Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 70

Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 70
 Það er hægt að kynnast dýrunum í sveitinni, kanna skemmtilegar göngu- leiðir, fara í hestaferðir, kajakferðir, eða spila golf. Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Um er að ræða eina af ást-sælustu vegasögum okkar tíma. Þeim fáeinu hræðum sem hafa enn ekki kynnt sér þessa frábæru menningargersemi er bent á að hætta að lesa greinina undir eins, því hér á eftir munu fara ýmsar uppljóstranir sem ætlaðar eru aðdáendum Stellu en gætu skemmt fyrir fyrsta áhorfi ókunnugra. Með aðalhlutverk í Stellu í orlofi fara þau Edda Björgvinsdóttir (Stella), Gestur Einar Jónasson (Georg), Þórhallur Sigurðsson (Sal- omon), Sólveig Arnarsdóttir (Eva), Unnur Berglind Guðmundsson (Silja), Gísli Rúnar Jónsson (Anton f lugstjóri), Ása Hlín Svavarsdóttir (sænska gæran), Björgvin Franz Gíslason (sveitastrákur) og Hildur Guðmundsdóttir (sveitastelpa). Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs- dóttir og handritshöfundur er Guðný Halldórsdóttir. Bláar sokkabuxur, lýsislykt, pappír og berjaljóð Stella, ráðagóð og eiturhress húsmóðir í Reykjavík, tekur þá afdrifaríku ákvörðun að skella sér í veiðiferð eftir að Georg, maðurinn hennar handleggs- brotnar og þarf að hætta við téða veiðiferð, sem að sjálfsögðu er ekkert annað en framhjáhaldsferð í dulargervi með „gærunni“ sem nefnd er í upphafi pistils. Upp- hefst stórskemmtilegt ferðalag þar sem alkóhólistinn Salomon, sem sjálfur ætlar í SÁÁ-meðferð, er sóttur á f lugvöllinn í misgripum fyrir „viðskiptafélaga Georgs“, sem að sjálfsögðu er engin önnur en framangreind gæra sem í kjöl- farið sést reglulega skakklappast um vegakerfi landsins í leit að Georg á háum hælum og bláum sokkabuxum alla leið í veiði- húsið við Selá, þar sem megnið af kvikmyndinni á sér stað. Við sögu koma kátir meðlimir Lionsklúbbs- ins Kidda, ógleymanleg veiðiferð lituð dagdrykkju, fornmælt sveita- systkini, bændafólk sem selur engar landbúnaðarafurðir, horfin veska, laxahjarta sem angar af lýsi og fjölmörg önnur ógleymanleg atriði. Egg eru uppspretta ógæfu Egg, spæld eður ei, koma víða við sögu í kvikmyndinni, en atriðið þar sem Stella og Salomon vippa upp hurðinni að veiðihúsinu endar á því að egg brotnar á höfði Salomons og eftirfarandi setning hljómar: „Herregud, þetta er blóð“. Einnig muna margir eftir gömlu konunni í hjólastólnum sem lemur göngustaf sínum ítrek- að í bæjardyrnar og æpir í sífellu: „egg!“. Persónur kvikmyndar- innar efast sífellt um gæfusemi og manngildi Georgs enda er hann sérlega aumkunarverð persóna. Ólán hans hefst á því þegar hann missir andlitið bókstaflega ofan í Út með gæruna „Út með gæruna!“ er ein þekktasta setning íslenskrar kvikmyndasögu fyrr og síðar. Setningin kemur fram í kvikmyndinni Stella í orlofi sem frumsýnd var þann 18. október 1986. Frú Stella Löve og Salomon skála fyrir góðum feng í Selá. „gulu majónesuna“ í afmælisboði í upphafi kvikmyndarinnar, en glöggir lesendur vita að majónes er ekkert annað en egg og olía. Einnig má nefna sveitasystkinin sem hafna peningum Georgs og systirin hefur orð á því að hann virðist eigi gæfumaður vera. Á eftir koma þessi f leygu orð frá bróður hennar: „Vel var þetta mælt Sigríður mín og segir mér hugur um að þú hafir spælt mann þennan.“ Þessi stórskemmtilega ferðasaga er án efa ein tilvitnaðasta kvik- mynd Íslandssögunnar og kveikir hjá f lestum óslökkvandi ferðaþrá um íslenska vegi og náttúru. Gistimöguleikarnir innan Hey Ísland eru mjög fjöl-breyttir: sumarhús, íbúðir, gistiheimili af öllum stærðum og gerðum og hin glæsilegustu sveitahótel. Það ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri hjá Ferðaþjónustu bænda. Víða er afþreying í boði á gisti- staðnum, eða í nánasta umhverfi hans. „Það er hægt að kynnast dýrunum í sveitinni, kanna skemmtilegar gönguleiðir, fara í hestaferðir, kajakferðir, eða spila golf. Möguleikarnir eru endalausir á ferðalögum um landið okkar.“ Einnig er hægt að leita að veitingastöðum, en margir þeirra bjóða upp á hráefni beint frá býli eða annað spennandi hráefni úr héraði. „Margir þessara veitinga- staða eru mjög skemmtilegir og það er gaman að kynnast ólíku hráefni og réttum eftir lands- hlutum.“ Gjafabréfin eru vinsæl „Einfalt er að kaupa gjafabréf á hey. is en þau verða sífellt vinsælli gjafa- kostur, enda stórsniðug gjöf sem gleður,“ segir Berglind. Þau gilda bæði fyrir ferðalög innanlands með Hey Íslandi og Bændaferðum út í heim, sem er annað vörumerki Ferðaþjónustu bænda hf. Nú er einfalt að skipuleggja draumafríið Það er tilvalið að panta gistingu og afþreyingu gegnum íslensku bókunarsíðuna hey.is, sem er í eigu Ferðaþjónustu bænda hf. Innan hennar má finna ferðaþjónustubændur á um 160 stöðum víða um land. Staðirnir eru eins ólíkir og þeir eru margir, sem gerir upplifunina skemmtilega. Gistimöguleikarnir innan Hey Ísland eru mjög fjölbreyttir. Tilboð og séróskir Fjölbreytt tilboð eru í gangi yfir sumarið sem gott er að kynna sér þegar sumarfríið er skipulagt. Má þar meðal annars nefna gistingu og golf um allt land, lúxusgöngu- ferðir eða gistiupplifun, aftur til gamla tímans á Austurlandi og matarupplifun á Norðurlandi. „Svo má skoða ævintýradvöl á Vestfjörðum, sjálf bærni í sveitinni á Suðurlandi og sveitasælu á Vesturlandi, svo nokkur tilboð séu talin upp.“ Þeir sem ferðast um landið á raf bílum, eða eru með gæludýr með sér á ferðalaginu, geta leitað á hey. is eftir gististöðum sem bjóða upp á sérhæfðri þjónustu, sem og gististaði með hjólastólaaðgengi. Mögnuð, íslensk náttúra Berglind segir magnað að vera úti í íslenskri náttúru og í sumar gefist Íslendingum einstakt tækifæri til að njóta hennar og jafnframt að upplifa alla þá grósku sem fyrir- finnst í íslenskri ferðaþjónustu í dag. „Við hjá Hey Íslandi hvetjum alla til að ferðast sem mest innan- lands í sumar og njóta alls þess sem náttúran og fólkið í landinu hefur upp á að bjóða. Gleðilegt ferðasumar!“ 16 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RÍSLAND KOMDU MEÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.