Morgunblaðið - 06.01.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020
BROTINN
SKJÁR?
Við gerum v
allar tegun
síma, spjaldtö
og Apple t
ið
dir
lva,
ölva
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Áramótahappdrætti
Sjálfsbjargar
Dregið var þann 31. desember 2019
1. Bifreið, Mitsubishi Outlander PHEV 2020
að verðmæti kr. 4.790.000 42405
2.-21. Ferðavinningur frá Icelandair, hver að verðmæti kr. 400.000
4715 5516 6133 9922 10431 13358
13563 15572 19470 22022 24063 30667
31151 32089 32522 37538 37762 40353
43955 45460
22.41. Ferðavinningur frá Icelandair, hver að verðmæti kr. 200.000
1049 1732 2155 2488 10676 13393
13950 18418 22524 25238 26524 30778
30797 34927 40092 42984 45634 47173
48735 48858
42.-51. Vöruúttekt hjá Samsungsetrinu, hver að verðmæti kr. 400.000
1891 7461 11137 16156 16329 28973
39202 43046 45017 45381
52.-71. Vöruúttekt hjá Samsungsetrinu, hver að verðmæti kr. 200.000
403 1709 2039 3309 5041 7367
7485 11421 21380 21388 21446 22366
23701 28675 29077 38064 38193 41157
43770 47449
72.-96. Vöruúttekt hjá Samsungsetrinu, hver að verðmæti kr. 100.000
940 2623 3185 5026 6880 7997
15387 18090 19457 20338 23494 25972
26848 26971 27814 30008 30284 33372
35801 37109 38510 39842 41907 46545
49407
Birt án ábyrgðar.
Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á
skrifstofu Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra að Hátúni 12, 105
Reykjavík, 3ju hæð, opið milli kl. 10:00-12:00 og 12:30-15:00 virka daga,
sími 5500 360.
Byrjað verður að greiða út vinninga þann 13. janúar 2020. Vinningaskrá
er einnig birt á vefsíðu samtakanna, www.sjalfsbjorg.is.
Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra
þakkar landsmönnum veittan stuðning.
Vinningar og vinningsnúmer
Þórshöfn | Grimmt var teflt um tit-
ilinn skákmeistari Þórshafnar á
gamlársdag og mættu þá harðsvír-
aðir skákmenn til leiks. Tefldar
voru tíu mínútna skákir og þriggja
tíma viðureign lauk með því að
Haukur Þórðarson hélt titlinum og
bikarnum en það er þriðja ár hans
sem skákmeistari Þórshafnar.
Áhugi á skákíþróttinni er að
glæðast á ný á Þórshöfn eftir
nokkra lægð og í grunnskólanum
er nú lögð rækt við þessa hugar-
leikfimi og kom m.a. kennari frá
Skáksambandi Íslands í skólann
fyrir jól með fræðslu fyrir nem-
endur og kennara.
Fyrir tuttugu árum, árið 1999,
var fyrst blásið til keppni um tit-
ilinn skákmeistari Þórshafnar en
þá var hér áhugasamur skákmaður
og kennari sem reif upp skákmenn-
ingu í plássinu. Það var Angantýr
Einarsson og varð hann einnig
fyrsti skákmeistari þess árs, eins og
sjá má á farandbikar sem enn er í
umferð. Angantýs var minnst með
virðingu á skákmótinu núna á
gamlársdag en þá var aðeins vika
frá andláti hans en hann lést á að-
fangadag.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Skákmenn Haukur Þórðarson fremstur með bikarinn og standandi f.v. eru
Kristján Úlfarsson, Sigurður R. Kristinsson og Óli Þorsteinsson.
Skákmeistari ver titilinn
Skákmenn á
Þórshöfn kvöddu
2019 og kepptu
á gamlársdegi
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Dórófónn er hljóðfæri sem sjaldan
ber á góma. Þó fær ljós hans að
skína í einni aðalsenu kvikmyndar-
innar Jókersins, sem tónskáldið
Hildur Guðnadóttir leikur undir og
hefur hlotið mikið lof fyrir.
