Fréttablaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 12
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Yndisleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Arnheiður Árnadóttir Hraunbæ 103 (áður Glæsibæ 1), lést á líknardeild Landspítalans 14. júlí. Útförin verður 22. júlí klukkan 13 frá Árbæjarkirkju. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Theódór Óskarsson Guðrún Theodórsdóttir Kristján Georg Björnsson Óskar Theódórsson Katla Sveinbjörnsdóttir Bryndís Theódórsdóttir Gísli Kristján Birgisson Guðni G. og Arna María Kristjánsbörn, Theódór, Arnheiður Rós, Pétur og Pálmi Óskarsbörn, Hildur Sif, Theódóra og Hinrik Hjaltabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir minn, sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, Hersir Mar Jónsson Svölutjörn 46, Njarðvík, lést föstudaginn 10. júlí. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, föstudaginn 24. júlí kl. 13. Alexander Agnar Hersisson Jón Valgeirsson Þórdís Erlingsdóttir Ívar Örn Jónsson Thea Møller Þorleifsson París Møller Ívarsdóttir Litla ljósið okkar, Salka Rut Brynjarsdóttir Núpalind 2, Kópavogi, lést á Barnaspítala Hringsins sunnudaginn 12. júlí. Útförin fer fram frá Lindakirkju, föstudaginn 24. júlí kl. 13.00. Brynjar Snær Kristjánsson Harpa Rut Harðardóttir Bríet Rós Brynjarsdóttir Hörður Ágúst Oddgeirsson Kristín Líndal Hafsteinsd. Kristján Ágústsson Bryndís Konráðsdóttir Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, sonur og tengdasonur, Gunnar M. Erlingsson löggiltur endurskoðandi, Hæðarseli 14, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. júlí umvafinn ástvinum sínum. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju, fimmtudaginn 23. júlí klukkan 13. Lilja Guðjónsdóttir Kolbrún Fríður Gunnarsdóttir Sigurður D. Sigurðarson Andri Örn Gunnarsson Dagný Jónsdóttir Gunnar Örn Sigurðarson Björgvin Logi Sigurðarson Lilja Kristín Sigurðardóttir Birkir Úlfar Sigurðarson Kolbrún Gunnarsdóttir Erling J. Sigurðsson Sigfríður Runólfsdóttir systkini og fjölskyldur þeirra. Þetta eru töluverð tímamót, en tímabær,“ segir Jóhannes Sigurjónsson, ritstjóri Víkur-blaðsins á Húsavík og síðar Skarps, sem hefur kvatt starf-ið sitt, sáttur í huga. „Við byrjuðum saman ég og Arnar Björnsson íþróttafréttamaður og hættum sama ár. Honum var reyndar sagt upp en ég tók þessa ákvörðun. Það varð sameining á blöðunum tveimur sem voru gefin út hér á Norðausturlandi, sem voru annars vegar Vikudagur á Akureyri og mitt blað sem hét Skarpur. Úr þeim tveimur varð til Víkurblaðið. Ég er búinn að gefa út blað í 41 ár. Þegar þessi sameining varð fannst mér liggja beint við að gamlir hundar eins og ég drægju sig í hlé. Ég verð 67 ára í febrúar þannig að það er stutt í eftirlauna- aldurinn.“ Nú kveðst Jóhannes njóta þess að slaka á og taka á móti skyldfólkinu, því straumur fólks liggi norður á Húsavík. „Faðir minn féll frá á síðasta ári, 94 ára, og ég er staðarhaldari í ættaróðalinu sem er talsvert stórt hús. Við erum sex systk- inin og ég er í því að opna dyr og hleypa þeim inn, og börnum okkar, barna- börnum og alls konar viðhengjum. Þetta er mjög gaman. Svo er mikil tilbreyting í því og spennandi að fá blað inn um lúguna og lesa alls konar fréttir héðan af svæðinu sem ég hef ekki skrifað eða prófarkalesið þrisvar, fjórum sinnum.“ En hvernig skyldu heimamenn taka því að hann sé hættur? „Ja, það eru nátt- úrlega margir sem byrjuðu sem áskrif- endur að Víkurblaðinu 1979 og héldu tryggð við það og síðan Skarp en þeim fer eðlilega alltaf fækkandi enda meðalald- urinn líklega um sjötugt. Það er enginn áskrifandi að blaði lengur sem er yngri en 65 ára, það er einfalt mál. Sjálfur er ég dálítið háður því að vera með pappírinn í höndunum. Ég er af gamla skólanum.“ Tæknibreytingar í blaðaprentun hafa verið miklar á 40 árum. „Við vorum þrír sem stofnuðum Víkurblaðið 1979, við Arnar Björns og Kári Arnór Kárason. Þá þurfti að velja ritstjóra og ég kom ekki til greina því ég kunni ekki á ritvél. Mínar fréttir voru allar handskrifaðar og send- ar í prentsmiðjuna þannig. Svo lærði ég nú á ritvél og síðar kom tölvan. Svo tók ég allar myndir sjálfur og framkallaði og kópíeraði svart-hvítt í bílskúrnum. Það hefur orðið alger bylting.“ Ekki segir Jóhannes eina frétt eða stund  eftirminnilegri en aðra í þessu streði öllu. Allt renni saman í eitt. „Ef maður er með vikublað er náttúrlega hending ef maður er fyrstur með ein- hverja frétt. Þó gat það komið fyrir áður en allt byrjaði að fljúga samstundis á net- inu. Blaðið mitt var hluti af Degi á sínum tíma, þá var ég bara í að skrifa pistla og vangaveltur fyrst og fremst, enda kann ég því best. Svo var ég smá tíma á DV eftir að Dagur hætti og þá var hátindi blaða- mennskunnar náð, því ég var rekinn af DV sama dag og Jónas Kristjánsson rit- stjóri. Það er toppurinn á mínum ferli að hafa fylgt þeim meistara í brottrekstri.“ Spurður hvort hann hafi lent í ævin- týraferðum eða háska í sambandi við starf sitt svarar Jóhannes: „Nei, ég  er ekki fréttamaður fyrir fimm aura og er þekktur fyrir að fara ekki lengra en út í dyragættina eftir fréttum. Það er auð- vitað sérkennilegt að vera blaðamaður í 40 ár og enginn fréttamaður!“ Handskrifaði allt í byrjun  Jóhannes Sigurjónsson á Húsavík hefur lagt blaðaritstjórn á hilluna eftir fjörutíu og eins árs starf. Þeir eru ófáir pistlarnir og leiðararnir sem eftir hann liggja. Jóhannes við ævistarfið. Þarna eru Víkurblaðið og Skarpur innbundin af föður hans, Sigurjóni Jóhannessyni. MYND/EINAR H. HARALDSSON 2 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.