Fréttablaðið - 27.06.2020, Side 82
B
irt m
eð fyrirvara um
verð- og m
yndabrengl.
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Bílaríki, Akureyri
Glerárgötu 36
Sími: 461 3636benni.is
Fimm ára
ábyrgð
+ Fjórhjóladrif með læsingu
+ Gott aðgengi
+ 1,5 tonna dráttargeta
+ Ríkulegur staðalbúnaður
+ Góð yfirsýn yfir umhverfið
+ Frábærir akstureiginleikar
1975 | Sérfræðingar í bílum | 2020
Verð á sjálfskiptum Tivoli:
3.890.000 kr.
ÖRFÁ SÝNINGAREINTÖK Á LAGER!
Egóið varð fyrir smá hnjaski
Svo fór alls ekki og Elínu var boðið
hlutverkið. „Ég fékk þá að heyra að
ég ætti að leika móður Rachel og var
ánægð fyrst þegar ég byrjaði að lesa
lýsingu á karakternum, sem er sögð
falleg svo ég var ánægð með það, en
ekki eins ánægð þegar ég las að hún
ætti að vera sextug,“ segir Elín og
skellir upp úr, en sjálf er hún 48 ára.
„Egóið varð fyrir smá hnjaski, en
auðvitað var ég ánægð með að fá
hlutverkið. Það er búið að ala mann
upp í því að það sé svo hræðilegt að
eldast. Maður er kominn í einhvern
hugsanaheim þar sem það er nei-
kvætt. En það eru bara þvílík for-
réttindi að fá að eldast. Pabbi minn
dó ungur og margir vinir mínir
hafa þurft að berjast við krabba-
mein á unga aldri, svo ég lít á það
sem forréttindi að vera hraust og fá
að eldast.“
Elín bendir líka á að hún sé í
góðum félagsskap, því leikkonan
Amy Poehler hafi áður leikið móður
Rachel McAdams, í Mean Girls, en
hún er aðeins hálfu ári eldri en Elín.
Aðspurð um hlutverkið segist Elín
hafa tekið þátt í nokkrum senum.
„Þetta er svo rosalega stór kvik-
mynd. En ég er enn ekki búin að sjá
hana í heild sinni, og ég reikna yfir-
leitt ekki með neinu fyrr en ég er
búin að sjá myndina.“
Bara venjulegt fólk
Tökur fóru fram bæði í London og
á Húsavík og segir Elín þær hafa
gengið vel og að vel hafi farið á með
þeim „mæðgum“.
„Hún er auðvitað svo sæt og fín og
þau öll og þetta var allt svo almenni-
legt fólk. Líka íslensku leikararnir,
sem ég hafði auðvitað aldrei hitt.“
Elín ber Will Ferrell vel söguna.
„Þetta er auðvitað bara venjulegt
fólk, en maður leyfir því líka að vera
í friði. Ég vann á sínum tíma sem
þjónn í New York og ég held að allir
þeir sem hafi unnið sem þjónar þar
eða í Los Angeles hafi þjónað mörgu
frægu fólki. Maður lærir þá að þetta
er venjulegt fólk, bara að gera sitt
eins og við.“
Elín segir þetta klárlega vera
stærstu kvikmynd sem hún hafi
Elín ætlaði
sér aldrei að
verða leik-
kona, en bæði
faðir hennar og
stjúpfaðir lögðu
leiklistina fyrir
sig og fannst
henni nóg talað
um leikhúsið
í sinni æsku.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
tekið þátt í. „Þetta var af annarri
stærðargráðu en það sem ég hef
tekið þátt í. Það er skondið að hugsa
til þess að þegar við vorum við tökur
í London fékk ég minn eigin trailer
á setti, þar sem ég var ein í friði, en
tveimur vikum seinna var ég komin
í verkefni í Finnlandi, þar sem ég
skipti um föt á almenningsklósetti.
Ég er frekar vön svona minni verk-
efnum, þar sem maður skiptir um
baksviðs eða inni á klósetti. Það er
gaman að fá að prófa allan skalann.“
Bjó í draumahúsinu
Eins og fyrr segir fór hluti tökunnar
fram á Húsavík, en þangað hafa Elín
og maðurinn hennar vanið komur
sínar á sumrin. „Þarna er hús sem
ég hef verið gjörsamlega ástfangin
af frá því ég sá það fyrst. Ég hef alltaf
hugsað að einhvern tíma muni ég
kaupa þetta hús. En það er vissulega
á Húsavík, sem er ekki beint praktís-
kasti staðurinn fyrir þá sem skipta
tíma sínum á milli Reykjavíkur og
New York. Þegar ég svo les hand-
ritið, sé ég að þetta er húsið sem
persónan mín býr í. Það fyrsta sem
ég sagði við leikstjórann þegar ég
mætti á settið var: Er þetta virkilega
þetta gráa hús?“ segir Elín og leikur
geðshræringu sína með tilþrifum og
við erum sammála um að nú verði
hún hreinlega að kaupa þetta hús.
„Ég er auðvitað búin að segja
öllum á settinu þessa sögu og ég
held að þau trúi mér ekkert, enda
átta þau sig varla á hversu lítið
landið er.“
ÉG VANN Á SÍNUM TÍMA
SEM ÞJÓNN Í NEW YORK
OG ÉG HELD AÐ ALLIR
ÞEIR SEM HAFI UNNIÐ SEM
ÞJÓNAR ÞAR EÐA Í LOS
ANGELES HAFI ÞJÓNAÐ
MÖRGU FRÆGU FÓLKI.
MAÐUR LÆRIR ÞÁ AÐ
ÞETTA ER VENJULEGT
FÓLK, BARA AÐ GERA SITT
EINS OG VIÐ.
Rachel McAdams fer með annað aðalhlutverkanna í Eurovision: The Story
of Fire and Saga og fer Elín með hlutverk móður hennar. MYND/NETFLIX
2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð