Fréttablaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 26
Laugavegur 103 - 105 Rvk. 64,8 fm - verð 43,9 millj Glæsileg 2ja herbergja íbúð með yfirbyggðum svölum í veglegu lyftuhúsi við Laugaveg Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús, setustofu með útgengi á yfirbyggðar svalir, svefnherber- gi með fataskápum og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla í kjallara. Falleg og vel staðsett íbúð í miðborginni - stutt í alla helstu verslun og þjónustu Hlíðarvegur 1 - The Herring house 580 Siglufjörður - heimagisting í rekstri Fallegt tvílyft einbýlishús á stórri, mjög gróinni og friðsælli tæplega 2.000 fm lóð við Hlíðarveg á Siglufirði. Húsið stendur beint ofan við kirkjuna með víðáttumiklu útsýni yfir bæinn, höfnina og út á fjörðinn. Í húsinu er í dag rekin heimagisting (The Herring house). Að auki eru tvö vegleg gestahús á lóðinni. heitur pottur, útisturta og hús til að hafa fataskipti. Húsið sjálft er 182,4 fm. Þar að auki eru nokkur útihús á lóðinni samtals um 62 fm. Afar vegleg og vel staðsett eign í hjarta Siglufjarðar, sem býður uppá mikla möguleika og mætti kalla sveit í bæ. Nánari upplýsingar um eignina og búnað sem getur fylgt henni eru veittar hjá fasteignasölum Híbýla. Safamýri 38, 108 Reykjavík 163,2 fm - 4ra herb íbúð - bílskúr og stór geymsla - verð 57,8 millj Falleg og vel skipulögð 4ra herb. íbúð á 2. hæð með tvennum svölum ásamt bílskúr og mjög stórri geymslu. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi stofu og þrjú svefnherbergi. Verið er að múrviðgera og mála húsið að utanverðu og eru þær framkvæmdir greiddar af seljanda. Eignin er samtals skráð 163,2 fm skv. Þjóðskrá. Íbúðin sjálf er 104,1 fm og geymsla í kjallara 59,1 fm. Íbúðinni fylgir einnig sér bílskúr (21 fm) sem er ekki skráður í birta fermetratölu. Neðstaleiti 22, 103 Rvk. 234,3 fm - raðhús - Tvær íbúðir verð 98,9 millj Fallegt og mikið endurnýjað 234,3 fm tvílyft raðhús með innbyggðum bílskúr. Skv. skránin- gu Þjóðskrár er íbúð á neðri hæð 99,2 fm, efri hæð er 109,9 og bílskúr er 26,2 fm. Í dag er húsið nýtt sem tvær aðskildar íbúðir - en væri auðvelt að nýta það fyrir eina fjölskyldu. Falleg og vel staðsett eign miðsvæðis í borginni. Strandgata 32 Laugavegur 103 Neðstaleiti 22 Hlíðarvegur 1 Safamýri 38 OPIÐ HÚS Kringlan 4-6, 103 Reykjavík - hibyli.is - hibyli@hibyli.is - Sími: 585 8800 Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali. S. 864-8800 Þórður S. Ólafsson, löggiltur fasteignasali. Ólafur Már Ólafsson, löggiltur fasteignasali. S. 865-8515 Björg Ágústsdóttir, skrifstofa Strandgata 32 - 220 Hafnarfjörður 191,5 fm - verð 73,9 millj Opið hús þriðjudag 21. júlí 17:15 - 17:45 Afar glæsileg 191,5 fm hæð með verulega aukinni lofthæð við Strandgötu í miðbæ Hafnarfjarðar. Loftlistar og aukin lofthæð (allt að 3,8 m) gefa eigninni mikla sérstöðu. Eignin skiptist í forstofu, mjög stóra setustofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum og útgengi á svalir, eldhús sem er opið við stofuna, þrjú góð svefnherbergi, rúmgott baðherbergi með sturtu og baðkari, geymslu/þvottahús innan íbúðar. Einkar falleg íbúð með mikinn karakter - frábær staðsetning í miðbæ Hafnarfjarðar - stutt í alla helstu verslun og þjónustu - Listasafn, heilsugæsla, verslanir og veitingahús í allra næsta nágrenni. hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.