Fréttablaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 37
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Okkar elskaða
Halldóra K. Thoroddsen
rithöfundur
lést aðfaranótt 18. júlí. Útförin fer fram
í Neskirkju föstudaginn 31. júlí kl. 15.
Fyrir hönd aðstandenda,
Eggert Þorleifsson,
Bergsteinn Jónsson,
Sigurður Eggertsson
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Sigurðsson
bifreiðastjóri,
frá Sleitustöðum í Skagafirði,
sem lést á heimili sínu, mánudaginn
13. júlí, verður jarðsunginn frá
Hóladómkirkju, föstudaginn 24. júlí, kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á sælureit ættarinnar,
Fagralund, sem honum var einkar hugleikinn.
Reynir Þór Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir
Íris Hulda Jónsdóttir Björn Gunnar Karlsson
Gísli Rúnar Jónsson
Lilja Magnea Jónsdóttir Skúli Hermann Bragason
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Þórður Árni Björgúlfsson
fv. rennismiður og verslunarmaður,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju,
fimmtudaginn 23. júlí, klukkan 13.30.
Fjölskyldan þakkar starfsfólki Grenihlíðar
fyrir frábæra umönnun og hjartahlýju.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök
Öldrunarheimila Akureyrar,
kennitala: 441217-1450, banki: 565-14-405786.
Björg Þórðardóttir
Friðrik Viðar Þórðarson Kristín Jónína Halldórsdóttir
Björgúlfur Þórðarson Helga Guðrún Erlingsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Margrét S. Einarsdóttir
fv. sjúkraliði og forstöðumaður,
Norðurbrú 1, Garðabæ,
lést á Landspítalanum 16. júlí sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Atli Pálsson
Hallgrímur Atlason Guðbjörg Jónsdóttir
Guðjón Atlason Ana Isorena Atlason
Atli Atlason Elin Svarrer Wang
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir,
tengdamóðir og amma,
Brynhildur Kristinsdóttir
Vöðlum, Önundarfirði,
lést 8. apríl sl.
Þann 25. júlí nk. verður minningarathöfn
í Holtskirkju kl. 14, allir eru velkomnir.
Innilegar þakkir flytjum við öllum fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug, sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
Hjúkrunarheimilinu Tjörn á Þingeyri fyrir alla umönnun
og hjálpsemi síðustu ár.
Gunnhildur J. Brynjólfsdóttir Þorsteinn Jóhannsson
Arnór Brynjar Þorsteinsson Isak Gustavsson
Jón Ágúst Þorsteinsson Hrefna Valdemarsdóttir
Jóhann Ingi Þorsteinsson Gerður Sigmundsdóttir
Árni G. Brynjólfsson Erna Rún Thorlacius
Jakob E. Jakobsson Sólveig M. Karlsdóttir
Brynjólfur Óli Árnason
Benjamín Bent Árnason Rakel Ósk Rögnudóttir
G. Rakel Brynjólfsdóttir Jón Sigurðsson
Hildur Sólmundsdóttir Emil Ó. Ragnarsson
Agnes Sólmundsdóttir Andri M. Karlsson
Hanna Gerður Jónsdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Unnur Lárusdóttir
Víðiteigi 6d, Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 15. júlí 2020.
Ingunn Ólafía Jónsdóttir
Ríkharð Örn Jónsson
Sólrún Maggý Jónsdóttir
Lárus Haukur Jónsson
Hilmar Þór Jónsson
Unnur Jenný Jónsdóttir
Okkar hjartkæra
Hjördís Guðbjartsdóttir
hjúkrunarkona,
áður til heimilis að
Seljavegi 27, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum 4. júlí síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Birna Gunnarsdóttir
Eyþór Gunnarsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ólöf Elíasdóttir
Strikinu 8, Garðabæ,
lést á Hjúkrunarheimilinu
Sólvangi þann 10. júlí 2020.
Útför hennar fer fram frá Garðakirkju,
miðvikudaginn 22. júlí kl. 15.00
Eyþór Árnason Sigurbjörg Einarsdóttir
Hafþór Árnason
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
kær vinur, afi, og langafi,
Helgi Jónsson
fyrrverandi bankaútibússtjóri,
sem andaðist á Dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, þann 14. júlí, verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju,
miðvikudaginn 22. júlí, kl. 13.00.
