Fréttablaðið - 27.06.2020, Síða 68

Fréttablaðið - 27.06.2020, Síða 68
Eiríkur hafði sagt hart nei en birtist svo með þetta æðislega hjólhýsi og sagði það útskriftargjöfina mína. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Mæðgurnar Freyja og Ísmey, sem er sex ára og elskar nýja hjólhýsið eins og mamma hennar, enda komin með sér hillu undir dótið sitt og getur meira að segja dregið tjald fyrir kojuna. FRÉTTA- BLAÐIÐ/VALLI Ég var auðvitað himinsæl með hjólhýsið og yfir mig spennt að fara í útilegu. Við brun- uðum strax með hjólhýsið í hlaðið hjá sumarhúsi ömmu hans og afa og börnin hlökkuðu ekkert smá til að sofa í kojum,“ segir markaðs- fræðingurinn Freyja Leópolds- dóttir, sem fékk hjólhýsi að gjöf frá sínum heittelskaða, Eiríki Lárussyni, þegar hún útskrifaðist úr MBA-námi í vor. „Ég sjálf er ekki alin upp við útilegur en Eiríkur mjög mikið. Foreldrar hans voru duglegir að ferðast með börnin sín fjögur um landið og pabbi hans smíðaði meira að segja eigin húsbíl með kojum fyrir krakkana,“ upplýsir Freyja. Þau Eiríkur hófu útilegubúskap- inn í tjaldvagni, en færðu sig yfir í fellihýsi þegar fjölskyldan stækkaði. „Mér finnst óskaplega notalegt að vera í tjaldi en þegar börnin voru orðin þrjú á aldrinum fimm ára og yngri var okkur farið að vaxa í augum allur sá tími sem tekur að pakka upp og niður. Við vorum því farin að gæla við það að fá okkur hjólhýsi, en það var samt alls ekki á dagskránni eftir dýrt nám og endurtekin fæðingarorlof,“ segir Freyja. Það var svo Lárus sem lét draumana rætast, þegar frændfólk hans fékk sér nýtt hjólhýsi. „Þá hafði hann samband við frændfólkið og keypti gamla hjól- hýsið í laumi. Hann hafði sum sé sagt hart nei við hjólhýsi áður, en birtist svo með þetta æðis- lega hjólhýsi heima og sagði það vera útskriftargjöfina mína, sem var svo sem meira sagt í gríni en alvöru,“ segir Freyja sæl. Hún segir fyrstu nóttina í hjól- hýsinu hafa verið allsendis ólíka því að sofa í tjaldvagni eða felli- hýsi. „Það var skrýtið að sofna í svona miklu myrkri, því myrkvunar- gard ínur hjólhýsisins hleypa engu ljósi inn og maður finnur heldur ekkert fyrir veðri í hjólhýsinu. Öll umhverfishljóð og partí í næstu Fékk hjólhýsi í útskriftargjöf Freyja Leópoldsdóttir var farin að láta sig dreyma um hjólhýsi til að létta á umstanginu sem fylgdi ferðalagi fjölskyldunnar í fellihýsinu. Eiginmaðurinn kom henni þægilega á óvart. Hjólhýsið er lítið en plássið vel nýtt og kemur hjónarúmið niður úr loftinu. tjöldum fara framhjá manni og maðurinn minn upplifir sig minna í útilegu en áður, en lúxusinn er æðislegur og það fer rosa vel um mann,“ segir Freyja. Dásamleg samvera í útilegu Hjólhýsi Freyju er það eina sinnar tegundar á landinu, afmælisút- gáfa sem var flutt inn sem stakt sýningareintak. „Það fer ekki framhjá neinum þegar við erum á ferðinni. Hjól- hýsið er fagurlega skreytt blóma- munstri og það er pínulítið, en þó með svefnplássi fyrir sex fullorðna því hjónarúmið kemur niður úr loftinu,“ segir Freyja sem orðin er mikil útilegukona. „Já, ég elska að fara í úti- legur og ekki síst núna þegar ég get fyrirhafnarlaust sett hjólhýsið á krókinn og lagt af stað. Við höfum undanfarin ár byggt okkur hús og það er gott að komast úr því amstri og geta bara keyrt í sveitina og slappað af. Áður snerist allt um hversu mikið maður tók með í tjaldvagninn, eða komst í litla sjö manna bílinn, en nú hálfskammast maður sín fyrir hvað maður tekur mikið með. Þetta eru því breyttir tímar. Þá voru glös og diskar í einum plastkassa og maturinn í öðrum og hver með sína tösku, en nú á hver sína hillu í hjólhýsinu, sem ekki er tæmd milli ferða.“ Þau Eiríkur hafa alltaf ferðast meira innanlands saman en utan. „Uppáhaldstjaldsvæðið mitt er á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði. Það er við sveitabæ og í námunda við húsdýrin og börnin elska það. Svo labbar maður í gegnum undirgöng og yfir í fjöruna þar sem er trilla til að leika sér í og heitur pottur,“ segir Freyja sem stefnir á útilegu flestar helgar í sumar. „Mér finnst nálægðin við nátt- úruna mest heillandi við úti- legur. Okkur þykir gaman að fara í gönguferðir og skoða læki og fossa. Börnin bíða alltaf spennt eftir að komast í útilegu og þykir nú æðislegt að klifra upp í hjól- hýsið og geta dregið gardínur fyrir kojurnar. Það er líka gaman að sýsla með mat í þessu fína eldhúsi, en við kaupum aldrei hefðbundinn grillmat, tilbúinn maríneraðan út úr búð, heldur útbúum okkar mat sjálf, bökum pönnupitsur og brauðstangir á grillinu sem er mjög vinsælt.“ Hvert farið er, fer oftast eftir veðri og vindum. „Með hjólhýsi þarf maður að fylgjast grannt með veður- og vindaspám. Við ferðumst mikið með fjölskyldu mannsins míns. Þar eru allir á húsbílum og hjól- hýsum. Bróðir minn keypti sér reyndar fellihýsi í fyrra, en ég held að maður þurfi að vera alinn upp við útilegur til að fara mikið í þær sjálfur. Þannig láta foreldrar mínir sér nægja að koma til okkar í dags- ferð og fá sér kaffisopa, ef þau eru í nágrenninu.“ Freyja segir útilegur dýrmætar og uppbyggjandi fyrir fjölskyldu- lífið. „Í útilegum fer maður í annan takt en þegar maður er heima í rútínunni. Krakkarnir njóta þess að vera frjálsir og eignast nýja vini og þau kynnast frændfólkinu vel. Útilegur skapa því góðar minn- ingar og dásamlega samveru.“ Hótel-Veitingastaður-Listagallerý Bergstaðastræti 37 101 Reykjavík 552-5700 E-mail: Holt@holt.is www.holt.is 14 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RÍSLAND KOMDU MEÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.