Morgunblaðið - 06.01.2020, Side 12

Morgunblaðið - 06.01.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020 ÚTSALA afsláttur af völdum ljósum. Allt að 70% 6. janúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.69 123.27 122.98 Sterlingspund 160.4 161.18 160.79 Kanadadalur 94.43 94.99 94.71 Dönsk króna 18.266 18.372 18.319 Norsk króna 13.855 13.937 13.896 Sænsk króna 12.976 13.052 13.014 Svissn. franki 125.94 126.64 126.29 Japanskt jen 1.1346 1.1412 1.1379 SDR 169.39 170.39 169.89 Evra 136.52 137.28 136.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.0053 Hrávöruverð Gull 1520.55 ($/únsa) Ál 1799.5 ($/tonn) LME Hráolía 66.28 ($/fatið) Brent ● Vaxandi spenna á milli Bandaríkj- anna og Íraks hafði mikil áhrif á hlutabréfaverð víða í Mið-Aust- urlöndum á sunnudag. Við lokun markaða hafði aðalvísitala hluta- bréfamarkaðarins í Kúveit lækkað um 4% og vísitala Tadawul- kauphallarinnar í Sádi-Arabíu lækkað um 2,4%. Þá hefur olíuverð hækkað, eins og oft vill verða þegar aukin hætta þykir á átökum og röskun á hvort heldur framleiðslu eða flutningum á olíu í þessum heimshluta. Nam hækkunin fyrir helgi nærri 4%. ai@mbl.is Hlutabréf lækka í Mið-Austurlöndum á borð við astaxanthín sem hefur mikla andoxunarvirkni og gerir hinum ýmsu vefjum líkamans gott á marga vegu. „Uppbyggingin hjá KeyNatura hefur gengið vel og er nú svo komið að þörungafram- leiðslan rauf 90.000 lítra markið á síðasta ári, en þörungaræktunin fer fram með nýjum og mjög skil- virkum aðferðum sem við höfum þróað sjálf og eru í einkaleyfisum- sóknaferli,“ útskýrir Sjöfn. SagaNatura framleiðir hráefni og fæðubótarefni undir merkjum samstarfsfyrirtækja og framleiðir að auki eigin neytendavörur sem seldar eru undir merkjum Key- Natura. Spannar framleiðslan allt frá hráefnum sem notuð eru í snyrtivörur, yfir í fæðubótarefni og gæludýrafóður, og segir Sjöfn jafnvel mögulegt að íslenskt astax- anthín verði notað sem fóðurbætir í fiskeldi þegar fram í sækir. Starfsmenn fyrirtækisins eru í dag sautján talsins og má finna Sag- aNatura-vörur til sölu í löndum eins og Bandaríkjunum og Kína, Frakklandi, Þýskalandi, Kanada og Nýja-Sjálandi auk Íslands. Rækta þörunga með mjög skilvirkum hætti Heyra má á Sjöfn að vöxturinn er hvað mestur í astaxanthtín- tengdri framleiðslu en undanfarin misseri og ár hefur reglulega mátt lesa um kosti astaxanthíns í heilsu- og læknaritum og eftir- spurnin í samræmi við það. Hvannar-vörurnar þarf aftur á móti að kynna fyrir nýjum neyt- endum enda heilsubætandi eigin- leikar íslenskrar hvannar ekki á allra vitorði. Astaxanthínið er dregið úr þörungum sem SagaNat- ura ræktar í stýrðu umhverfi sem tryggir hreinleika vörunnar en Sjöfn segir aðferðir fyrirtækisins bæði hámarka nýtingu á raforku, mannafli og plássi. „Það eru fleiri um hituna á astaxanthín-markað- inum og er það ekki bara fram- leiðslutæknin okkar sem veitir okkur sérstöðu heldur líka sú vís- indalega þekking sem hefur tekist að skapa innan fyrirtækisins og þær vörur og blöndur sem við höf- um þróað og framleitt.“ Þegar hún er spurð hvaða áskoranir fyrirtækið þarf að glíma við segir Sjöfn að það hafi m.a. komið á óvart hve hægt hlutirnir ganga fyrir sig þegar gerðir eru samningar við stóra framleiðend- ur. Hún segir samningaviðræðurn- ar sjálfar ekki taka svo langan tíma heldur öll þau skref sem koma í kjölfarið. „Samstarfsaðilar okkar þurfa tíma til að fínpússa sínar vörur og markaðsmál og stilla saman strengi með ýmsum milliliðum, og getur hæglega tekið nokkra mánuði frá því samningar eru gerðir þar til hráefni frá okkur er notað í framleiðslu á vöru,“ út- skýrir hún. „Stærsta áskorunin í dag felst þó í því að ráðast þarf í verulega stækkun og eftirspurnin hefur verið svo mikil að við höfum þurft að vinna á sólarhringsvökt- um til að framleiða upp í stóra samninga, t.d. fyrir Bandaríkja- markað.