Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Qupperneq 14
21. ÁGÚST 2020 DV ÁSLAUG ARNA SIGURBJÖRNSDÓTTIR Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra þeysist nú um landið í tveggja vikna hestaferð með föður sínum, hestamanninum Sigurbirni Magnússyni hæsta- réttarlögmanni og stjórnarfor- manni Morgunblaðsins. Riðu þau meðal annars fram hjá Dyrhólaey í vikunni og deildi Áslaug mynd af útsýninu á Instagram-síðu sinni. Áslaug hefur verið dugleg að ferðast um landið í sumar og stoppaði meðal annars í humar- pítsu á Höfn í Hornafirði, synti í Seljavallalaug og gisti á Fosshót- eli Jökulsárlóni í júlí. ÍS OG REIÐTÚRAR Samfélagsmiðlar iðuðu af sólríkum sumarmyndum frá íslensku stjórnmálafólki í sumar. Voru göngur og hestaferðir vinsælar en aðrir létu sér duga ís. KATRÍN JAKOBSDÓTTIR Katrín Jakobsdóttir fór í fundaferð um Austurland. Katrín fór á opinn og fjörugan fund á Seyðisfirði, opið og skemmtilegt kaffispjall á Djúpavogi og í fróðlega göngu um Höfn í Hornafirði. BJARNI BENEDIKTSSON Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra virðist hafa farið nán- ast út um allt land. Hann deildi myndum frá Látrabjargi á Vest- fjörðum, hann heimsótti Hellis- fjörð og gekk upp á Lómagnúp á Suðurlandinu. SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og landbúnaðarráðherra, opnaði reiðbrú á Akureyri og fór síðan suður yfir Kjöl. Á leiðinni stoppaði hann í Kerlingarfjöllum og tók þessa mynd í miðnætur- sólinni. ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, skellti sér í Hafnarfjörðinn og fór á hestbak með systur sinni. Þá gerði hún sér líka ferð til Vestfjarða með fjölskyldunni þar sem meðal ann- ars var komið við á Rauðasandi. PÁLL MAGNÚSSON OG BRYNJAR NÍELSSON Flokksbræðurnir og þingmenn- irnir Páll Magnússon og Brynjar Níelsson nutu sólarinnar saman á höfuðborgarsvæðinu. Þeir voru klæddir í stíl og fengu sér ís sam- an á Austurvelli. LOGI EINARSSON Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, gerði sér ferð að Hraunfossum á Vesturlandi. Veðrið virðist hafa leikið við Loga en hann deildi þessari fallegu mynd af fossunum á Instagram-síðu sinni. MYND/INSTAGRAM MYND/FACEBOOK MYND/FACEBOOK MYND/INSTAGRAM MYND/INSTAGRAM MYND/INSTAGRAM MYND/FACEBOOK 14 FRÉTTIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.