Golden Globe-
verðlaunahátíðin
fór fram í gær-
kvöld og var
Hildur tilnefnd til
verðlauna fyrir
framlag sitt til
myndarinnar.
Ekki var orðið
ljóst hvort Hildur
hefði unnið til
verðlauna þegar
Morgunblaðið fór
í prentun í gærkvöld.
Í senu þar sem Jókerinn dansar á
barmi taugaáfalls á almenningssal-
erni er verk Hildar leikið undir,
„Bathroom dance“, og í því notar
hún dórófóninn, sem er smíð Hall-
dórs Úlfarssonar, hönnuðar, mynd-
listarmanns og gamals skólabróður
hennar úr Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Dórófónn heitir í höfuðið
á Halldóri og er hluti af doktors-
rannsókn hans við Háskólann í Sus-
sex í Bretlandi. Verkefnið hófst þó í
myndlistarnámi hans í Finnlandi
nokkru fyrr.
Dórófónn er eins konar strengja-
hljóðfæri með endurómi. Hljóðinu
svipar til sellós, rafmagnsgítars og
orgels. Halldór útskýrir að hljóðið sé
svipað og það sem út kom þegar Jimi
Hendrix tróð rafmagnsgítarnum
sínum í magnara á Woodstock:
„Þá myndast endurómur. Þess
vegna er sérkennilega kunnugur og
ókunnugur tónn í honum þar sem
maður þekkir strengjahljóminn,“
segir hann. Áferðin er síðan eins og
á rafmagnsgítar en loks kemur inn
„orgelstemning“ þegar tónar verða
útdregnir og þeim leyft að dreifast
hægt og bítandi, eftir því hvernig
endurómurinn vill haga sér, að sögn
Halldórs.
„Þegar ég fór að taka verkefnið al-
varlegar og það varð að hönn-
unarverkefni frekar en myndlist-
arverkefni þá sýndi Hildur þessu
strax áhuga. Þar sem hún er bæði
flytjandi, tónskáld og sellóleikari að
mennt fangaði þetta áhuga hennar á
tilraunakenndri raftónlist og selló,“
sagði hann. Hún er ekki að nota
dórófóninn í fyrsta skipti og gætir
hans til að mynda í fyrri verkum
hennar og Jóhanns Jóhannssonar
heitins, til dæmis kvikmyndunum
Arrival og Sicario.
Hljóðfærið sem setti
svip sinn á Jókerinn
Dórófónninn skapar drungalega stemningu í verki Hildar
Ljósmynd/Sammi Drew
Hljóðfærið Halldór Úlfarsson hefur um nokkurt skeið unnið að dórófón-
inum. Hann hljómar í einni af aðalsenum kvikmyndarinnar Jókersins.
Hildur
Guðnadóttir
Karlmaður sem stungið
hafði annan með hnífi var í
fyrrakvöld handtekinn í
Garðabæ.
Eftir að tilkynning barst
lögreglu fór vopnuð sérsveit
lögreglunnar á staðinn,
hvar hún handtók árásar-
manninn og færði hann í
fangageymslur.
Fórnarlambið er ekki í
lífshættu, að því er fram
kemur í frétt RÚV um málið.
Lögreglan á Suðurnesjum handtók sömuleiðis tvo karlmenn vegna hníf-
stunguárásar, að morgni nýársdags.
Rannsókn þess máls er langt á veg komin. Mönnunum tveimur hefur ver-
ið sleppt úr haldi og er fórnarlambið ekki í lífshættu.
Þrír handteknir vegna hnífstunguárása
Morgunblaðið/Eggert
Við aðgerðir Vopnuð sérsveit handtók mann sem
hafði stungið annan með hnífi. Ljósmynd úr safni.