Morgunblaðið - 06.01.2020, Page 10

Morgunblaðið - 06.01.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Innflutningur gripa af erlendum mjólkurkúakynjum eða holdanauta- kynjum á síðustu áratugum og öld- um hefur nánast engin áhrif haft á ís- lenska kúakynið. Stofninn er nor- rænn, líklegast frá Noregi eins og saga okkar gefur til kynna. Stofn- inn hefur erfða- lega mikla sér- stöðu og er verndargildi hans mikið. Þetta er meðal niðurstaðna úr doktorsverkefni Egils Gautasonar sem snýst um erfðamengjakynbætur íslenskra kúa og smárra mjólkurkúastofna. Grein hans og leiðbeinenda hans við Ár- ósaháskóla var nýlega birt í Acta Agriculturea Scandinavica, ritrýndu vísindariti norrænna búvísinda- manna. Greinin er um skyldleika ís- lenskra kúa við önnur kyn og eru fyrstu niðurstöður doktorsverkefnis hans. Norðurnorrænt kúakyn „Íslenskar kýr eru norrænar að uppruna. Tilheyra hópi norðurnor- rænna kúakynja og má gera ráð fyrir að þær séu norskar að uppruna eins og saga okkar bendir til,“ segir Egill. Hann segir ekki hægt að staðfesta norska upprunann þar sem arfgrein- ingar eru ekki til fyrir norsku land- kynin. Í þeim hópi norðurnorrænna kúakynja sem það íslenska tilheyrir eru meðal annars sænskar fjallakýr, finnsku landkynin og svartsíðóttar Þrænda- og Norðlandskýr. Íslenski stofninn er eini stóri og óblandaði stofninn innan þessa hóps. Egill rannsakaði sérstaklega skyldleika við bresk kúakyn sem ekki hafði verið gert áður. Hann fann ekki skyldleika þar á milli. Egill segir að niðurstöður sínar um uppruna íslenska kúastofnsins séu í samræmi við fyrri niðurstöður en með betri gögnum og nýjum rannsóknaraðferðum sé hægt að fullyrða að þær séu óyggjandi. Rannsóknin rennir stoðum undir erfðafræðilega sérstöðu íslenskra kúa. „Það kemur heldur ekki á óvart enda hefur stofninn verið einangr- aður hér nánast frá landnámi. Svo löng einangrun gerir stofninn ólíkan stofnum á meginlandinu. Mér vitan- lega hefur aldrei verið sýnt fram á þetta með óyggjandi hætti fyrr en nú,“ segir Egill. Út frá þessu er það niðurstaða Eg- ils að verndargildi stofnsins sé ótví- rætt mjög mikið. Rannsókn á áhrifum innflutnings erlendra gripa bendir til að þau séu nánast engin. „Meginniðurstaðan er að stofninn er mjög hreinn, nánast alveg óblandaður,“ segir Egill en bætir því við að erfitt sé að fullyrða meira. Niðurstöðurnar geti bent til innflutnings á gripum sem ekki séu heimildir til um en að það hafi nánast engin áhrif haft á stofninn. Það kom honum á óvart að innflutningur á dönskum rauðum kúm er varla finn- anlegur þrátt fyrir að nokkrar heim- ildir séu um innflutning slíkra gripa. Hann hefur allavega ekki haft var- anleg áhrif. Þá kemur fram í grein hans að holdakynin Galloway, Limo- usin og Aberdeen Angus hafa haft hverfandi áhrif á íslenska kúastofn- inn. Ný aðferð við kynbætur Fyrirtæki íslenskra kúabænda styrkja rannsókn Egils enda er verið að undirbúa breytingar á kynbótum mjólkurkúa. Taka upp erfðamengja- kynbætur, eins og tíðkaðar eru í ná- grannalöndunum. Ganga þær út á það að kanna erfðamengi kálfa til að spá fyrir um hversu góðir kynbóta- gripir þeir muni verða sem