Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Page 10
10 FRÉTTIR 21. ÁGÚST 2020 DV
Ágústa er fædd árið 1963 og uppalin að mestu í Garðabænum. Móðir
Ágústu, Hildigunnur Johnson,
var mikið til heimavinnandi
framan af enda í nógu að snú-
ast með fjögur fjörug börn
á heimilinu. Pabbi Ágústu,
Rafn Johnson, var forstjóri
Heimilistækja í hartnær fjóra
áratugi eða frá stofnun fyrir-
tækisins.
Viðskiptavit hefur Ágústa
því ekki langt að sækja en hún
var á leið í nám í innanhúss-
arkitektúr þegar pabbi hennar
sá tækifæri í ástríðu Ágústu.
„Á þeim tíma hafði ég tölu-
verðan áhuga á líkamsrækt.
Mamma hafði komið heim
með bók með Jane Fonda-æf-
ingum sem við vinkonurnar
lærðum utan að.“
Árangur æfinganna varð
fljótt sjáanlegur og streymdu
fleiri skólasystur að svo að
hópurinn varð geysivinsæll.
„Þetta vatt upp á sig og endaði
í því að við leigðum okkur sal
og fórum að hittast reglulega
og gera æfingar.“
Ætlaði að verða
innanhússarkitekt
Á þessum tíma var Ágústa í
Verslunarskólanum og farin
að huga að næstu skrefum.
„Pabbi spurði, þegar ég var
komin inn í skóla í innanhúss-
arkitektúr í Þýskalandi, hvort
ég hefði ekki velt því fyrir
mér að læra eitthvað í tengsl-
um við þessa leikfimi sem ég
virtist hafa brennandi áhuga
á. Á þessum tíma var bara
hægt að læra að verða íþrótta-
kennari en ekki eitthvað tengt
almennri heilsurækt. Ég fór
að grúska í þessum málum og
fann loks upplýsingar um tóm-
stundafræði sem sneri meðal
annars að rekstri líkamsrækt-
arstöðva.“
Úr varð að Ágústa lærði
blandað fag í bandarískum
háskóla sem tók bæði til við-
skiptahliðar heilsuræktar og
líkamlegrar hliðar hennar,
svo sem íþróttafræði. „Ég hef
aldrei séð eftir því og held
að ég hefði ekki orðið góður
innanhússarkitekt þegar á
reyndi. Foreldrar þekkja
mann jafnvel betur en maður
sjálfur á þessum aldri og
sjá því fleiri tækifæri út frá
reyndara sjónarhorni,“ segir
Ágústa og brosir. Hún segist
sjálf þekkja þetta og lætur
sig varða hvaða braut börnin
hennar velja. „Maður finnur
að maður hefur ákveðna inn-
sýn í áhugasvið barna sinna
og getur aðstoðað þau.“
Þessi líkamsræktaráhugi
Ágústu vatt heldur betur upp
á sig en á þessum tíma var
eróbikk einna vinsælast og
lítið um lyftingasali á Íslandi.
Að námi loknu opnaði hún sína
eigin stöð með Jónínu Bene-
diktsdóttur íþróttafræðingi
árið 1986.
„Ég geri mér alveg grein
fyrir því að ég var heppin með
hvernig hlutirnir æxluðust
og að ég hafi stokkið á þetta
tækifæri sem bauðst. Jónína
kenndi mér mikið á þessum
árum og þegar hún fór út úr
fyrirtækinu hafði ég öðlast
sjálfstraust til að taka sjálf
við rekstrinum,“ segir Ágústa.
Í kjölfarið var Ágústa með
líkamsræktarþætti á RÚV.
Hún var þá tiltölulega nýút-
skrifuð frá Bandaríkjunum
ÞETTA ER
BOTNLAUS
VINNA
Líkamsræktarfrömuðurinn
Ágústa Johnson lærði það
snemma á viðskiptaferli sínum
hve viðkvæm og lítt sjálfsögð
velgengni er. Hún tileinkaði sér
því rétt liðlega tvítug aðferða-
fræði sem hún hefur byggt eitt
farsælasta vörumerki landsins á.
Þegar við Jónína stofnuð-
um Stúdíó Jónínu og Ágústu
áttum við engan pening. Við
fengum bara hrátt húsnæði
sem við innréttuðum sjálf-
ar með góðri hjálp vina og
vandamannna.
Ágústa Johnson stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki rétt rúmlega tvítug. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Þorbjörg
Marínósdóttir
tobba@dv.is