Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Síða 26
Spennandi þættir á skjánum í vetur RÁÐHERRANN RÚV Leiknir þættir með Ólafi Darra Ólafssyni og Anitu Briem í aðalhlutverkum. Þegar forsætisráðherra greinist með geðhvarfasýki þarf aðstoðarmaður hans að leggja bæði stöðugleika ríkisins og einkalíf sitt að veði til þess að halda sjúkdómnum leyndum fyrir þjóðinni. Leikstjórn: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Arnór Pálmi Arnarsson. ÞAÐ ER KOMINN HELGI SJÓNVARP SÍMANS Einn vinsælasti tónlistarmaður landsins, Helgi Björns, snýr aftur heim í stofu landsmanna! Fylgstu með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna flytja nokkrar sívinsælar dægurperlur með aðstoð góðra gesta. VENJULEGT FÓLK SJÓNVARP SÍMANS Þriðja þáttaröðin af Venjulegu fólki fer í loftið í október. Dramatískir þættir með gamansömu ívafi og fjalla þeir um samband tveggja vinkvenna og þær hversdagslegu áskoranir sem fylgja fullorðinsárunum. Með aðalhlut­ verk fara Vala Kristín, Júlíana Sara, Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst. Vala og Júlíana skrifa þættina ásamt Dóra DNA og Fannari Sveinssyni úr Hraðfréttum en hann leikstýrir einnig þáttunum. ALLT ÚR ENGU STÖÐ 2 Matarsóun er eitur í eyrum Davíðs Arnar Hákonarson- ar sem hefur á ferli sínum sem matreiðslumaður lagt áherslu á nýtingu matvæla á sama tíma og hann töfrar fram óvænta og skemmtilega rétti fyrir matargesti sína. Davíð mun kenna áhorfendum góðar leiðir til að koma í veg fyrir matarsóun og spjalla við skemmtilega gesti í þáttunum. SMÁBORGARASÝN FRÍMANNS RÚV Heimsborgarinn Frímann Gunnarsson ferðast um landið á húsbíl og rannsakar hvort í dreifbýlinu sé yfir höfuð einhverja menningu að finna. Hann hefur engar væntingar en mun auðvitað koma með menninguna með sér í farteskinu. GULLREGN RÚV Sjónvarpsþættir sem byggja á samnefndu leikriti og kvikmynd eftir Ragnar Bragason. Gullregn fjallar um kerfisfræðinginn Indíönu Jónsdóttur sem býr í lítilli blokkaríbúð umkringd innflytjendum sem hún hefur ímugust á. Í litlum garðskika við íbúðina stendur gull- regn, verðlaunatré sem Indíönu er sérstaklega kært. Þegar sonur hennar kemur heim með kærustu af erlendum uppruna snýst veröld hennar hins vegar á hvolf. NÁTTÚRAN KALLAR RÚV Viðtalsþættir með Láru Ómarsdóttur þar sem hún ræðir við fjölskyldur sem hafa valið að búa og starfa í nálægð við náttúruna. NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI RÚV Vísindin í nærumhverfi okkar skoðuð út frá fjölbreytt- um og fróðlegum sjónarhornum. Umsjónarmenn: Sig­ mar Guðmundsson, Sævar Helgi Bragason og Edda Elísabet Magnúsdóttir. EUROGARÐURINN STÖÐ 2 Eurogarðurinn er gamanþáttaröð sem gerist í Húsdýragarðinum og fjallar um drykkfelldan miðaldra braskara með vafasaman við- skiptaferil sem kaupir Húsdýra- garðinn. Hann hefur stórkostlegar hugmyndir um framtíð garðsins sem hann kallar Eurogarðinn, sem hann sér fyrir sér ná upp í sömu stærðargráðu og Disney-World. Helstu hlutverk: Jón Gnarr, Anna Svava Knútsdóttir, Auðunn Blönd­ al, Steindi Jr. og Dóri DNA. Hefst 20. september Hófst 16. ágúst Hefst 14. september Hefst 27. september Hefst 28. október Hefst 28. október Hefst 28. október Hefst 19. september Hefst 24. ágúst Innlend þáttagerð springur út á næstu mánuðum og virðist áherslan vera á grín og drama. Enginn spennuþáttur er á dagskrá en Ráðherrann, Eurogarðurinn og Venjulegt fólk lofa góðu svo ekki er ástæða til þess að kvíða næstu lægð 26 FÓKUS 21. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.