Morgunblaðið - 06.01.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.01.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020 595 1000 . heimsferdir.is 60+ Tenerife vorið 2020 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Frá kr. 239.995 Fararstjóri: Gunnar Svanlaugsso Komið í sölu! 18. apríl í 18 nætur Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hægt verður að hefja hleðslu raf- geyma Herjólfs upp úr miðjun mán- uði, ef allt gengur að óskum. Þá verða sjö mánuðir liðnir frá því skipið kom til landsins, með megnið af búnaði til rafhleðslu, og nærri hálft ár frá því skipið hóf áætlanasiglingar. Þennan tíma hefur skipið verið knúið með dísilvél. Rafhleðsluturnarnir sem notaðir eru til að hlaða rafgeyma Herjólfs voru settir upp í Vestmannaeyjahöfn og Landeyjahöfn í haust og þá höfðu rafstrengir verið lagðir að þeim. Ekki tókst að fá búnaðinn í Vest- mannaeyjum til að virka þótt skipið væri tekið úr rekstri á meðan verið var að stilla búnaðinn. Tölva með þrívíddarauga stýrir klónni í hleðsluarminum í innstung- una í skipinu. Tæknimenn frá fram- leiðendum búnaðarins urðu frá að hverfa í nóvember, töldu að galli væri í stýribúnaðinum. Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., segir að búið sé að finna út úr þessu og tæknimenn frá framleið- anda búnaðarins, þýska fyrirtækinu Stemmann, séu væntanlegir um miðja vikuna til að koma hleðsluturn- inum í lag. Í byrjun næstu viku sé síð- an von á tæknimönnum frá framleið- anda rafbúnaðar skipsins, sænska fyrirtækinu ABB, til að stýra hleðslu á rafgeyma skipsins. Samskonar búnaður í Landeyjahöfn er nánast frágenginn. Guðbjartur segir að reynt verði að skipuleggja vinnuna þannig að áætl- un Herjólfs raskist ekki. Vistvænni og ódýrari rekstur Herjólfur er svokallað tvíorkuskip. Það getur siglt fyrir raforku af raf- hlöðum sem hlaðnar eru með raf- magni frá landi og orku frá skrúfu, fyrir afli dísilvélar eða notað báða orkugjafa. Guðbjartur segir að hver hleðsla eigi að duga fyrir siglingu á milli Vestmannaeyja og Landeyja- hafnar og skipið fái síðan hleðslu í höfn fyrir næstu ferð. Hann segir viðbúið að skipið verði einnig knúið með dísilvél, til dæmis þegar því er lagt að bryggju. Þá dugar rafmagnið skammt þegar Landeyjahöfn er lok- uð vegna veðurs og sigla þarf til Þor- lákshafnar. Þar er heldur ekki að- staða til hleðslu skipsins. „Við erum orðin spennt að fá þenn- an búnað. Reksturinn verður vist- vænni og ódýrari og hljóðvist skips- ins enn betri en með dísilvélum,“ segir Guðbjartur. Hann segir að eftir sé að meta hversu mikill kostnaður við olíukaup sparist þegar rafhleðslubúnaðurinn kemst í notkun. Framleiðandinn gefi upp að 40-45% olíukaupa sparist en sjálfur segist hann vera varkárari og miða við 35-40% sparnað. Hann segir að margir óvissuþættir séu í þessu, meðal annars hversu oft þurfi að sigla til Þorlákshafnar. Þá sé hægt að hafa stjórn á kostnaðinum með stýr- ingu á hraða skipsins. Allt komi þetta í ljós á næstu vikum og mánuðum. Ekki valdið erfiðleikum „Það er leiðinlegt að við skulum ekki vera byrjuð að hlaða skipið úr landi. Ég held að menn hafi gert allt sem þeir hafa getað til koma því á. Þetta er vonandi að koma,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum. Hún segir að það valdi ekki erfiðleikum fyrir Eyjamenn þótt skipið noti dísilvélar og ekki hafi orð- ið þjónusturof vegna vinnu við hleðsluturnana vegna þess að gamli Herjólfur hafi getað hlaupið í skarð- ið. Erfiðara sé fyrir rekstraraðilann að þurfa oft að gera nýjar áætlanir. „Við skiljum það vel í sjávarútvegs- byggðum að ýmislegt getur komið upp þegar nýtt skip er tekið í notk- un.