða.“
Hjólabærinn Hvolsvöllur
Hvolsvöllur er mikill hjólabær
og í raun allt sveitarfélagið,
segir Ísólfur, en árið 1993 var
haldin líklega fyrsta hjólreiða-
hátíð landsins, undir merkinu
Tour de Hvolsvöllur. „Síðan þá
hefur sveitarfélagið vaxið mikið
sem vinsælt hjólasvæði og hér
má finna fjölmargar skemmti-
legar hjólaleiðir, bæði í byggð og í
óbyggðum. Sem dæmi, þá hjóla ég
gjarnan í Fljótshlíðinni þar sem
ég bý og í nágrenni Hvolsvallar,
en svæðið hentar mjög vel til hjól-
reiða fyrir alla aldurshópa og ólík
getustig. Ég hvet því landsmenn
til að kynna sér hvað sveitar-
félagið hefur upp á að bjóða inni á
visithvolsvollur.is.“
Fjölskylduvænt sveitarfélag
Rangárþing eystra er í um klukkustundar fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Þar má finna margar
af helstu náttúruperlum landsins, frábæra aðstöðu til hjólreiða og fjölbreytta afþreyingu.
Hvolsvöllur er hjólabær og allt sveitarfélagið vinsælt hjá hjólreiðafólki.
Í miðbænum á Hvolsvelli stendur yfir árleg útiljósmyndasýning sem ber
heitið 860+. Af þreyingarmöguleikar eru fjölmargir í sveitafélaginu.
RaNgárþiNg-eYsTrA
Tumastaðaskógur
aFþrEyInG oG útIvIsT
fYrIr aLlA!
Sundlaugin á Hvolsvelli
Landeyjasandur
Opinn landbúnaður
Gaman í sveitinni Skógar
SkógafossÚtivist undir eyjafjöllum
www.V is itHvolsvöllur . is
KoMdU mEð!
Þórsmörk
12 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RÍSLAND KOMDU MEÐ