Áslaug Helgadóttir Gunnar Guðmundsson
Jón Helgason Sigríður K. Valdimarsdóttir
Sigríður Helgadóttir Ólafur Þorsteinsson
Helgi Teitur Helgason Guðrún Hildur Pétursdóttir
Margrét Ingvarsdóttir
börn og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Aðalbjörg Guðmundsdóttir
kennari,
frá Harðbak á Melrakkasléttu,
lést á heimili sínu að Lindarseli 7,
Reykjavík, að morgni 10. júlí.
Útför hennar fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi,
mánudaginn 27. júlí, kl. 13.00. Vinsamlegast athugið
breytta staðsetningu á útförinni.
Sæmundur Rögnvaldsson Ingibjörg Axelsdóttir
Elín Rögnvaldsdóttir Björgvin Guðmundsson
Margrét Rögnvaldsdóttir Magnús H. Ingþórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Tengsl mín við Skógræktar-félag Reykjavíkur hafa varað lengi. Ég hef stundað útivist í Heiðmörk og fór oft þangað sem barn. Þá voru höfuðstöðvar félagsins
niðri í Fossvogsdal þar sem ég ólst
upp. Nú eru þær fluttar upp að Elliða-
vatnsbæ,“ segir Auður Kjartansdóttir,
sem er nýr framkvæmdastjóri félags-
ins. Hún hefur verkstjórn og verkefna-
stjórn í skógrækt á ferilskránni en síð-
ustu fimmtán ár hefur hún starfað hjá
Veðurstofunni sem sérfræðingur í ofan-
flóðum. „Það má segja að þungi starfa
minna færist nú frá vetri til sumars
en bæði tengjast náttúrunni,“ segir hún.
Hallarbyltingar í félaginu eru ekki á
stefnuskránni hjá Auði. „Ég mun fyrst og
fremst halda áfram með það góða starf
sem félagið hefur staðið fyrir í áratugi.
Í sumar voru 70 ár frá því það hóf starf-
semi í Heiðmörk við hátíðlega athöfn.
Það var 25. júní 1950 sem hundruð
manna komu þar saman og gróðursetn-
ing hófst. Þá var Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóri og í ávarpi óskaði hann
þess að Reykvíkingar sæktu í Heið-
mörkina frið í hjarta og hvíld á sál og
líkama um alla framtíð. Einnig að lands-
menn lærðu að fara mjúkum höndum
um móðurmoldina svo hún gæti borið
þeim hávaxin tré sem skýldu og hlífðu
niðjum þeirra í stormum framtíðarinn-
ar. Þetta er einmitt það sem okkar kyn-
slóð er að upplifa í skógunum.“
Hvorki vill Auður lofa né lasta lúpín-
una. „Lúpínan er hápólitísk planta.
Margir eru henni mótfallnir en henni
fylgir sveppur sem bindur kolefni og
moldin verður frjósamari fyrir vikið.
Skógræktarfélag Reykjavíkur plantar
skógi í lúpínubreiður enda leggur það
fyrst og fremst stund á skógrækt og styð-
ur við hana hjá einstaklingum, félögum
og fyrirtækjum. Það hefur umsjón með
stórum útivistarsvæðum eins og Esju-
hlíðum og Heiðmörk.
Auður kveðst hafa reynslu af farar-
stjórn hópa fólks úti í náttúrunni. Hún
segir marga viðburði á hverju ári sem
Skógræktarfélag Reykjavíkur standi
fyrir, nefnir sem dæmi skógarleika og
Heiðmerkurhlaup. „Svo er nýlega búið
að skrifa undir samning um loftslags-
skóga í Úlfarsárdal og Esjuhlíðum sem
er samstarfsverkefni Reykjavíkurborg-
ar og Skógræktarfélags Reykjavíkur.
Þar er verið að minnka kolefnisspor
Reykvíkinga og sporna gegn hnatt-
rænni hlýnun. Grænn trefill skóga veitir
skjól, dregur úr mengun og bætir heilsu
borgaranna.“ gun@frettabladid.is
Færir sig milli árstíða
Auður Kjartansdóttir er nýr framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. Hún hef-
ur unnið við snjóflóðarannsóknir í 15 ár en nú sér hún fram á meira annríki á sumrin.
„Grænn trefill skóga veitir skjól, dregur úr mengun og bætir heilsu borgaranna,“ segir Auður brosandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13Þ R I Ð J U D A G U R 2 1 . J Ú L Í 2 0 2 0