“ Sjöfn segir brýnt að SagaNat- ura nái að vaxa hratt og mögulegt að leitað verði að viðbótarfjár- magni frekar en að byggja vöxtinn á tekjum fyrirtækisins. „Í upp- byggingunni fram að þessu höfum við notið góðs af því að hafa öfl- ugan hóp fjárfesta á bak við okkur og mjög sterka stjórn, að ekki sé talað um þann stuðning sem við höfum fengið frá stofnunum eins og Rannís og Tækniþróunarsjóði, og nú síðast að við hlutum Evr- ópustyrk. Allt hefur þetta áhrif.“ Að mati Sjafnar er vöxturinn rétt að byrja og margir áhuga- verðir möguleikar fólgnir í frekari nýtingu þörunga. Er astaxanthtín aðeins eitt af mörgum dýrmætum næringarefnum sem framleiða má með þörungaræktun: „Ég sé fyrir mér að þetta verði ein af stærstu byltingunum í matvælaframleiðslu og m.a. dýrmæt uppspretta pró- teins og ómega-3 fitusýra.“ Vinna á sólarhringsvöktum Ljósmynd/SagaNatura Verðmæti Þörungarnir sem SagaNatura ræktar innihalda andoxunarefnið astaxanthín sem gerir líkamanum gott.  Mikil eftirspurn er eftir vörum SagaNatura  Spennandi möguleikar framundan í vinnslu næring- arefna úr þörungum  Sækja um einkaleyfi á ræktunartækni sem er hvorki orku- né vinnuaflsfrek VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Starfsemi líftæknifyrirtækisins SagaNatura hefur verið í örum vexti undanfarin ár. Fyrirtækið varð til árið 2018 við samruna KeyNatura, stofnað 2014 og Saga Medica, stofnað 2000. Velta SagaNatura nam um 400 milljónum króna á liðnu ári og reiknar Sjöfn Sigurgísladóttir með að veltan nái um 600 millj- ónum á þessu ári. Sjöfn er fram- kvæmdastjóri SagaNatura og seg- ir hún stofnendur Saga Medica og KeyNatura hafa komið auga á að verðmæt tækifæri væru fólgin í sameiningu. „Saga Medica var bú- ið að vera starfandi nokkuð lengi, með mjög góðar vörur byggðar á vönduðum vísindalegum grunni, og með fótfestu á bitastæðum markaðssvæðum. Fyrirtækið var þó enn mjög smátt og tækifæri til að láta bæði félögin stækka örar með því að snúa bökum saman,“ segir Sjöfn. Saga Medica varð til í kringum þróun heilsvara sem nota virk efni úr íslenskri hvönn og hefur náð hvað mestum árangri með Saga Pro-töflunum og Voxis-hálsbrjóst- sykrinum. Saga Pro hjálpar þeim sem glíma við að þurfa að vakna oft á nóttu til að hafa þvaglát en Voxis mýkir hálsinn. Hjá KeyNat- ura hafa aftur á móti verið þróað- ar aðferðir til að rækta þörunga og vinna úr þeim heilsueflandi efni Sjöfn Sigurgísladóttir ● Bandaríska rafbílaframleiðandanum Tesla hefur oft gengið illa að anna eft- irspurn, og örðugleikar í smíðaferlinu orðið þess valdandi að fjöldi afhentra bíla hefur ekki verið í samræmi við spár. Nú hefur fyrirtækið upplýst að afhend- ingar á árinu 2019 hafi verið í samræmi við áætlanir, fjárfestum til mikillar gleði. Afhenti Tesla u.þ.b. 367.500 bifreiðar á liðnu ári en markið hafði verið sett á 360-400.000 eintök. Þökk sé góðri eftir- spurn eftir Model 3 og ágætri sölu utan Bandaríkjanna tókst Tesla að afhenda 112.000 bifreiðar á fjórða ársfjórðungi sem er töluvert umfram spár markaðs- greinenda. Að sögn Reuters rauk hlutabréfaverð Tesla upp um 5,5% við þessi tíðindi og hefur aldrei verið hærra. Er markaðsvirði Tesla nú um meira en 80 milljarðar dala og fyrirtækið langtum verðmætara en rótgrónir bandarískir bílaframleiðendur á borð við Ford og General Motors. Árið 2019 fór hlutabréfaverð Tesla lægst niður í tæplega 179 dali í júní en á föstudag var verðið hársbreidd frá 450 dölum á hlut. ai@mbl.is AFP Forvitni Áhugasamir gestir skoða Tesla Model X á vörusýningu í Sjanghaí. Tesla á áætlun og fyrirtækið aldrei verðmætara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.