Morgunblaðið - 06.01.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020
Nú er tími til að
etja mannbrodda
á skóna þína
Eigum mikið úrval
Við erum hér til að aðstoða þig! -
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
-
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
ÚTSALAÁRSINSALLT AÐ 75% AFSLÁTTUR AF YFIR 1000VÖRUM. ALLT AÐ 50.000 AFSLÁTTUR AFYFIR 300 FARTÖLVUM
ÚTSALAN Á FULLU Í TÖLVUTEK
Opið í
dag 10-18
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Góðum árangri í íþróttum fylgja
alltaf miklar væntingar um að
gert sér enn betur. Íslendingar
hafa sterkar skoðanir á fótbolt-
anum sem er vel og staðfestir að
hann skiptir okkur miklu máli,“
segir Guðni Bergsson, formaður
Knattspyrnusambands Íslands.
„Þegar vel gengur, eins og í fót-
boltanum síðustu ár, hefur það um
margt jákvæð áhrif á samfélagið
og iðkendum fjölgar. Í dag eru
skráðir 28 þúsund iðkendur í
skipulögðu knattspyrnustarfi að-
ildarfélaga KSÍ og hafa aldrei ver-
ið fleiri. Að börnin okkar hreyfi
sig og séu þátttakendur í íþrótt-
um, til dæmis fótbolta, er mik-
ilvægt fyrir félagsþroska og lýð-
heilsu almennt. Í þessu liggur hin
dýpri merking fótboltans og
íþrótta almennt.“
Við ætlum aftur á EM
Íslendingar eru knattspyrnu-
þjóð. Þátttakan er almenn, hvort
sem fólk æfir, mætir á völlinn,
fylgist með í sjónvarpinu eða ræð-
ir málin í kaffitímanum í vinnunni.
Nú horfa margir til þess að karla-
landslið Íslands nái á EM í knatt-
spyrnu í sumar. Hvort af því verði
skýrist að hluta þann 26. mars
næstkomandi, en þegar landslið
Íslands og Rúmeníu mætast á
Laugardalsvelli, ef aðstæður
leyfa. Liðið sem þar vinnur mætir
svo annað hvort Búlgaríu eða
Ungverjalandi á útivelli og þar
ráðast úrslit.
„Möguleikar Íslands á því að
komast á EM í þessu umspili eru
góðir þó liðin í umspilinu séu fjög-
ur,“ segir Guðni. „Við áttum góða
heimaleiki síðasta sumar bæði á
móti Tyrklandi og Albaníu í riðli
með sterkum liðum innanborðs. Í
riðlakeppninni í fyrra var mikið
um meiðsli lykilmanna í íslenska
landsliðinu og í þeim 10 lands-
leikjum sem við lékum voru í byrj-
unarliði okkar alls 23 leikmenn,
borið saman við 14 fyrir EM árið
2016. Árangurinn var því góður í
því ljósi þó við kæmust ekki áfram
í fyrstu lotu. Mestu skiptir samt nú
að bæði leikmenn okkar og þjálf-
arar eru einbeittir og ætla sér alla
leið. Við ætlum okkur aftur á EM.“
Lengra Íslandsmót og
bikarkeppni neðri deilda
Á líðandi stund er unnið að
margvíslegum umbótum í knatt-
spyrnustarfinu á Íslandi. Á síðustu
þremur árum hefur KSÍ greitt að-
ildarfélögum sínum alls 650 millj-
ónir króna af þeim fjármunum
sem sambandið fékk eftir þátttöku
í EM og HM. Á vettvangi sam-
bandsins sjálfs er svo verið að end-
urskoða hina ýmsu þætti starfsins.
Í skoðun er meðal annars að
lengja Íslandsmót karla í knatt-
spyrnu þannig að Pepsi Max-deild
karla verði mögulega leikin í
þremur umferðum í stað tveggja
nú. Einnig er verið að skoða um-
spil í næst efstu deild og að efna til
bikarkeppni neðri deilda, breyta
fyrirkomulagi á starfi og mótum
yngri flokka og svo mætti áfram
telja.
„Mér finnst gaman að heim-
sækja aðildarfélög úti á landi og
finna hvað fótboltinn skiptir oft
miklu máli þar. Oft er knatt-
spyrnan og gengi heimaliðsins
stór þáttur í bæjarlífinu,“ segir
Guðni og ítrekar í þessu sambandi
mikilvægi þess að rekstrar-
umhverfi knattspyrnufélaga sé
heilbrigt. Víða sé barna- og ung-
lingastarfið rekið sérstaklega með
æfingagjöldum iðkenda ásamt frí-
stundastyrkjum sveitarfélaga og
utanaðkomandi stuðningi eftir at-
vikum.
„Starfsumhverfi afreks-
íþróttanna er þungt sérstaklega
nú þegar fyrirtækin eru að draga
saman í stuðningi við íþróttir og
launakostnaður leikmanna
kannski hærri en æskilegt er. Við
verðum að vinna saman að því að
rekstur félaga verði sjálfbær og
starfsumhverfið heilbrigt. Við
megum heldur ekki gleyma því að
fótboltinn skilar líka miklu til
samfélagsins. Skattasporið er
áætlað um tveir milljarðar, en á
móti fær knattspyrnustarfið tæp-
lega 100 milljónir kr. á ári frá rík-
inu.“
Mikilvægir innviðir
Byggjum nýja höll og nýjan
völl, sagði Guðni Th. Jóhann-
esson, forseti Íslands, þegar val á
íþróttamanni ársins var kynnt.
