Fréttablaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÞEGAR VIÐ VORUM
BÁÐAR KOMNAR
AFTUR TIL ÍSLANDS FANNST
OKKUR VANTA VETTVANG SEM
VÆRI AÐ SETJA HEILSU, HUG-
LEIÐSLU OG ANNAÐ HEILNÆMT
Í FALLEGAN BÚNING SEM
HENTAR NÚTÍMAFÓLKI.
Eva Dögg
2 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Verslanir Kvikk eru staðsettar á
völdum bensínstöðvum Orkunnar
á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi
og í Reykjanesbæ.
Skrúfum
niður
verðið!
330 ml dós:
199 kr.
Þær Dag ný Berglind Gísladóttir og Eva Dögg Rú narsdótt ir mu nu leiða saman hugleiðslu í Systrasamlaginu á Óðinsgötu á morgun.
Systrasamlagið hefur boðið upp á
ókeypis hugleiðslutíma á miðviku
dögum undanfarið og stefna að því
að fá hina ýmsu hugleiðslugúrúa til
að leiða tímana í framtíðinni.
„Thelma vinkona okkar hefur svo
verið að leiða hugleiðslu í Systra
samlaginu á miðvikudagsmorgnum
undanfarið en er farin í fæðingaror
lof. Þá stungu þær systur upp á því
að við myndum kenna hugleiðsluna
okkar, svona „pop up“ í persónu og
gerum það núna á miðvikudaginn,“
segir Dagný.
Hentar nútímafólki
Saman halda þær úti vefsvæðinu
Rvk ritual.
„Rvk ritual er svo margt, en við
höfum skilgreint það sem „vel
líðunarvef“, þar sem við deilum
efni tengdu heilsu, vellíðan, hug
leiðslu, kennum þar námskeið og
seljum einnig okkar uppáhalds
vörur tengdar ritúölum. Við gerum
allt á ensku því okkur langaði að
eiga samtal við f leiri en bara þá
sem tala íslensku og gefa f leirum
innsýn inn í þessa senu á Íslandi.
Okkur finnst Ísland hafa upp á svo
ótrúlega mikið að bjóða,“ segir Eva.
Stöllurnar kynntust fyrir mörg
um árum í gegnum barnsföður Evu.
„Við höfum alltaf verið að nördast
í svipuðum áhugamálum tengdum
jurtum, jóga og heilnæmum líf s
stíl. Við vorum lengi vel hvor í sínu
landinu, ég á Íslandi eða í Þýska
landi og Eva í Danmörku. Það sem
tengir okkur sterkast saman er að
við erum báðar miklir hugleiðslu
iðkendur og meira og minna alltaf
í einhvers konar sjálfsvinnu,“ segir
Dagný
Eva segir Rvk ritual vera tilraun
til að sameina þeirra helstu hugðar
efni við þeirra persónulega bak
grunn.
„Við erum báðar með skapandi
bakgrunn, ég er fatahönnuður og
Dagný er menntuð í ritlist og leir
list. Þegar við vorum báðar komnar
aftur til Íslands fannst okkur vanta
vettvang sem væri að setja heilsu,
hugleiðslu og annað heilnæmt í fal
legan búning sem hentar nútíma
fólki. Okkur langar að fólk fari að
vinna í sér, hugleiða og hugsa um sig
áður en það brennur út, geri það að
daglegum vana og láti það passa inn
í sitt líf, sama hvernig það lítur út,“
bætir hún við.
Hugleiðslan í forgangi
Dagný segist fyrst hafa prófað hug
leiðslu í jógatíma þegar hún var fjór
tán ára.
„Mér hundleiddist á meðan en
fann þó að það róaðist allt inni í
mér. Ég byrjaði alls ekki að stunda
hugleiðslu þá, en þetta kveikti
áhugann. En fyrir rúmum áratug fór
ég loksins að iðka mjög reglulega, en
það getur tekið tíma að búa sér til
iðkun og setja hugleiðslu í forgang.
Ef fólk myndi vita hvaða góðu áhrif
það hefur í för með sér þá held ég að
flestir myndu ekki hika við að hug
leiða daglega,“ segir Dagný.
„Ég á svipaða sögu að segja. Ég
man eftir fyrstu hugleiðslunni
minni og það var örugglega það
leiðinlegasta sem ég hef gert, ég
var 17 ára. Ég fann samt svo sterkt
fyrir þessari hugleiðslu og fann að
hún hafði djúpstæð áhrif á mig, en
þá hafði ég ekki þroska til að skilja
þetta. Ég byrjaði í jóga í kringum
tvítugt, fyrst þegar ég flutti til Dan
merkur. Svo byrja ég löngu seinna
að gera hugleiðslu að alvöru iðkun
en fattaði þá hvað sköpun hafði
verið hugleiðslan mín lengi vel, en
á einhverjum tímapunkti þurfti ég
meira. Við Dagný eigum það sam
eiginlegt að vilja lifa á ákveðnum
„krossi“ þar sem hefðbundið og
andlegt líf mætast,“ segir Eva.
Mögnuð áhrif
Á morgun bjóða þær upp á kunda
linihugleiðslu sem kallast Gyan
Chakra Kriya.
„Þessi hugleiðsla er kröftug og
er sögð geta fært okkur velmegun,
aukið útgeislun og hækkað í innsæ
inu. Einnig reynir hún líka hæfilega
vel á okkur líkamlega og leysir úr
vöðvabólguhnútum eftir nokk
urra daga iðkun. Þetta er nefnilega
ekki hefðbundin hugleiðsla þar sem
þú situr kyrr í hljóði, heldur gerir
iðkandinn hreyfingar og syngur
möntru á meðan, sem hefur mögn
uð áhrif,“ segir Eva Dögg.
Það er margt spennandi á döfinni
hjá Rvk ritual.
„Já, við erum með fjögurra vikna
Self Masterynetnámskeið í ágúst
og erum einnig að þróa styttra net
námskeið fyrir byrjendur í hug
leiðslu á íslensku. Svo erum við að
þróa nokkrar vörur tengda ritú
ölum, sem við munum kynna með
haustinu. Við munum líklega koma
reglulega við í Systrasamlaginu
enda eigum við margt sameiginlegt
með þeim systrum og elskum þetta
fallega rými sem þær hafa skapað,“
segir Dagný.
Hugleiðslan á morgun hefst
klukkan 10.00 og er aðgangur
ókeypis.
steingerdur@frettabladid.is
Nútímafólk á að setja
hugleiðslu í forgang
Á morgun er boðið upp á hugleiðslu í Systrasamlaginu en hún
verður leidd af þeim Dagnýju og Evu. Þær halda saman úti vef-
svæðinu Rvk ritual sem þær lýsa sem nokkurs konar vellíðunarvef.
Hugleiðslan hefur verið sameiginlegt áhugamál vinkvennanna í dágóðan tíma. MYND/SUNNA BEN