Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Síða 32
Súkkulaðisprengju-bollakökur
4 egg
100 g sæta sykurlaus t.d. Good
good, eða Sukrin Gold
1 dl rjómi
1 dl sýrður rjómi 36%
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
50 g kókoshveiti Funksjonell
20 g kakó, Nói-Siríus
1/2 tsk. salt
30 ml heitt kaffi uppáhellt eða soðið
vatn
1 tsk. vanilludropar
Þeytið egg og sætu saman, því næst
rjóma, sýrðan rjóma, og vanillu-
dropana.
Bætið að lokum þurrefnum saman
við. Látið deigið standa í smá tíma.
Deilið nú í 12 múffuform. Ágætt
að pensla aðeins formin að
innan með kókosolíu því
kókoshveitið á það til að
festast í bréfinu.
Bakið í 20 mínútur á
170°C hita.
Krem
80 g fínmöluð sæta t .d.
Sukrin Melis
125 g rjómaostur
250 ml rjómi
1 tsk. skyndikaffiduft má sleppa
1 msk. kakó
Þeytið saman sætu, kakó, kaffiduft
og rjómaostinn.
Bætið rjóma saman við og skafið vel
úr hliðunum á skálinni. Hrærið var-
lega fyrst svo rjóminn blandist því
sem komið er í skálina. Setjið síðan
allt á fullt og þeytið þar til toppar
myndast í kreminu.
Sprautið kreminu ofan á kökurnar
með fallegum stút og skreytið með
sykurlausum súkkulaðispæni.
MYND/AÐSEN
D
Matseðill
Maríu Kristu
Morgunmatur
Ég byrja alla daga á Bulletproof
kakóbolla en hann samanstend-
ur af kaffi, MCT-olíu, smjöri,
heilögu kakói frá kako. is, stevíu
og Vital Protein kollagen-dufti.
Ég geng á þessu alveg langt
fram yfir hádegi.
Hádegismatur
Ég geri oft svona ostavöfflur og
fæ mér þá avókadó-salat ofan á
eða léttsoðið egg. Ég á það til
að henda í ketó „grjónagraut“
sem samanstendur af kotasælu,
eggi og hörfræmjöli með rjóma
og kanil, hitað í potti. Svo ef ég
gríp mér eit thvað fljótlegt þá
eru það salötin frá Local sem
ég gerði í samstarfi með þeim
og eru öll ketóvæn.
Millimál
Ef ég narta í eit thvað þá eru
það stundum harðsoðin egg,
pepperonistangir, hrökkkex,
hnetur, ostur, einstöku sinnum
fitubomba sem ég útbý og á í
frysti.
Kvöldmatur
Við reynum að borða saman
flest okkar þót t það sé ekki
all taf á hefðbundnum tíma
en við erum duglega að grilla
langt fram yfir sumar og núna
eru hamborgarar og steikur
vinsælar. Ég geri mér sérstakt
brauð undir minn borgara og
uppáhalds er að bera fram með
brie-osti og sykurlausum sult-
uðum rauðlauk. Piparostasósa
og steik með brokkolí steiktu
upp úr nógu miklu smjöri er svo
mjög vinsælt líka.
32 MATUR 21. ÁGÚST 2020 DV
Lærði að elska brokkolí
meira en góðu hófi gegnir
María Krista Hreiðarsdóttir er grafískur hönnuður og einn helsti ketó-sérfræðingur Ís-
lands. Hún segist hafa verið Íslandsmeistari í megrun en eftir að hún hafði kynnst ketó
og lágkolvetnamataræði fann hún sína hillu. Hvað ætli hún borði á venjulegum degi?
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Ég vinn hjá sjálfri mér sem grafískur hönnuður og matarbloggari
en ég rek bloggsíðuna maria
krista. com og held úti Insta
gramsíðunni @kristaketo. Ég
held líka námskeið og gaf út
vefnámskeið núna í apríl þeg
ar COVID mætti á svæðið,“
segir María Krista.
„Ég fer eins oft og ég get á
morgnana í leikfimi í Hress í
Hafnarfirði sem er klárlega
vinalegasta og besta stöðin
á landinu, enda hef ég verið
fastakúnni í rúm 15 ár held
ég svei mér þá. Síðan taka við
verkefni fyrir heildsölur og
matvöruverslanir en ég vinn
mikið í samstarfi við fyrir
tæki, blogga og mynda upp
skriftir. Ég hanna síðan mínar
eigin gjafavörur ásamt eigin
manninum, bý til uppskriftir
og prenta á plöstuð spjöld sem
seljast vel. Svo það er nóg að
gera á heimilinu ásamt því að
sinna barnabarni eins oft og
mögulegt er og litla hundinum
okkar Sólon.“
Ketó
María Krista fylgir ketó og
lágkolvetnamataræði til skipt
is. „Það fer eftir hversu mikið
ég er að baka og stússa fyrir
bloggið. Baksturinn myndi
flokkast meira undir lágkol
vetnamataræðið og ég elska
að baka og gera sykurlausar
útgáfur af mínum uppáhalds
mat. Það er hins vegar alltaf
gott að grípa í ketó og kol
vetnainntaka mín er oftast
mjög lág.“
María Krista ver nánast
öllum deginum í eldhúsinu
„Ég elda mikið fyrir bloggið
mitt og Instagram og er stöð
ugt að þróa og prófa nýjar
uppskriftir. Einhverjir kalla
mig kannski góðan kokk og
þá sérstaklega þeir sem eru á
sama fæði og ég. Krakkarnir
eru kannski ekki alltaf hrifnir
þegar þeir heyra orðið „sykur
laust“ en þeir hafa gott af því
og borða nú allan mat sem ég
set á borð fyrir þau,“ segir
hún.
Uppáhaldsmáltíð
„Mér finnst steik mjög góð
og hef lært að elska brokkolí
meira en góðu hófi gegnir. Ég
María Krista fylgir ketó og lágkolvetnamataræði til skiptis. MYND/ANTON BRINK
reyndar lærði að borða græn
meti þegar ég fór að fylgja
ketó mataræðinu því það
snýst svo sannarlega ekki ein
göngu um beikon og egg. Ég er
mikill kúrbítsaðdáandi, borða
eggaldin, brokkolí og grasker
sem meðlæti og nota hnúðkál
í „kartöflusalatið.“ Ég hef lík
lega sjaldan borðað eins mikið
af fjölbreyttu grænmeti og nú.
Ég elska einnig kalkún en ég
passa mig á að hafa hann spari
á jólunum og mögulega pásk
um,“ segir María Krista. n