Fréttablaðið - 27.06.2020, Síða 71
Ég get fullyrt að Hornfirðingar eru skemmtilegir heim að sækja og góðir gestgjafar“,
segir Ásta Júlía Theodórsdóttir sem
býr á Hala í Suðursveit og rekur
þar gistihúsið Skyrhúsið, sem er
umvafið litríkum og lögulegum
fjöllum.
„Perlur Hornafjarðar eru margar
og náttúrufegurðin allt um kring,
en ég held að Lónið sé einhver van-
metnasta sveit landsins, náttúru-
lega séð. Hér er einstök fjallasýn,
jöklarnir, sandarnir og sjórinn, og
orkan eftir því.“
Ásta Júlía segir gott fyrir munn
og maga að kynnast matarmenn-
ingu Hornafjarðar.
„Það er auðvitað ómissandi að
fá sér hornfirskan humar. Á Höfn
er einn fegursti og besti veitinga-
staður landsins, OTTO Matur og
drykkur, og svo stendur Hafnar-
búðin alltaf fyrir sínu og ekkert
að humarlokunni þar. Þá svíkur
Hala-lambið og bleikjan á Þór-
bergssetri engan. Því er ekki annað
en að drífa sig af stað, finna plötuna
Algjör Sveppur með Gísla Rúnari
á Spotify, hækka í botn og syngja
hástöfum með; „Í sveit, í sveit, í
Suðursveit …“.“
Leyndarmálin ótal mörg
„Helstu töfrar Hornafjarðar eru
stórbrotin náttúra allt í kring,
sem mótast hefur í aldanna rás af
eldvirkni, rofi og framburði jökla
Faldar perlur í Ríki Vatnajökuls
Hornafjörður geymir margar af fegurstu náttúruperlum Íslands. Mannlífið er líka blómlegt, sem
og margslungin menningin, gómsætur maturinn og mögnuð sagan sem drýpur af hverju strái.
Leyndardómar
í Ríki Vatna-
jökuls eru svo
margir að það
tæki ferðafólk
margar vikur að
skoða þá alla.
MYND/ÞORVARÐUR
ÁRNASON
RÍKI VATNAJÖKULS
BÝÐUR HEIM Í SUMAR
VISITVATNAJOKULL.IS
og jökulvatna. Jöklarnir og svartir
sandarnir, ásamt jökulsorfnum
fjöllum, setja sterkan svip á svæðið
og það má með sanni segja að
jöklasýnin sé engu lík í Horna-
firði,“ segir Berglind Steinþórs-
dóttir, eigandi afþreyingarfyrir-
tækisins Glacier Adventure á Hala.
Hún segir Íslendinga eiga eftir
að uppgötva kyrrðina í náttúru
Hornafjarðar og hversu fjölbreytt
hún er, bæði stórbrotið landslagið
en ekki síður sé menningarsaga
Vatnajökulsþjóðgarðs einstæð á
heimsvísu.
„Margt er ómissandi að sjá
og upplifa í Hornafirði og best
geymdu leyndarmálin eru svo ótal
mörg og það tæki ferðafólk margar
vikur að skoða þau öll,“ upplýsir
Berglind. „Á svæðinu eru fjöl-
breyttar gönguleiðir, sumar fjöl-
farnar en aðrar ekki. Ein falin perla
sem má nefna er Þröng, austan
við Jökulsárlón. Þar mæli ég með
að ganga inn í Veðurárdal, ganga
á Breiðamerkurjökul að sumri
til, eða skoða íshella á veturna.
Hafa ber í huga að mikilvægt er að
fara ekki á jökulinn nema í fylgd
reyndra jöklaleiðsögumanna,
og eru þó nokkur heimafyrir-
tæki sem bjóða upp á jöklaferðir í
Vatnajökulsþjóðgarði.“
Hlustað á nið aldanna
„Í menningu Hornfirðinga er af
mörgu að taka. Á Höfn er listasafn
sem er gaman að heimsækja og þar
er hægt að panta gönguferðir með
leiðsögn um þorpið. Fjölmargir
veitingastaðir með flottum mat
eru við höfnina og þar er göngu-
stígur meðfram firðinum með
einstöku útsýni og hægt að fræðast
um sólkerfið í leiðinni,“ segir
Þorbjörg Arnórsdóttir á Þórbergs-
setrinu á Hala, þar sem er sýning
um Þórberg Þórðarson rithöfund
og sögusvið bóka hans.
„Ég held að Íslendingar eigi eftir
að uppgötva alla fallegu staðina
við þjóðveginn á Hornafirði, að
staldra við um stund og taka sér
gönguferð út í náttúruna þar sem
stutt er að fara, skynja ósnortna
náttúru og vera í raun aleinn í
heiminum. Sem dæmi má nefna
Sandfell í Öræfum, Kvíármýrar-
kamb, Kvísker að austan, eyðibýli
undir Fellsfjalli að vestan, þar sem
Breiðamerkurjökull mætir Fells-
fjalli. Austar er gaman að keyra
inn að Heinabergsjöklum, þar eru
kajakferðir á Heinabergslóni, aka
að Fláajökli og Hoffellsjökli, svo
að ég tali nú ekki um vegslóða inn
að Haukafelli, reit og tjaldstæði
Skógræktarfélags Austur-Skafta-
fellssýslu. Það er því ástæða til
að dvelja í Hornafirði, kaupa sér
gistingu í nokkrar nætur, njóta
veitinga á heimaveitingastöðum
og kanna nýja staði þar sem hægt
er að lesa í landið. Einnig mæli ég
með að kynna sér einstaka sögu
um sambýli við jökul og jökulár,
líta augum einstakt jöklalandslag,
villtan gróður og „hlusta á nið
aldanna,“ við horfnar húsarústir,
svo vitnað sé í höfuðskáld Skaft-
fellinga, Þórberg Þórðarson,“ segir
Þorbjörg.
KYNNINGARBLAÐ 17 L AU G A R DAG U R 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 ÍSLAND KOMDU MEÐ