Formaður KSÍ segist fagna
þessum orðum nafna síns, sem
sýni framsýni og góðan skilning
hans á gildi íþrótta fyrir sam-
félagið. Óumdeilt sé að nýjan
þjóðarleikvang þurfi í Laugar-
dalnum. Undirbúningsfélag á veg-
um Reykjavíkurborgar, ríkisins
og Knattspyrnusambands Íslands
vinni nú að útboði vegna grein-
ingar og áætlanagerðar á þeim
valkostum sem er í stöðunni með
Laugardalsvöll. Þeirri vinnu mun
ljúka með vorinu.
„Þetta er í þriðja sinn á 4-5
árum sem farið er þarfagreiningu
og áætlanagerð vegna nýs leik-
vangs. Vonandi verður síðar á
þessu ári komið að því að stjórn-
völd taki af skarið. Íþróttamann-
virki eru á meðal mikilvægra inn-
viða hvers samfélags og kominn
er tími á framkvæmdir.“
Lýðheilsa, félagsþroski og dýpri merking fótboltans
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Knattspyrna Mér finnst gaman að heimsækja aðildarfélög úti á landi og
finna hvað fótboltinn skiptir oft miklu máli þar, segir Guðni Bergsson.
Ætla með einbeitni á EM
Guðni Bergsson er fæddur
árið 1965, er lögfræðingur að
mennt og starfaði um nokkurt
skeið sem lögmaður í Reykja-
vík. Atvinnumaður í knatt-
spyrnu hjá Tottenham Hotspur
FC 1989-1993 og Bolton 1995-
2003. Fyrr á árum leikmaður
Vals og á að baki 80 leiki með
A-landsliði Íslands.
Formaður Knattspyrnu-
sambands Íslands frá árinu
2017. Hefur í tímans rás sinnt
ýmsum félags- og trúnaðar-
störfum tengdum fótbolt-
anum, svo sem í tengslum við
Val og erlendis. Einn af stofn-
endum Knattspyrnuakademíu
Íslands.
Hver er hann?
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Almenn komugjöld sjúkratryggðra á heilsu-
gæslustöð á dagvinnutíma lækkuðu úr 1.200
krónum í 700 krónur þann 1. janúar 2020.
Lækkunin nær til þeirra sem skráðir eru á við-
komandi heilsugæslustöð. Fari sjúkratryggður
einstaklingur á heilsugæslustöð þar sem hann
er ekki skráður er komugjaldið áfram 1.200
krónur. En hvað er að vera skráður á heilsu-
gæslustöð?
„Allir eru skylduskráðir á heilsugæslustöð.
Þú getur valið þér heilsugæslustöð, en ef þú ger-
ir það ekki þá ertu settur á tiltekna stöð,“ sagði
Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins. Hann segir algengast að
fólk sé skráð á heilsugæslustöð í hverfinu þar
sem það býr. Sumir kjósi þó að skrá sig á aðra
heilsugæslustöð, t.d. í hverfi þar sem þeir
bjuggu áður og þar sem þeir þekkja starfsfólkið.
„Tilgangurinn er sá að hvetja fólk til að skrá
sig á þá heilsugæslustöð sem það notar mest,“
sagði Óskar. Hann segir að það að nota sömu
heilsugæslustöð stuðli að betri heilbrigðisþjón-
ustu en ef fólk fer alltaf á nýja og nýja stöð í
hvert skipti sem það þarf á heilbrigðisþjónustu
að halda.
Auk þess að skrá sig á heilsugæslustöð getur
fólk einnig valið sér og skráð tiltekinn heim-
ilislækni. Um 70% notenda heilsugæslunnar
hafa gert það, að sögn Óskars.
Hægt er að leita upplýsinga um hvar maður
er skráður á heilsugæslustöð á vef Sjúkratrygg-
inga Íslands (sjukra.is) og á vefnum heilsuvera-
.is. Aðgangur að þessum vefjum fæst með raf-
rænum skilríkjum. Hægt er að breyta
skráningu á heilsugæslustöð á vefnum hjá
Sjúkratryggingum Íslands.
Komugjöld falla niður 2021
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
greindi frá því 19. desember sl. að komugjöld í
heilsugæslu yrðu felld niður í áföngum. Lækkun
komugjalda nú kostar um 135 milljónir króna á
árinu. Líkt og verið hefur greiða börn, aldraðir
og öryrkjar ekki komugjöld í heilsugæslu.
Áformað er að fella komugjöld í heilsugæslu á
dagvinnutíma niður að fullu á næsta ári og er
kostnaður vegna þess áætlaður um 350 milljónir
króna.
Lægra komugjald hjá þeim skráðu
Lækkun komugjalda nær til heilsugæslustöðva þar sem fólk er skráð Fullt gjald annars staðar
Morgunblaðið/Eggert
Heilsugæsla Komugjöld hafa lækkað.
Sjúkraflutningamenn tóku um
klukkan þrjú á laugardag á móti
dreng í sjúkrabíl á lóð Landspít-
alans í Reykjavík.
Í samtali við mbl.is á laugardag
sagði slökkviliðsmaður að um
klukkan hálfþrjú hefði slökkviliðinu
borist tilkynning um konu sem
komin væri með hríðir og stutt væri
á milli þeirra.
Var henni þó treyst til að fara í
bílinn. „Við treystum henni þó til að
fara inn í bíl og bárum hana því inn
í sjúkrabílinn,“ sagði hann. Svo
mikill asi var þó á drengnum að
hann kom í heiminn á bílastæði
fæðingardeildarinnar og tóku
sjúkraflutningamenn á móti honum
þar, sem fyrr segir.
Að sögn slökkviliðsmannsins
heilsaðist bæði móður og barni vel.
Fæddi í sjúkrabíl fyrir
utan fæðingardeild
Morgunblaðið/Ófeigur Lýðsson
Fæðing Tekið var á móti dreng í
bílnum. Móður og barni heilsast vel.