reynd naut í stað þess að meta kynbótagildi þeirra á síðari stigum. Það mun flýta mjög kynbótum stofnsins. Egill mun rannsaka skyldleika- rækt, áhrif úrvals og tengsl við ýmsa eiginleika. Þá mun hann rannsaka öryggi erfðamengiskynbótamats fyrir íslenska stofninn með mismun- andi aðferðum. Engin áhrif af innflutningi kúa  Staðfest er með rannsókn að íslensku kýrnar eru upprunalega frá Noregi  Engin áhrif frá Bret- landi  Stofninn er erfðafræðilega ólíkur öllum stofnum á meginlandinu  Verndargildi hans ótvírætt Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sveitin Kýrnar reknar í haga að loknum mjöltum. Breytingar eru í farvatninu á aðferðum við kynbótastarfið. Egill Gautason Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Bara ágætlega. Ég kvarta ekki, sérstaklega miðað við árstíma,“ seg- ir glaðbeittur verslunarrekandinn Björg Ragnarsdóttir, spurð um gengi verslunarinnar Borgar í Grímsnesi. Björg og maðurinn hennar, Þórður Ingi Guðnason, end- urvöktu rekstur verslunarinnar Borgar um miðjan desember en eins og Morgunblaðið greindi frá í vor var versluninni lokað fyrir páska í fyrra. Þótti mikill missir að og segir Björg að enduropnun verslunar- innar hafi verið tekið vel. Segir hún þó að það hafi vitanlega verið áskor- un að byrja reksturinn á miðjum vetri, en bætir við: „En það er ágætt að vera aðeins búin að læra á þetta áður en sumartörnin hefst.“ Hún segir að viðskiptavinir versl- unarinnar séu blandaður hópur heimamanna og erlendra ferða- manna. Spurð um aðdraganda þess að Björg og maðurinn hennar hófu rekstur Borgar segir Björg að þau sem keyptu húsið þar sem verslunin er þekki Björgu, og hafi spurt hana hvort hún vildi taka við rekstrinum. „Þau virðast hafa borið slíkt traust til mín að þau spurðu mig hvort ég vildi taka við rekstrinum hérna,“ segir hún og að hún og maðurinn hennar séu alveg ný þegar kemur að rekstri verslana. „Þetta er algjör jómfrúarferð fyrir okkur.“ „Heimamenn virðast vera mjög glaðir,“ segir Björg um viðtökurnar. Hjónin búa í Þorlákshöfn, en Þórð- ur vinnur á Sólheimum og er þar aðra hverja viku. Segir Björg því mega segja að þau séu ný á svæð- inu, en komu þeirra hafi verið tekið vel. „Okkur finnst við aldrei hafa verið eins velkomin neins staðar áð- ur.“ Borg komin aftur á skrið  Áskorun að hefja verslunarrekstur um miðjan vetur Ljósmynd/Aðsend Verslunarrekendurnir Björg Ragn- arsdóttir og Þórður Ingi Guðnason. Kvika banki er nýr styrktaraðili Reykjavíkur- skákmótsins sem haldið er í mars ár hvert í Hörpu, að sögn Gunnars Björns- sonar, forseta Skáksambands Íslands. Segir hann mótið ekki standa höllum fæti í kjölfar falls Gamma. Gamma hefur á undanförnum árum verið aðalstyrktaraðili mótsins á og hefur því mótið bor- ið heitið Gamma Reykjavik Open síðastliðin 3 ár. Fjöldi skákmanna leggur leið sína á Reykjavíkurmótið á ári hverju og voru keppendur í fyrr á þriðja hundrað manns frá um 40 löndum. Í ár er búist við svip- uðum fjölda keppenda, enda hefur mótið fest sig í sessi meðal virt- ustu opnu skákmóta heims. Kvika styrkir Reykja- víkurskákmótið Gunnar Björnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.