Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 92

Fréttablaðið - 27.06.2020, Page 92
LISTAMENN ERU AÐ NOTA RAUNSÆIÐ TIL AÐ SKILJA UMHVERFI SITT EN LÍKA SJÁLFA SIG OG MÁLA ÞAÐ SEM STENDUR ÞEIM NÆRRI. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Allt sem sýnist – raun-veruleiki á striga 1970-2020 er sýning á Kjarvalsstöðum. Sý ningarst jór i er Markús Þór Andrés- son. „Á þessari sýningu eru sýnd verk listamanna sem hafa náð ákveðinni sérhæfingu og færni í því að gera myndir af veruleikanum með raun- sæislegum stílbrigðum,“ segir Mark- ús. „Þarna eru 50 ár dregin fram í eins konar yfirliti, með áherslu á tengingu hins sýnilega umhverfis við málverkið. Almennt má segja að mikill áhugi sé meðal listamanna hverju sinni á að stúdera skynjun sína og tengsl við umhverfið og tjá í málverki. Þessi leikur verður mörgum að óþrjótandi viðfangs- efni. Ferill margra listamanna er einskorðaður við þetta, en aðrir nota þetta sem stuðning við annað sem þeir eru að gera.“ Á sínum forsendum Sýningin heitir Allt sem sýnist og þá kemur óneitanlega upp í hugann orðatiltækið: ekki er allt sem sýnist. „Í þessum verkum er kannski ekki allt eins einfalt og það lítur út fyrir að vera því hver listamaður er að skoða raunveruleikann algjörlega á sínum forsendum,“ segir Markús. „Þarna eru listamenn sem sækja beint í poppið, gera hárfínar eftir- myndir úr neyslusamfélaginu og lýsa nærumhverfi okkar mannanna meðan aðrir eru kannski með hug- ann við natúralista 19. aldar. Sumir hugsa um yfirborð og handbragð meðan aðrir eru með hugmynda- fræðilega nálgun, jafnvel andlega. Það er mjög gaman að setja saman í sýninguna verk sem sýna þær ólíku þarfir og hvatir sem liggja að baki þessa kima listsköpunar.“ Spurður hvort mikill munur sé á verkum elstu listamannanna og þeirra yngstu segir Markús: „Á seinni tímum kemur til sögunnar ný ljósmyndatækni, vídeótækni, kvikmyndlist og stafræn tækni eins og Photoshop sem hefur áhrif á það hvernig fólk skynjar umhverfi sitt og hvernig það les myndir. Lista- menn taka mið af öllum þessum breytingum, sem er lýsandi fyrir þá ævarandi grunnþörf að beita listsköpun og handverki til þess að greina veruleikann sem við búum við hverju sinni.“ Vill brjóta niður múra Markús segir að hann vilji með sýn- ingunni brjóta niður ákveðna múra. „Mig langar að brjóta niður múrana á milli yfirborðs og inntaks, þar sem stundum hefur verið sett upp aðgreining eins og há- og láglist eða list og kitsch. Um leið vil ég andæfa því að hlutir hafi ekki djúp- stæða merkingu af því að þeir eru aðlaðandi og fallega gerðir. Þegar f linkir listamenn eiga í hlut þá er viss hætta á að maður nemi staðar við yfirborðið. Þetta er alltof mikil einföldun. Það leynir sér ekki að til dæmis Erla S. Haraldsdóttir er lista- maður sem kljáist við fegurðina. Hún málar verk sem eru grípandi einmitt af því þau eru aðlaðandi og máluð af mikilli natni. En þar að baki liggur jafnframt þrungin hug- myndafræði sem byggist á samtali við listasöguna og er í sjálfu sér mjög nútímaleg. Ég vona að fólk velti þessum hlut- um fyrir sér og skoði hvers konar veruleika við erum að tala um. Það er einföldun að kalla þetta bara raunsæi. Við getum stuðst við ýmis fræðiheiti, kallað sumt natúralisma, svo er ofurraunsæi, ljósmyndaraun- sæi eða töfraraunsæi. Listamenn eru að nota raunsæið til að skilja umhverfi sitt en líka sjálfa sig og mála það sem stendur þeim nærri, eins og fjölskyldu sína, líkama sinn, munina í kringum sig og náttúruna. Í þessu mengi eru ekki listamenn sem eru í fantasíu eða súrrealisma, eða að setja fram einhvers konar allegóríur. Nærumhverfið er þeim hugleikið – og hér í safninu finnst okkur þessi fókus eiga ágætlega við, ekki síst í samtímanum, á tímum farsóttarinnar, þegar sjónsvið allra hefur þrengst og færst nær að okkar nánasta umhverfi.“ Veruleikinn með raunsæislegum stílbrigðum Á sýningunni Allt sem sýnist á Kjarvalsstöðum er ekki allt eins einfalt og það lítur út fyrir að vera. Sýning á verkum eftir listamenn sem hafa gert raunveruleikann að yrkisefni. Fimmtíu ár dregin fram í yfirliti. Mig langar að brjóta niður múrana á milli yfirborðs og inntaks, segir Markús. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Séð yfir hluta salarins á Kjarvalsstöðum. Listamennirnir á sýningunni n Eggert Pétursson (1956) n Eiríkur Smith (1925-2016) n Erla S. Haraldsdóttir (1967) n Erró (1932) n Guðjón Ketilsson (1956) n Gústaf Geir Bollason (1966) n Hallgrímur Helgason (1959) n Helena Margrét Jónsdóttir (1996) n Hlaðgerður Íris Björnsdóttir (1970) n Hringur Jóhannesson (1932- 1996) n Karl Jóhann Jónsson (1968) n Kristinn Guðbrandur Harðar- son (1955) n Ragnhildur Jóhannsdóttir (1977) n Sara Vilbergsdóttir (1956) n Sigtryggur Bjarni Baldvinsson (1966) n Svanhildur Vilbergsdóttir (1964) n Þorri Hringsson (1966) n Þuríður Sigurðardóttir (1949) Miklir hæfileikar og tækni birtast í raunsæislegum vinnubrögðum. 2 7 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R40 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.