Fréttablaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 5 9 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 Volkswagen ID.3 1ST Rafmögnuð framtíð Pantaðu núna og fáðu þinn í haust www.volkswagen.is/ID · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA#NúGeturÞú Þessir eldhressu krakkar skemmtu sér konunglega þegar þeir renndu sér niður „Slip’n slide“-rennibraut í bongóblíðu í gær. Brautin var sett upp við Fella- og Hólakirkju í Breiðholti. Framtakið var hluti af sumarvið- burðum sem haldnir eru á vegum Reykjavíkurborgar víðs vegar um borgina þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VIÐSKIPTI Icelandair stefnir að því að klára samninga við fimmtán lánardrottna, stjórnvöld og Boeing fyrir lok mánaðar áður en farið verður í hlutafjárútboð. Stjórn- endur félagsins horfa til þess að semja við lánardrottna um lækkun af borgana og eiga í viðræðum við stjórnvöld um skilmála lánalínu til þrautavara. Þetta segir Eva Sóley Guðbjörns- dóttir, framkvæmdastjóri f jár- málasviðs Icelandair, í samtali við Fréttablaðið. Eva segir að lánar- drottnarnir sem Icelandair hafi átt í viðræðum við séu fimmtán talsins en um er að ræða leigusala, færslu- hirða, lánveitendur og mótaðila vegna olíuvarna. Viðræðurnar eru f lestar komnar vel á veg og er f lug- félagið bjartsýnt á að klára samn- inga við alla lánardrottna fyrir næstu mánaðamót, en hún bendir þó á að verkefnið sé í senn ærið og krefjandi. „Samhliða því erum við að ræða við ríkið um lánaskilmála vegna lánalínu til þrautavara, sem félag- ið gæti nýtt ef rekstrarskilyrði f lug- félaga verða mjög erfið til lengri tíma og fjármagnið úr hlutafjárút- boðinu dugar ekki til,“ segir Eva. Hlutafjáraukningin á að nægja félaginu ef grunnsviðsmynd félags- ins um að lítið verði f logið fram á næsta vor rætist. Viðræðurnar við stjórnvöld snúast þannig um að Icelandair geti dregið á lánalínu og tryggt rekstrarhæfi ef ládeyðan á markaðinum varir lengur en spár félagsins gera ráð fyrir. Spurð hvort að Icelandair óski eftir skuldbreytingu við lánar- drottna, þ.e.a.s. að kröfum á f lug- félagið verði breytt í hlutafé, segir Eva Sóley að svo sé ekki. „Viðræðurnar snúast ekki um skuldbreytingu heldur erum við að horfa til þess að styrkja lausa- fjárstöðu félagsins með því að aðlaga af borganir að áætluðu sjóðsstreymi á meðan félagið flýgur lítið,“ segir Eva Sóley. „Grunnsviðsmyndin byggir á því að afborganir til lánardrottna verði aðlagaðar að áætluðu sjóðsstreymi, hluthafar komi inn með nýtt fjár- magn og að félagið geti dregið á lánalínu frá ríkinu ef ládeyðan á markaðnum varir lengur en spár okkar gera ráð fyrir.“ Viðræðurnar við lánardrottna eru f lóknar að sögn Evu þar sem Icelandair er lítið flugfélag í alþjóð- legu samhengi. Stærstu lánar- drottnarnir geta m.a. verið tregir til að ganga að óskum Icelandair svo að ekki skapist fordæmi í sambæri- legum viðræðum við önnur stærri f lugfélög. – þfh Leggja kapp á að semja fyrir mánaðamótin Icelandair vill klára samninga við lánardrottna, stjórnvöld og Boeing fyrir næstu mánaðamót. Horfa til þess að lækka greiðslur til lánardrottna. Hafa ekki óskað eftir skuldbreytingu krafna. Ræða við stjórnvöld um skilmála vegna þrautavaraláns. Viðræðurnar snúast ekki um skuld- breytingu heldur erum við að horfa til þess að styrkja lausafjárstöðu félagsins. Eva Sóley Guð- björnsdóttir, framkvæmda- stjóri fjármála- sviðs Icelandair DÓMSMÁL Nýskráðum málum frá Íslandi sem rekin eru fyrir Mann- réttindadómstól Evrópu hefur fjölgað mikið undanfarið. Fjórtán ný mál voru skráð hjá ríkislög- manni á þessu ári. Mál sem skráð eru hjá ríkislög- manni eru aðeins þau sem dóm- stóllinn hefur þegar ákveðið að taka til efnislegrar meðferðar. Alls eru kærur frá Íslandi til MDE mun fleiri. Árið 2017 bárust dómstólnum 28 kærur frá Íslandi. Þær voru 24 árið á eftir, en nærri helmingi f leiri árið 2019, eða 40 talsins. Langf lestum málum er hins vegar vísað frá dóm- stólnum og aðeins lítill hluti þeirra fær efnismeðferð. – aá / Sjá síðu 6 Kærum rignir til MDE

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.