“ Búið að leysa vandamálið  Tæknimenn væntanlegir til Eyja til að koma rafhleðslubúnaði Herjólfs í gang  Skipið hefur siglt fyrir dísilolíu frá því það kom til landsins fyrir sjö mánuðum Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Sigling Herjólfur sigldi sína fyrstu áætlunarferð á milli lands og Eyja undir lok júlímánaðar. Hann fær enn orku sína frá dísilvél. Íris Róbertsdóttir Guðbjartur Ellert Jónsson Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Ég er búinn að vera búsettur í Ástralíu í ein 30 ár og þetta er versta sumar sem ég hef upplifað hér. Ástandið er hræðilegt,“ segir Þorvaldur Hreinsson, sem býr í bænum Eden á austur- strönd Ástralíu, skammt frá verstu hamfara- svæðum kjar- reldanna í Nýju Suður-Wales. Sökum vinnu sinnar á dráttarbáti hefur Þorvald- ur ekki verið í Eden undanfarna daga. Var hann staddur í Melbo- urne þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gær. Hann hafði þá verið í daglegu sambandi við ástr- alska eiginkonu sína í Eden og vini sem þar búa. Í bænum búa um 3.500 manns. Eldar allt í kringum bæinn Þykkur reykjarmökkur liggur yfir Eden og að sögn Þorvaldar voru eldarnir aðeins í 2-3 kíló- metra fjarlægð frá bæjarmörkun- um. Var íbúum skipað að yfirgefa heimili sín og koma sér á öruggan stað. Hefur eiginkona Þorvaldar, ásamt vinafólki, dvalið um borð í dráttarbáti við höfnina í Eden síð- ustu tvo daga. Þorvaldur segir að um varúðarráðstöfun hafi verið að ræða, í gær hafi ástandið eitthvað lagast þar sem vindáttin breyttist úr suðvestri í norðaustur. Hitinn er eftir sem áður gríðarlegur, þannig komst hann í 49,6 gráður í Sydney. „Eldurinn kom ekki inn í Eden og það hefur ekkert brunnið í bænum sjálfum, en það hafa orðið miklar skemmdir í sveitunum í kring. Það er of snemmt að segja til um eyðilegginguna því það er svo mikill svartur og þykkur reyk- ur alls staðar,“ sagði Þorvaldur við Morgunblaðið. „Versta sumar sem ég hef upplifað hér“  Íslendingur í Ástralíu segir ástandið vegna elda hræðilegt Þorvaldur Hreinsson AFP Brennur Kjarreldar brenna víða í suðausturhluta Ástralíu. Hér í bænum Moruya, suður af Batemans-flóa í Nýju Suður-Wales, í fyrradag. Enginn Íslendingur í Ástralíu hafði leitað til borgaraþjónustu utanrík- isráðuneytisins í gær þegar Morg- unblaðið hafði samband. Sveinn H. Guðmarsson, fjöl- miðlafulltrúi utanríkisráðuneyt- isins, sagði jafnframt að utanrík- isráðuneytið hefði ekki gefið út ferðaviðvörun vegna kjarreldanna í Ástralíu en sagði að slíkt væri sjaldan gert. Hann benti þó á við- varanir utanríkisráðuneyta Norð- urlandanna og Bretlands, en þau ríki gætu í flestum tilfellum gefið mun ítarlegri og betri viðvaranir, enda með meiri starfsemi í Ástr- alíu. Hann sagði utanríkisráðuneytið þó vitanlega fylgjast grannt með málum. Enginn leitað til borgaraþjónustu ÍSLENDINGAR Í ÁSTRALÍU Margra jarðskjálfta varð vart um helgina, t.d. varð stór skjálfti við Bárðarbungu í Vatnajökli um klukk- an hálffimm í fyrrinótt. Mælingar gefa til kynna að skjálftinn hafi verið af stærðinni 4,8. Samkvæmt upplýs- ingum á vef Veðurstofu Íslands fylgdi að minnsta kosti einn stór eft- irskjálfti í kjölfarið, rétt fyrir klukk- an fimm í fyrrinótt, 4,0 að stærð. Fyrri skjálftinn, að stærð 4,8, er með þeim stærri sem orðið hafa við Bárðarbungu frá því að gosi lauk í henni í febrúar 2015. Síðast voru fluttar fréttir af skjálftum í Bárðarbungu í nóv- ember, en stærsti skjálftinn í þeirri hrinu var 4,0 að stærð. Þá hófst töluverð jarðskjálfta- hrina á Reykjaneshrygg á níunda tímanum í gærmorgun, og voru skjálftarnir á bilinu 2,1 til 3,6 að stærð. Á vef Veðurstofunnar kemur fram að jarðskjálftar séu algengir á þessu svæði og að síðasta jarð- skjálftahrina hafi átt sér stað í nóv- ember á síðasta ári. Morgunblaðið/RAX Skjálftar Bárðarbunga fönguð á flugi. Hún skalf um helgina. Bárðar- bunga skalf um helgina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.