Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Qupperneq 8
KANNSKI EKKI ÖLL NÓTT ÚTI Í síðasta blaði var farið yfir bágt ástand á vinnumarkaði og ærin verk- efni sem fram undan eru á vettvangi verkalýðsfélaga. Þó gefa tölur um fjölda starfa og álit sérfræðinga um framhaldið tilefni til bjartsýni. Heimir Hannesson heimir@dv.is Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir stöðuna á vinnumarkaði vissulega erfiða. „En sem betur fer siglum við inn í veturinn og langflestir okkar félagsmanna með tryggðan kjarasamning.“ Hún tekur undir með kollegum sínum að hækka þurfi atvinnuleysis­ bætur og tryggja framfærslu fólks. Hins vegar segir Sonja mikið tilefni til þess að hafa áhyggjur af skólastarfi í haust og vetur. „Komi til frekari takmark­ ana á skólastarfi er hætt við að margir séu búnir með sinn frítökurétt vegna sumarfrís og vegna röskunar á skóla­ starfi fyrr á árinu. Ljóst er að tekjulægstu hóparnir eru viðkvæmastir fyrir þessu og munu eiga erfiðast með að brúa þetta bil,“ segir Sonja. BSRB mun, að hennar sögn, eiga samtal við stjórnvöld um það hvernig hægt sé að bjóða upp á meiri sveigjanleika. Til dæmis með meiri heimavinnu. Hlutabótaleið hverfandi Þó að nýbirtar atvinnuleysis­ tölur Vinnumálastofnunar fyrir júlí séu ef til vill ekki til þess að hrópa húrra fyrir, er auðvelt að ímynda sér talsvert verra ástand. Til dæmis er ljóst að mjög fáir eru að nýta sér hlutabótaleiðina en hún vegur aðeins 0,9% af heildar­ atvinnuleysi. Heildaratvinnuleysið mæld­ ist í júlí 8,8%, að frádregnu hlutabótaatvinnuleysinu svo­ kallaða og eftir stendur 7,9% „almennt atvinnuleysi“. Þetta „almenna“ atvinnuleysi var 7,5% í júní og 7,4% í maí. Þar til viðbótar má sjá algjört hrun í nýtingu hlutabótaleið­ arinnar. Atvinnuleysi tengt nýtingu hlutabótaleiðarinnar fór úr 10,3% í júní í 0,9% í júlí, sem fyrr sagði. Gekk Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, meira að segja svo langt að segja að ekki væri þörf á að fram­ lengja hlutabótaleiðina. Taka skal fram að Vinnu­ málastofnun segir í skýrslu sinni um atvinnuleysistölur júlímánaðar að hún geri ráð fyrir áframhaldandi aukn­ ingu á almennu atvinnuleysi eftir því sem áhrifa fleiri hópuppsagna fer að gæta hjá greiðslustofu stofnunarinnar. Á móti spáir hún áframhald­ andi lækkun á nýtingu hluta­ bótaleiðarinnar og að það verði 0,4% af heildaratvinnu­ leysi í ágústmánuði. Vinnumálastofnun spáir 8,6% atvinnuleysi í ágúst og að það lækki svo með haust­ inu þegar fólk hefur nám, en námsmenn eiga ekki rétt á bótum. Svartnættið ekki svo svart Þó er ekki öll von úti, því inni á vinnumiðlunarvefnum Alfreð eru nú auglýst 255 störf, og hefur lítið dregið úr þeim fjölda á undanförnum vikum. Störfin eru jafnframt af ýmsum toga. Efst á heima­ síðu Alfreðs þegar þetta er skrifað er til dæmis auglýst eftir deildarstjóra bókhalds hjá B&L, leikskólakennara, bifvélavirkja, lögfræðingum hjá Sýslumanni á höfuðborg­ arsvæðinu og kerfisstjóra hjá Advania. Enn fremur segir Vinnu­ málastofnun í áðurnefndri skýrslu að 144 störf hafi verið auglýst hjá vinnumiðlun Vinnumálastofnunar í júlí. DV tók saman fjölda aug­ lýsinga í nýjasta atvinnuaug­ lýsingablaði Fréttablaðsins og flokkaði störfin eftir því hvort krafist væri háskóla­ menntunar eða ekki. Í heild voru 28 störf auglýst þar. 17 kröfðust háskólaprófs eða annars konar sérfræðimennt­ unar, sex kröfðust háskóla­ prófs og mikillar reynslu og fimm gerðu ekki kröfu um háskólamenntun. Tíu af aug­ lýsingunum 28 voru stjórn­ unarstörf. Sambærilega sögu er að segja af Starfatorgi, þar sem laus störf hjá hinu opin­ bera eru auglýst. Af þeim 83 störfum sem laus voru til um­ sóknar gerðu 52 kröfu um há­ skólapróf og 21 ekki. Kreppan ekki óyfirstíganleg DV.is sagði frá því fyrr í sumar að Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta, hefði opnað ráðn­ ingarskrifstofu. Þótti fréttin skera sig allnokkuð úr öðrum fréttum á þeim tíma af hóp­ uppsögnum og yfirvofandi at­ vinnuleysi. Sagði Andrés þá við DV að miklar breytingar væru að verða á hvernig að ráðningum væri staðið á Ís­ landi og hvernig hæfni væri metin. „Við skiljum betur hvernig við prófum fólk, við styðjumst við raunhæf verk­ efni í ráðningarferlum og byggjum á miklu meiri upp­ lýsingum en yfirferð á fer­ ilskrám og öðrum aðsendum gögnum.“ Í samtali við blaðamann seg­ ir hann að ráðningarskrifstofa Góðra samskipta gangi vel. Engu að síður sé ljóst að fram undan sé kreppa en Andrés segist þó jákvæður. „Þetta er kreppa sem Íslendingar kunna á. Við erum svo vön aflabresti og öðrum skyndilegum ytri áföllum sem ekki tengjast hefðbundnum hagsveiflum.“ Andrés segir íslenska þjóð úrræðagóða og að hún hafi reynslu af því að finna sér nýjar matarholur þegar mest liggur við. Mestar áhyggjur hefur Andrés þó af háskóla­ menntuðum. Of fá alþjóðleg þekkingarfyrirtæki séu hér á landi sem geti boðið há­ skólamenntuðum góð laun og áhugaverð verkefni. Það taki tíma að skapa ný slík tækifæri á markaði. „Við þurfum að taka Dani okkur til fyrirmyndar. Jafn­ vel þó tekið sé tillit til þess að þeir eru 16 sinnum fjölmenn­ ari þjóð en við, eru þeir lík­ lega með 20­30 sinnum fleiri öflug þekkingarfyrirtæki en við,“ segir Andrés. Íslendingar stóðu síðustu kreppu af sér svo eftir var tekið. Gríðarleg fjölgun varð í fjölda fyrirtækja, einna helst í ferðaþjónustu og upp úr henni urðu til tæknifyrirtæki í geir­ anum eins og Guide to Iceland og Bókun. Nú er komið að því að endur­ taka leikinn. n Þeir sem áður störfuðu í ferðaþjónustu eru fjórðungur atvinnulausra. Ljóst er að fá störf munu bjóðast í þeim bransa í vetur. MYND/ERNIR Þetta er kreppa sem Íslendingar kunna á. Seinni hluti af tveimur. Fyrri hluti greinarinnar birtist í síðasta tölublaði DV 8 FRÉTTIR 21. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.